Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 75

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 75
AÐ GERA MIKIÐ ÚR LITLU Ef þú býrð í blokkaríbúð eða litlu húsi finnst þér þú hugsanlega búa of þröngt. Ætlun þessarar greinar er að sýna fram á hvemig hægt er að bæta úr því með góðri hönnun. Fyrri hlutinn sýnir ákveðin þrep í þessari vinnu: ákvörðun forgangsraðar, rýmisskipun, ákvörðun á því svæði sem er til ráðstöfunar og teiknun á fyrirkomulagi. Einnig er fjallað um aðferðir til að láta rými sýnast stærra og að samræma þætti eins og liti, áferð og stærðarhlutföll. I seinni hlutanum er sagt frá nokkrum aðferðum við að hanna smá rými til ýmiss konar nota. Engin ein lausn er sú eina rétta en þessi grein mun vonandi sýna fram á að mögulegt er að hanna lítil rými þannig að þau verði bæði notadrjúg, falleg og sniðin að þörfum notandans. Meðgóðriskipulagninguogofurlttilli útsjónarsemi þá getur það verið reglulega þægilegt að búa í litlu rými, auk þess sem það er miklu ódýrara en að búa of stórt. SKIPULAG OG HÖNNUN LÍTILLA ÍBÚÐA A undanförnum árum hefur sífellt fleira fólk ákveðið að búa ílitlum íbúðum, bæði af hagsýni og nauðsyn. í litlum íbúðum getur þó verið erfitt að koma fyrir öllum þeim lífsnauðsynjum sem fólk telur nú „nauðsynlegar“ með smekkvísi og glæsibrag. Vissar viðurkenndar „nauðsynjar“, að borða, sofa, baða sig, að sitja, svo og tómstundir, verða að hafa sinn stað. En að koma þeim öllum fyrir í lítilli íbúð getur valdið ringulreið og jafnvel innilokunarkennd. Þegar skipuleggja á lítið rými er það grundvallaratriði að hver fermetri sé nýttur vel og á þægilegan máta. Fyrsta skrefið er að líta á það sem þú býrð við. Hugsa sér hvaða hlutverk þú vilt láta íbúðarrýmið hafa. Ertu helgarforeldri? Stundarðu líkamsrækt heima? Heldurðuoftboð? Þegarþúhefurákveðið þarfir þínar er mun auðveldara að þróa margvíslegar hug- myndir og lausnir og breyta litlu íbúðinni þinni í hagnýtt og fallegt heimili. 73

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.