Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 54
í leiðinni væri nauðsynlegt að hafnarsvæðið sjálft ætti þátt í
því að kalla þarna miðbæjarlíf fram. Til að mynda mætti
sameina þar lífræna og andlega fæðu íslensku þjóðarinnar
með því að reka þar fiskimarkað í mun smærri stíl en í dag og
reisa þar veglega bókahöll fyrir Borgarbókasafn Reykjavíkur,
sem gæti einnig falið í sér ýmiss konar þjónustu og
upplýsingastarfsemi fyrir innlenda og erlenda ferðamenn,
nútímafæðu þjóðfélagsins. í kjölfar alls þessa yrði „Hús Borg-
arinnar” í jaðri Miðbæjarins mikilvægur hlekkur út á við,
bæði í bæjarheildinni svo og í iðu mannlífsins. Hér á eftir fer
kynning á tillögu höfundar að „Húsi Borgarinnar” og
markmiðum hennar.
Veðurfar og efnisfátækt íslenskrar náttúru sköpuðu hefð
torfbæjanna, sem aðlöguðust umhverfi sínu. Aðeins burstir
þeirra gáfu til kynna að um mannabústaði væri að ræða svo og
andlit sumra þeirra. í litadýrð sinni sköpuðu þau hinu
náttúrlega ívafi andstæðu. Sama er að segja um borgina, hina
byggðu náttúru mannsins. „Hús Borgarinnar” er ívitnun í
þessa hefð þar sem það við rætur Amarhólsins sameinast
honum. Ut á við, aftur á móti, þar sem mannlífið bærist í sinni
þroskuðustu mynd, sameinast það margbreytilegu andliti
Miðbæjarins. Eins og aðrar byggingar bæjarins er „Hús Borg-
arinnar” bam síns tíma.
Markmiðið með„Húsi Borgarinnar” neðst í hólnum er að gefa
bæjarheildinni þá mynd, sem henni er eðlislæg, þ.e. að
fullkomna húsaröðina á mótum holts og kvosar, eins að skapa
tengsl í uppflosnuðum borgarjaðrinum frá Skúlagötunni út í
Tryggvagötu. „Hús Borgarinnar”, sem hlekkur í Borgar-
jaðrinum skapar virðulega aðkomu inn í Miðbæinn.
Byggingin, sem er opin öllum almenningi, opnast út til
hafsins þ.e. úthverf bygging í borgarj aðrinum öfugt við byggingu
Seðlabankans, sem með sterkri umgjörð sinni, útliti og í eðli
sínu, er innhverf bygging í virðulegum sessi.
„Húsi Borgarinnar er ætlað að gefa hólnum þá afmörkun, sem
í kjölfar aukinnar umferðar er nauðsynleg, og um leið, sem
menningarmiðstöð, að efla útihátíðahefð hólsins, sem tíðkast
hefur í tugi ára. Sem innlægt borgarrými mun „Hús borgar-
innar” veita hinum margvíslegustu hátíðum og uppákomum
skjól í kenjóttu veðurfari.
Markaðir og aðrir daglegir viðburðir, eins og t.d. ráðstefnur,
vörusýningar eða listsýningar, munu einnig finna þar afdrep.
Veitingastaða á innlægum torgum með tengsl út undir bert
loft, bæði Amarhólsmegin og út á torgið til móts við höfnina,
mun annars vegar gefa borgarbúum og öðrum gestum tækifæri
til að njóta nærveru hólsins og Ingólfs í skjóli frá ysi og þysi
Miðbæjarlífsins og hins vegar skapa nálægð og sjóntengsl við
hafið og höfnina. „Hús Borgarinnar” færir mannlífið nær
borgarjaðrinum og jafnvel út fyrir hann, til móts við hafið,
lífgjafann mikla. Eins og tún bæjanna forðum er hafið tún
borgarinnar. ■
52