Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 69

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 69
arkitekt hússins tekst að staðsetja þennan viðkvæma byggin- garhluta óvarinn og varnarlausan gagnvart stórveðrum vetrarins. Flestar algengar útihurðargerðir standast þessar aðstæður ekki, þær eru einfaldlega of óþéttar bæði gagnvart vindi og slagregni, auk þess sem stífleika þeirra er ábótavant. Hefur þetta þá alltaf verið svona ? Svarið er j á, en yfirleitt hafa aðstæðumar neitt menn til að breyta skipulaginu, þar sem aðstæðurnar hafa verið erfiðastar. Þekkt eru bíslögin svokölluðu, sem byggð voru til hlífðar útihurðunum, og tvö- faldar útihurðir eða vetrarhurðir, sem notast hefur verið við til hlífðar. I flestum tilvikum ætti að vera auðvelt að komast hjá þessum hremmingum með ofurlítilli fyrirhyggju við útlitshönnun. V andamálið er þekkt og fer bara vaxandi með auknum kröfum og fínni frágangi innanhúss alveg fram að útidyrum. Ef vandamálið er ekki leyst á hönnunarstigi, er nauðsynlegt að velja dýrari og vandaðri útihurðir með tveggja þrepa þéttingum eða vandaðar hurðir sem opnast út. Sú venja hefur hins vegar skapast hérlendis að útihurðir opnist inn. Væntanlega vegna snj óþyngsla sums staðar og að í hvass viðmm er erfitt að hemja hurðir sem opnast út. Fullyrða má að útihurðir sem opnast inn og standa áveðurs leki bæði í vindi og vatni a.m.k. ef þær hafa ekki þriggja Punkta læsingarjárn. Þau hafa hins vegar þann ókost að vera óþjál í umgengni. flokkun útihurða Nauðsynlegt virðist, a.m.k. meðan hönnuðir skipuleggja ekki staðsetningu útihurða betur en gert er, að flokka útihurðir eftir gæðum. Þessa flokkun ætti þá að gera eftir þéttleika og stífleika sem staðfest væri með mælingum í slagregnsskáp. E.t.v. mætti Eokka útihurðirnar í 3 flokka. 1- flokkur Venjulegar útihurðir, með eins þreps þéttingu. Hurðimareru fullnægjandi þar sem lítið mæðir á þeim og þar sem e.t.v. skiptir litlu máli þótt þær leki þegar slagregn stendur upp á þær. 2* flokkur fftihurðir með þriggja punkta læsingum og stífum hurðarspjöldum sem geta orðið verulega þéttari en hurðir t Uokki 1. Þessar hurðir mætti mæla og tryggja, þannig að þær uPpfylltu ákveðin skilgreind gæði. 3- flokkur Hrvalshurðir með góða eiginleika varðandi t.d.þéttingu - stífleika - bruna - innbrotsöryggi - einangrun. Þessir eigin- leikar væru mældir og vottaðir, þannig að kaupandi gæti gengið að gæðunum vísum. sjálfsögðu myndi verð útihurða í hverjum flokki end- urspegla gæðin, en kaupandinn hefði þó a.m.k. frjálst val. HÖNNUN og efnisval gar verið er að hanna útihurðir verðurhönnuðurinn að hafa uga þá þrjá gæðaflokka, sem nefndir eru hér á undan, til þess að hurðin uppfylli kröfumar sem eru gerðar til hvers flokks fyrir sig. Þrjá meginþætti þarf að hafa t huga við hönnun, en þeir eru efnistegundir og stærðir, þéttingar og einangrun. Einangrun í útihurð nýtist illa, ef hún er með lélega þéttingu, og á sama hátt nýtast góðir þéttilistar illa, ef hurðin er ekki nógu stíf til að halda við þéttilistana. Því þarf að hafa í huga að eftir því sem hurðin á að vera betur einangruð, því betur þarf að vanda uppbyggingu á burði og öllum frágangi hurðarinnar og val á þéttilistum, þannig að einangrunargildi haldist. Nú erum við komnir að merg málsins. Ef útihurð á að uppfylla kröfur sem flokkur þrjú gerir til útihurðar, eins og nefnt er hér að framan, þá dugar ekki að rammastykki hurðarinnar séu úr efni sem er 63x75 mm og á það sé klæddur krossviður. Þessi hurð mun sveiflast til eins og blað í vindi og hvorki halda vindi né vatni. Þegar verið er að tala um að hurð sveiflist til, eins og blað í vindil, þá er það vegna þess að hún er ekki nógu stíf og bognar undan álagi eða vegna rakamismunar úti og inni. Þessi hurð mundi vera í lagi í flokki eitt. Efþessi hurð ætti að vera nothæf í flokki tvö þá þarf í fyrsta lagi að setja á hana þriggja punkta læsingu og styrkja rammastykkin með jámprófíl. Hurð af þessari gerð mun aldrei uppfylla flokk þrjú. Flokkur þrjú gerir allt aðrar kröfur um uppbyggingu og frágang og ef við ætlum að láta hurðina opnast inn og ekki vera í skjóli þarf uppbyggingin að vera enn betri og ættu hurðir, sem eiga að standast slíka áraun, að vera í einhverjum æðri flokki, því þá erum við ekki bara að tala um einangrun, þéttleika eða stífleika, þá er kominn fjórði þátturinn, en það er þol yfirborðs, en út í það verður ekki farið hér. Hurðir sem eiga að standast kröfur þriðja flokks geta verið byggðar upp á ýmsa vegu, en þó má gefa leiðbeinandi upplýsingar um meginatriðin við uppbyggingu á tveimur gerðum, án þess að leggja mat á útlit. 2. Gegnheil hurð Gegnheil hurðþárf að vera unnin úr beinvöxnu og sein- sprottnu efni, en hafa skal í huga hvemig efnið snýr í hurðinni, því það fer allt eftir efnistegundum hvort geislaskurður eða snertiskurður er látinn snúa út. Viðarraki skal vera 12 + 3%. 1. Einangruð hurð Rammastykki Einangrun Mynd 1. 67

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.