Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 76
FORM FYLGIR HLUTVERKI
Aður en fyrirkomulag íbúðarinnar er ákveðið er mikilvægt að
ákveða forgangsröð mismunandi hluta hennar. Oft gildir um
herbergi að þau hafa fleiri en eitt hlutverk, þannig að ákveða
verður hvert þeirra er mikilvægast. Efþú hefur t.d. gestaher-
bergi, en langar einnig til að rita skáldsögu eins og Nóbéb
skáldið, þarf að samræma þetta. Efþú færð einungis gesti sem
gista tvisvar, þrisvar á ári, er skynsamlegt að innrétta her-
bergið fyrst og fremst sem skrifstofu, en með svefnaðstöðu.
Hinsvegar ef þú færð oft gesti og hefur einungis eitt svefnher-
bergi, getur verið skynsamlegt að innrétta stofuna líka sem
gestaherbergi. Hægt er að fela það hlutverk með mörgum
aðferðum. Stofusófa er hægt að breyta í rúm á svipstundu. Ef
til vill hefur þú lítið eldhús með borðkrók. Ef þér finnst
gaman að elda en vantar aðstöðu þá er hægt að endurskipu-
leggja eldhúsið með fleiri skápum og vinnuborði, sem líka er
hægt að nota fyrir eldhúsborð.
Ef þú býrð í stúdíóíbúð er nauðsynlegt að skilgreina megin-
athafnasvæðin og mynda afmörkuð svæði innan þessa eina
rýmis. í stórri stúdíóíbúð er hægt að nota færanleg skilrúm,
veggeiningar eða jafnvel niðurdregið tjald til að skilja að
rýmið. Ákveða þarfhvaða meginathafnir á að sameina, svefn/
setpláss, matreiðslu/ borðhald, borðhald/setu eða setu/
tómstundir. Að sjálfsögðu er það undir einstaklingnum
komið að ákveða hvað sé í raun mikilvægt. En mikilvægast
er þó að ákveða hvemig tiltækt rými er notað. Skrá for-
gangsröð, láta hugann reika um möguleikana á því að aðlaga
heimilið sem best þörfum þínum. Að lokum þarf að hugsa um
hrifræn áhrif rýmisins. Hvemig viltu láta þér líða þegar þú ert
í viðkomandi rými? Þú ert arkitekt þíns umhverfis þegar
kemur að heimilinu, þar getur þú skapað umhverfi sem er
sérstakt og eftir þinni eigin sérstöðu.
HENTAR ÍBÚÐIN ?
Þegar þú hefur komist að því hvert hlutverk íbúðarinnar á að
vera, hvemig þú vilt láta rýmið verka, er gott að komast
nákvæmlega að því hversu mikill gólfflötur er til yfirráða.
Notaðu málband og mældu lengd, breidd og hæð allra her-
bergja, hurðir, glugga og ofna, einnig arin, útskot, súð, renni-
og fellihurðir. Mældu einnig skápa. Hugsanlega leynist þar
ónotað rými sem komið gæti að notum.
Veltu fyrir þér nýtilegu veggplássi á meðan þú ert að þessu.
Veggeining, há hilla eða skápur upp í loft gæti einmitt verið
það sem þú ert að leita að til að stækka gólfflötinn. Þessi
uppdráttur gerir þér kleift að leika þér að rýminu án þess að
gera dýr mistök. Þegar unnið er með grunnmynd, er hægt að
sjáþegar ístað efherbergið erekki í jafnvægi. Hægt erað leika
sér með húsgögn og hluti sem þú átt, og hluti sem þig langar
í, þannig að þú getir fundið bestu möguleikana. Taktu til
greina gönguleiðir ef hægt er og komdu fyrir stólum þannig að
hægt sé að ganga í kringum þá og milli þeirra . Grunnmynd
getur sýnt hversu mikið af húsgögnum rúmast og hvemig.
74