Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Qupperneq 63
GAIL KERAPLUS
Einstakar Keramikflísar.
Kynning Keraplus flísanna frá Gail er sérstakur viöburður
vegna fagurrar áferðar og einstœðrar endingar. Fire-
stream glerungshúðin er ekki sett á fyrr en lokið er við að
brenna flísarnar og nýrri tœkni er beitt. Glerungurinn er
Þykkari, þéttari og endingarbetri. Firestream glerungur-
inn er sérstaklega þéttur. Engar örsmáar holur eru í
honum svo hann óhreinkast ekki og slitnar seint, enda er
hann fimm sinnum þykkari en venjulegur glerungur.
Gail Keraplus fer fram úr öllum stöölum.
PostulínseftirlitiðPEIhefurframkvœmtharkalegarprófanir
á Gail Keraplus með hertum stálkúlum og slípiyélum.
Ekkert slitsést eftir 1500 yfirferðir og henta flísarnar því vel
t.d. í veitingahúsum, anddyrum almenningsbygginga og
verslunum. Flísarnar hafa jafnvel þolað 750.000 yfirferðir
án þess að sjái að ráði á glerungnum.
Keraplus þolir álag f kjörbúðum, gistihúsum,
umferðarmiðstöðvum, verslunum, veitingastöðum, frysti-
húsum og iðnfyrirtœkjum, enda þola flísarnar mikið álag.
Áncegjulegt aö þrífa!
Engin óhreinindi komast gegnum Keraplus glerunginn,
sem þolir ryk, slabb, feiti og málningu, svo og áralanga
notkun. Allt sem þarf til að þrífa er fata, tuska og þvegill.
Umboö: JÓNSSON OG JÚLÍUSSON
^gisgötu 10, R.
PRIMO GLUGGAR OG HURÐIR
Miklar kröfur eru gerðar í nútíma byggingariðnaði. Bestu
fáanlegu hráefni eru tekin fram yfir önnur lakari. Kröfur eru
Qerðar um mikla endingu, lágan viðhaldskostnað og
Qoða þéttingu fyrir vindi, regni og einnig hljóðeinangrun
Þegar um er að rœða glugga og hurðir.
Salan sf. er fyrirtœki sem framleiðir glugga, hurðir og
sólstofur, Salan sf. notar ekki timbur við þesa framleiðslu
heldur PVC plastprófíl sem styrktur er með áli að innan.
þessi aðferð við smíði á gluggum og hurðum er nýjung hér
a landi, þ.a.s. að nota ál að innan. Áður hefur verið
ootaður galv. stálprófíll og fyrir mörgum árum var hér á
landi notað venjulegt járn sem reyndist ekki vel.
Framieiðslan á gluggum og hurðum hefur verið í stöðugri
Þröun erlendis og markaðshlutdeild þeirra hefur stöðugt
aukist bceði í íbúar-,iðnaðar- og stofnanabyggingum.
Salan sf. gerði samning við Primo Plasf A/S í Danmörku
haustið 1990 með einkaleyfi á framleiðslu á þeirra kerfi í
gluggum og hurðum í Danmörku sem heitir Primo System.
Þeir eru stœrsti framleiðandinn á PVC gluggum og
hurðum í Danmörku og þeir eru einnig framleiddir á
hinum Norðurlöndunum. Þetta kerfi er hannað fyrir
norðlcegar slóðir og hentar vei hér á íslandi.
Markaðshlutdeild PVC plastglugga er um 30 - 40% í
Danmörku og er stöðugt að aukast. Þar sem gluggar eru
endurnýjaðir er markaðshlutdeildin mun stcerri, jafnvel I
80% tilvika eru valdir PVC plastgluggar. Þetta er vegna
þess að þeir sem endurnýja glugga leggja meiri áherslu
á að fá varanlega glugga sem þurfa mjög lítið viðhald.
Þar erum við komnir að mjög stórum kosti PVC plastg-
lugga, þeir fúna ekki og þarf ekki að mála reglulega. Það
má segja að þeir eru viðhaldsfríir, það þarf aðeins að
pússa prófllinn um leið og glerið er pússað og smyrja lamir
og lœsingar.
Primo System gluggar og hurðir hafa verið prófaðir 1
viðurkendum rannsóknarstofum á Norðurlöndum og hafa
þeirfengið mjög góða útkomu. Við prófun á vindþéttleika
og þéttleika við slagregni hafa þeir einnig hlotið góða
dóma. Einnig einangra þeir vel gegn kulda og
hljóðeinangra vel. Marghólfa karmar Primo kerfisins
einangra töluvert betur en gegnheilir (massívir) trékarmar.
Primo System gluggar eru afhentir fullsamsettir frá
verksmiðju með lömum, lœsingum og fullglerjaðir. Þetta
þýðir að gœði framleiðslunnar eru alltaf eins.
Verðmunur á PVC plastgluggum og timburgluggum í
Danmörku er nánast enginn. Þar eru timburgluggar ein-
nig samsettir í verksmiðju með lömum, lœsingum og
málaðir. í sólstofum er PVC plastprófílinn mjög hentugur
þar sem raki er stundum mikill og gluggar, hurðir og
rennihurðir frá Primo Stystem henta vel þar.
Salan s.f.
61