Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 72
Grafísk hönnun: Umbú&ir um saltfisk.
fjöldann 6-7 á ári. Auk þess eru jafnan nokkrir erlendir
gestanemar við skólann, þannig að heildarfjöldi nemenda í
sérnámi er um 150. Nemendur í fornámi eru um 40. Til
þessarar starfsemi hefur skólinn 30 kennslustofur, eða verkstæði
sem svo eru kölluð, þótt þau standi tæplega öll undir því nafni
hvað búnað varðar. Með bættri aðstöðu í nýja húsinu fyrir þær
greinar sem nú eru kenndar er vonast til að svigrúm skapist til
að takast á við ný viðfangsefni.
Eins og kunnugt er liggur tilbúið í menntamálaráðuneytinu
frumvarp til laga um Listaháskóla Islands sem verði sameigin-
legur háskóli fyrir tónlist, leiklist og myndlist. Lengi hefur
verið í undirbúningi að lög yrðu staðfest um háskólamenntun
í listum hér á landi og allan tímann hefur verið gert ráð fyrir
að Leiklistarskólinn, Myndlista- og handíðaskólinn og T óniist-
arskólinn í Reykjavík legðu grunninn að þeirri menntun.
Skólarnir hafa tekið mið af þessari framtíðarsýn og, í samráði
og samvinnu við erlenda listaháskóla, markvisst lagað
starfshætti sína að breyttum kröfum. Nú er svo komið að nám
við þessa skóla nýtur viðurkenningar virtra listaháskóla um
allan heim.
Sú töf sem orðið hefur á lagásetningu um æðra listnám hér á
landi hefur hins vegar skapað mikla óvissu um stöðu lista-
skólanna og framtíðarmöguleika. Þessi óvissa er orðinslíkur
dragbítur á alla starfsemi þeirra að ekki verður lengur við
unað. Þrátt fyrir þetta er reynt að halda uppbyggingunni
áfram. Af nýjum verkefnum sem unnið er að verður fyrst að
nefna fyrirhugað samstarf listaskólanna í hinu nýja húsnæði.
Verið er að ræða samræmingu á stjómun þeirra og rekstri og
huga að möguleikum til samstarfs um kennslu og rannsóknir.
Einnig er rætt um kennaramenntun í listgreinum með sérstöku
tilliti til framhaldsskólastigs, en þar er hálfgert tómarúm hvað
listmennt varðar. Auk þessa fara nú fram viðræður milli
Háskóla íslands og listaskólanna um samvinnu við áfram-
haldandi uppbyggingu æðri listmenntunar í landinu.
Af öðrum framtíðarverkefnum sem á döfinni eru má nefna tvö
sem ætla má að lesendur þessa blaðs séu forvitnir um:
arkítektamenntun og hönnunarmenntun.
í undirbúningi er kennsla í arkítektúr í samvinnu við Háskóla
íslands og e.t.v. fleiri stofnanir. Hugmyndin er sú að hægt
verði að stunda námið hér á landi fyrstu tvö árin og einnig í
lokaáfanga, en miðhlutann sæki nemendur til útlanda. Með
þessu móti er talið að íslenska megi arkítektamenntunina og
efla faglega umræðu um byggingarlist hér á landi, án þess að
glata þeirri fj ölbreytni sem fylgt hefur því að íslenskir arkítektar
hafa sótt menntun sína í ólíka skóla í mörgum löndum. Einnig
er nú vaxandi áhersla lögð á hönnunarmenntun við Myndlista-
70