Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 58
c
3
C
C
:0
-C
s
3
LL
C
3
C
C
:0
-C
o
LL
Nákvæmni
kostnaðaráætlana
c
3
C
C
:0
sz
s>
L.
0)
>
o
o
>
hér um starfsháttum fjárveitingavaldsins og þeirri staðreynd
að ekki má skuldbinda ríkið með fjárframlögum nema innan
eins fjárlagaárs í senn.
8. Vanhæfni þeirra ráðgjafa verkkaupans, sem eiga að gera
kostnaðaráætlanir. Vanhæfni ráðgjafa getur að mínu mati
verið aðallega með tvennu móti. Annars vegar er um að ræða
ráðgjafa, sem tekuraðsér- vonandi oftast ómeðvitað - verk-
efni sem hann ekki veldur. I þessum tilvikum eru skekkjur,
villur, ósamræmi í útboðsgögnum, sem leitt getur til breytts
og þá í flestum tilvikum hækkaðs verðs. Hins vegar er um að
ræða ráðgjafa, sem hafa ekki til að bera nægilegt sjálfstæði til
að standa við sannfæringu sína. Kannski er réttara að kalla
það skort á hugrekki. Slíkum ráðgjöfum snúa verkkaupar
gjamanog beita áætlunum þeirra fyrir sig og þá oft í pólitískum
tilgangi eða í valdatafli.
Hér að framan hefur verið stiklað á stóru um ýmsa þætti
kostnaðaráætlana og hvernig bregðast megi við helstu
annmörkum þeirra. Hér koma inn í spilið ýmsar aðferðir
nútíma verkefnisstjómunar.
Hvemig getum við tryggt að hönnuðir og aðrir ráðgjafar séu
starfi sínu vaxnir ? Er hægt að setja mælistiku á þá og meta störf
þeirra? Jú, hugsanlega er þetta hægt í einhverjum mæli. Til
þess má beita annars vegar frammistöðumati (Performance
Evaluation) og hins vegar verkfræðilegu gæðamati (Value
Engieering). Frammistöðumat miðast við frammistöðu hvers
hönnuðar fyrir sig. Nauðsynlegt er að hönnuðum sé gerð grein
fyrir því í upphafi verks, að verkkaupi muni beita frammi-
stöðumati. Matið greinist í tæknilegar forsendur, stjómunar-
legar forsendur og forsendur heildamiðurstaðna, þar sem
tekið er mið af fylgni við tíma-kostnaðaráætlanir og
heildargæði hönnunar.
Verkfræðilegt gæðamat byggist hins vegar á því að reyndir
hönnuðir eru fengnir til að yfirfara og meta heildarhönnun-
ina, eða einstaka þætti hennar, á hönnunartímabilinu (Peer
Review). Algjör forsenda fyrir jákvæðum árangri er
gagnkvæmt traust hönnuða og verkkaupa.
Við eyðum miklum fjármunum ár hvert í verklegar fram-
kvæmdir. Það er mikilvægt fyrir hvem okkar, sem störfum að
verklegum framkvæmdum, að við njótum trausts verkkaupa,
hvar í þjóðfélaginu sem er. Og það er ekki síður mikilvægt fyrir
þá, sem standa að og kosta húsbyggingar og aðrar verklegar
framkvæmdir, að þeir geti fengið sem ráðgjafa trausta og hæfa
hönnuði á öllum sviðum.
Réttlát gagnrýni og heiðarleg umræða á ávallt rétt á sér um
kostnaðaráætlanir eins og um önnur mannanna verk. Sú
umræða, sem verið hefur um ýmsar stórframkvæmdir að
undanfömu, mun hins vegar ekki leiða til bættra vinnubragða
nema hinn neikvæði tónn víki'fyrir réttlátri umfjöllun.
Ohaggað stendur að við eigum mikinn fjölda hæfra hönnuða
og verkstjórnenda til þess að standa fyrir verkefnum
framtíðarinnar. ■
56