Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Qupperneq 64
MAC LEGO ?
Vinsælustu leikföng heims hönnuö
meö Macintosh !
Danska fyrirtækið LEGO á J örgen Hj 0rt Larsen og Macintosh
Plus vélinni hans mikið að þakka. Fyrir 5 árum vann Larsen
sjálfstætt og var þá svo heppinn að fá Macintosh Plus tölvu
uppí skuld. A næstu tveimur árum gerði Larsen sér smám
saman ljóst að hann hafði dottið í lukkupottinn. Hann
uppgötvaði möguleika litla plússins einn af öðrum og þegar
hann var ráðinn til hönnunardeilar LEGO, Lego Futura, fyrir
þremur árum tók hann Plúsinn sinn með inná teiknistofuna
í Nyhavn.
I fyrstu var Plúsinn ekki notaður sem hönnunartæki heldur
sem reiknivél. Hluti af hönnunarferlinu er að reikna út ýmsa
þætti framleiðslunnar, svo sem kostnað og efnisnotkun og
Macintosh vélin nýttist vel til þessa þátta.
Larsen notaði töflureikninn EXCEL til að auðvelda sér þessa
vinnu og þannig var hann aðeins nokkrar mínútur að því sem
áður tók hann marga klukkutíma. Þetta vakti athygli annarra
hönnuða hjá LEGO og þegar Larsen fór að nota Plúsinn til
hönnunar vildu hinir líka fá Macintosh.
HUNDRUÐ TEIKNINGA
Þegar Larsen kom fyrst til Lego með Plúsinn sinn var hönnunin
með gamla laginu: blýantur, reglustrika og teikniborð. Og það
skyldi enginn halda að það sé einfalt mál að hanna leikföngin
frá LEGO. Það þarf hundruðir teikninga áður en varan getur
farið í framleiðslu. Ef við tökum leikfangabíl sem dæmi, þá
þarf að teikna hvern einasta af hinum 20-30 hlutum bílsins
mörgum sinnum, eitt dekk getur þurft að teikna allt að 100
sinnum.
Macintosh Plus er ekki mjög öflug tölva til að vinna með
flóknar hönnunarteikningar og því var ákveðið hjá LEGO
Futura að setja nefnd á laggimar til að rannsaka hvaða
tölvukerfi hentaði best.
Larsen viðurkennir að ekki voru allir á eitt sáttir um Macitosh
Plus vélina hans. En deilumar voru ekki innan hönnunardeil-
darinnar, þar vildu allir Macintosh tölvukerfi, deilumar voru
á milli hönnunardeilar og framleiðsludeildar, þar sem sumir
töldu að LEGO væri betur borgið með DOS tölvukerfi. Þessir
menn voru að hugsa um tæknimálefni í framleiðslu en
hönnuðumir vom að hugsa um að vera eins skapandi og þeir
gætu verið.
MACHINTOSH SIGRAÐI
Eftir miklar athuganir og umræður fór Macintosh með sigur af
hólmi. Ákvörðunin lá beint við eftir að það kom í ljós að ekki
voru nein vandkvæði á að Macintosh vélar hönnunardeildar
og DOS-vélar framleiðsludeilar gætu skipst á upplýsingum.
Þar með féllu síðustu mótrök framleiðsludeildarinnar.
LEGO Futura samanstendur af fjórum hönnunarstofum í
Kaupmannahöfn og í Billund á Jótlandi. Þær nota allar
Mapintosh tölvur við hönnun leikfanganna, ýmist FX, CX
eða CI, og fyrir dymm stendur að bæta við fleiri vélum á
næstunni. Núna er aðeins ár liðið frá því að nýju vélarnar voru
teknar í notkun en nú þegar eru allar framleiðsluteikningar og
allt auglýsinga- og kynningarefni unnið á Macintosh í
MacDraw, Illustrator og Super 3D og á næstunni einnig í 3D
Turbo.
Allt er þetta til mikilla bóta fyrir okkur, segir Jörgen Hjört
Larsen, við spörum tíma við hverja teikningu og getum notað
skissur og teikningar aftur og aftur. Það sem þó er mest um vert
er að við getum endalaust prófað okkur áfram og reynt nýjar
hugmyndir. Við notum Macintosh - til að gera okkar besta
Úr Apple nyt..
MACINTOSH ER BETRI
EN IBM OG COMPAQ
er niðurstað rannsókna Ingram Laboratories, Margir hafa
kannski haldið að Macintosh-tölvur væru dýrari en aðrar
tölvur, en hins vegar varð niðurstaða umfangsmikilla
rannsókna Ingram Laboratories sú að Macintosh er öflugasta
tölvan þegar miðað er við verð. (Ingram Laboratories er óháð
rannsóknarstofnunum fyrir einkatölvur í Bandaríkjunum)
Stofnunin bar saman allar gerið Macintosh-tölva við IBM- og
Compaq-tölvur sem keyrðu allar stýrikerfið Windows 3.0 .
Mældur var tíminn sem tölvumar þurftu að vinna ákveðin
verkefni í sjö ólíkum forritum, sem til vour bæði fyrir Macin-
tosh og Windows. Mælingamar sýndu að sambærileg gerð af
Macintosh var hraðvirkari en samsvarandi gerð af IBM eða
Compaq.
62