Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 56

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 56
KOSTNAÐARÁÆTLANIR Samanburður kostnaðartalna er ávallt erfiður og varhugaverður ef um misgamlar áætlanir er að ræða. Sérstaklega hefur þetta verið erfitt hér á landi vegna óstöðugs verðlags, bæði vegna verðbólgu og ótryggs'gengis. Undanfarin misseri hefur þó orðið stórbreyting á til batnaðar og horfir sem stendur vel í þessum málum. Nauðsynlegt er að allur samanburður fari fram í jafn verð- mætum krónum sem þýðir að það verður að umreikna það verð, sem bera á saman, til sama verðlagstímabils. Geta má þess hér að Ríkisendurskoðun leggur til að notað sé í skila- mötum verðlagíjúlí 1987 við samanburð byggingarkostnaðar opinberra bygginga, en í júlí 1987 var byggingarvísitalan síðast færð í 100 stig. Við erum ekki þeir einu, sem nota eldri grunn til viðmiðunar. Matsmenn í Þýskalandi nota til dæmis grunn frá 1913 í sínum útreikningum. Kostnaðaráætlanir eru af ýmsum toga og það er algengara en hitt að menn séu að bera saman gjörólíkar kostnaðaráætlanir, byggðar á ólíkum forsendum og unnar á mismunandi tímum. Til þess að freista þess að koma hér fastari skipan á og auka líkur á raunhæfum samanburði, höfum við, sem höfum sérhæft okkur í verkefnisstjórnun, sameinast um vísi að viðmiðun og samræmdu formi á framsetningu kostnaðaráætlana. Er það kennt við Pétur Stefánsson, ráðgj afaverkfræðing. Samkvæmt því skiptast kostnaðaráætlanir í þrjá nákvæmni flokka. 3. gráðu áætlun; byggir á lauslegri frumhönnun eða for- könnun og er nánast aðeins „vísbending um stærðargráðu” kr/m2, kr/ m ’. Líkleg skekkju- mörk:'15/ + 35 % (PMI = 30/ + 50 %) 2. gráðu áætlun; byggir á mótuðu mannvirki, þegar helsti búnaður hefur verið ákveðinn, hönnun er lokið að 35 - 50 %. Líklegskekkjumörk: -10/ + 20 % (PMI =5/ + 30 %) 1. gráðu áætlun; byggir á fullskilgreindu og fullhönnuðu mannvirki. Nákvæm magn- töluskrá liggur fyrir. Líkleg skekkjumörk: - 5 / + 15 % (PMI = - 5/+15 %) Tölur í s vigum eru sambærileg- ar tölur frá Project Manage- ment Institute í Bandaríkjun- um. Taka þarf fram hvort reiknað hafi verið með bestu hug- myndum um verðlagsþróun til verkloka. Og við bestu kostnaðaráætlanir þarf einnig að bætaeinhverju „ófyrirséðu” Það eru margar og mismunandi skoðanir á þessu fyrirbrigði „ófyrirséð” og erfitt um skil- greiningar. (Ein segir að hér sé um að ræða„kostnað utan og ofan við kostnaðaráætlun, sem reynslan sýni að falli á ýmsa óskilgreinda verkþætti og verði stærðargráðan að metast í hlutfalli af þeirri áhættu, sem hvert verk um sig feli í sér.) En sumar kostnaðaráætlanir falla ekki vel að þeirri þrískiptingu, sem að ofan greinir. Vegagerð ríkisins áætlar kostnað við gerð tveggja vegarspotta 10 milljónir hvom. Annar er boðinn út að vetri, en hinn að sumri til. Lægsta tilboð í vetrarveginn er 6,5 millj., eða 65 % af áætlun, en 11,5 millj.í sumarvejfinn, sem eru 115 % af áætlun. Voru áætlanir vegagerðarinnar vitlausar? Hvor var vitlausari? Áætlaður byggingarkostnaður fjölnota íþróttahúss í Kópa- vogi nam samkvæmt 3. gráðu áætlun hönnuða frá áramótum 1989/1990 um 637 millj. kr. sem er á verðlagi dagsins ídag 755 millj. Ekki er fráleitt að áætla að væri verkið boðið út í dag næmi tilboð 850-900 millj. Er eitthvert vit í því að bera tveggja ára gamla 3. gráðu áætlun saman við tilboð dagsins í dag?Svarið hlýtur að vera nei. En mér kæmi ekki á óvart þótt þessi gamla frumáætlun yrði dregin fram í dagsljósið til samanburðar þegar og ef til byggingar hússins kemur. Og þá jafnvel óframreiknuð upp á 637 millj. Það væri áreiðanlega allri umræðu um byggingarkostnað og samanburð fyrir bestu ef hægt væri að sameinast um samræmda túlkun á kostnaðaráætlunum með mismunandi nákvæmnis- gráðum og líklegum skekkjumörkum hverrar fyrir sig. Kostnaðaráætlanir eru spádómar fram í tímann, en ekki 54

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.