Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Blaðsíða 77
UNDIRSTÖÐUATRIÐI
Hversu miklu hefurðu efni á að eyða? Fyrst þarftu að vita hvað
þú vilt. Því næst að ákveða hversu miklu á að eyða og hvað sé
mikilvægast að kaupa fyrst. Haft er eftir mikilsmetnum
hönnuði :„til þess að koma saman góðri íbúð eru tvö atriði
tnikilvæg - að vita hvenær á að hætta og að gera að minsta
kosti eitthvað vel“. Að gera eitthvað vel getur þýtt að mikill
hluti peninganna fari í það eina atriði, en ef það tengir íbúðina
saman og leysir einnig önnur vandamál, gæti það verið vel
þess virði.
Gott er að geta gert sem mest sjálfur og breytt innréttingum
án þess þó að brey ta upphaflegu byggingarlagi. Þó að hugsanlegá
sé ekki nauðsynlegt að greiða vinnulaun þarf að gera ráð fyrir
efniskostnaði í fjárhagsáætluninni. Flestir kalla til fagfólk
þegargeraá meiriháttarbreytingar. Efráðgerter aðrífaniður
Veggi eða breyta íbúðinni algerlega er ráðlegt að tala við
Hönnuðir hafa margar aðferðir til að láta
rými sýnast stærra en það er, en lfklega er
notkun lita sú auðveldasta og árangurs-
ríkasta. Litirveggja,lofta,gólfa,gluggatjalda,
húsgagna og áklæða geta haft mjög mikil
áhrif á hvemig við skynjum rými. „Hlýir“
litir (rauðir, rauðgulir) fá rými til að virðast
minna og persónulegra. „Kaldir" litir (blár,
grænn) fá veggi til að sýnast fjær, þannig að
rýmið virðist stærra. Hvítt eða allt að því
hvítt hefur orðið sígildur veggjalitur undan
fama áratugi. Hvítt endurkastar ljósi og fær
veggi til að virðast fjær. Hvít herbergi virðast
rúmgóð, veita óendanlegt val fyrir litasam-
setningu, endurkasta lýsingu og veita bjart-
ara andrúmsloft. Málverk og önnur lista-
verk sjást betur á ljósum veggjum. Speglar
valda skynvillu. Speglaveggurinn virðist
tvöfalda rými herbergis þannig að hálft
hringborð sem stillt er upp við hann sýnist
heilt. Staðsetjið spegla til að endurspegla
lista-verk, húsgögn eða annað því
augsýnilega ef ekkert er til að endurspegla er
áhrifunum glatað.
Ljóslituð gólf, hvort heldur er teppi, dúkur,
keramikflísar, marmari eða málað timbur
eru líka góð til að stækka rými. Bónuð,
teppalaus timburgólf fá líka herbergi til að
sýnast stærri. Almenn regla er að gólfmottur
stöðva augað og smækka þess vegna rýmið,
engeta verið mjög góðar til að skipta íbúðinni
í ákveðin svæði. Ef þú vilt að lýsingin fái
íbuðina til að virðast stærri, reyndu þá að
koma búnaði þannig f yrir að ljós endurkastist af lofti og/eða
fráhomum herbergisins. Túpuljós eða punktljós eru góð til
að afmarka einstök svæði, eða leggja áherslu á skil milli
svæða. Of mikið af húsgögnum fær allar íbúðir til að sýnast
þröngar, sérstaklega ef um er að ræða lítil húsgögn. Stór
húsgögn sem raðað er upp á einfaldan hátt eru í raun betri
lausn. Þeim mun minna sem er af þeim hlutum sem ekki eru
notaðir oft eða hafa ekkert fegurðargildi, því stærri virðist
íbúðin. Geymið þessa hluti í skápum eða úr augsýn. Ef einnig
er hægt að byggja inn t.d. sjónvarp, hljómflutningstæki
o.s.frv. mun íbúðin virðast stærri.
NOKKUR ATRIÐI
A milli allra hluta og rýma í íbúð er ákveðið stærðarsamhengi.
Innbyrðis stærðarhlutföll rýma eða hluta og húsgagna skipta
miklu máli. Húsgögn þurfa að vera í samhengi við rýmið í
innanhúshönnuð eða arkitekt áður en hafist
er handa. Slík ráðgjöf er fljót að borga sig,
ekki síst ef hægt er að koma í veg fyrir
alvarleg mistök.
AÐ EINFALDA HLUTINA
75