Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 73
Skúlptúr: Rannsókn ó rými; form og birta.
Textíll: Ofin óklæóisprufa.
°8 handíðaskólann. Merking orðsins hönnun er nokkuð á
^eiki t,ar sem það er notað yfir mjög vítt svið. Talað er um
°nnun húsa, tímarita, fata, leirtaus, öryggisbúnaðar,
tölvuforrita, listaverka og jafnvel hugmynda.
Greining á hugtakinu hönnun í undirhugtök
eins og grafísk hönnun, iðnhönnun,
listhönnun, hátæknihönnun og hugmynda-
eða viðhorfa-hönnun leysir ekki allan
vandann þar sem landamæri þessara hugtaka
eru áfram óljós.
Stundum er reynt að skilgreina hugtakið
hönnun eingöngu út frá þeim vinnubrögðum
sem beitt er, tilganginum með hönnun og
þeim kröfum sem gerðar eru til hönnunar og
hönnuða. Þegar talað er um aðferðir við
hönnun er jafnan átt við ákveðið ferli hug-
stormunar og markvissrar úrvinnslu á mis-
munandi möguleikum (oft í samvinnu margra
aðila) og tilgangurinn eða markmiðið er þá að
leysa viðfangsefni eða vandamál í fyrirfram
ákveðnum tilgangi. í umræðum um hönnun
á alþjóðavettvangi hafa komið fram auknar
kröfur um að þeir sem vinna við hönnun virði
náttúru og lífríki og sýni fulla siðferðilega
ábyrgð gagnvart samfélaginu. Um þetta þrennt
snúast gjaman skilgreiningar á hönnun og
starfi hönnuða, þótt þær séu eitthvað mis-
munandi orðaðar, þ.e. vinnuaðferð, tilgang og
ábyrgð.
Myndlista- og handíðaskólinn hefur fylgst með
og tekið þátt í umræðum um hönnun í
fjöldamörg ár og reynt eftir því sem tök hafa
verið á að svara kalli tímans um aukna
hönnunarmenntun. Þetta hefur gengið mun
hægar en æskilegt hefði verið og enn er óljóst
hvaða leið er hægt að fara í þessu sambandi.
Skólinn hefur reyndar þegar í 25 ár menntað
grafíska hönnuði sem vinna afar fjölbreytileg
störf, t.d. við auglýsingagerð, umbúðahönnun,
myndskreytingar hvers konar og við
útlitshönnun tímarita og bóka svo eitthvað sé
nefnt.
I textílnáminu hefur verið lögð aukin áhersla
á hönnun og gert ráð fyrir að nemendur ættu
greiða leið til áframhaldandi náms á því sviði.
Ofarir íslensks ullariðnaðar á síðustu árum
hafa varpað nokkrum skugga á þessa
uppbyggingu, en bæði textílkennarar skólans
og fyrrverandi nemendur taka nú virkan þátt
í umræðum um endurreisn hans.
I leirlistamámi er m.a. kennt að hanna hluti
til fjöldaframleiðslu, en fáir möguleikar hafa
verið til að nýta þá þekkingu fyrir íslenskan
iðnað. Þetta nám erþóeinnigágæt undirstaða
undir áframhaldandi hönnunarnám. Loks
hefur verið stefnt að því að nemendur í frjálsri
myndlist kynntust vinnuaðferðum hönnunar,
þannig að þeir væru betur undir það búnir að
taka að sér ýmis listskreytingarverkefni að
71