Skessuhorn


Skessuhorn - 23.11.2022, Síða 7

Skessuhorn - 23.11.2022, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Heilbrigðisstofnun Vestur­ lands sendi nýlega frá sér tilkynn­ ingu þess efnis að Þórður Ingólfs­ son yfirlæknir á heilsugæslustöð HVE í Búðardal hafi verið ráðinn umdæmislæknir sóttvarna í sótt­ varnaumdæmi Vesturlands. Áður sinnti Þórir Bergmundsson frá Akranesi starfinu. Í tilkynningunni segir: „Þórður hefur verið svæðis­ læknir sóttvarna og staðgeng­ ill Þóris Bergmundssonar, fráfar­ andi umdæmislæknis sóttvarna, og þekkir verkefnið því vel. Auk Þórðar eru tveir svæðislæknar sótt­ varna; Geir Karlsson yfirlæknir á heilsugæslustöð HVE á Hvamms­ tanga og Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir á heilsugæslustöð HVE á Akranesi. Við þessi tímamót eru Þóri Bergmundssyni þökkuð mjög vel unnin störf sem umdæmis­ læknir sóttvarna um árabil og sér­ staklega má geta vinnu hans við gerð viðbragðsáætlana og hið mikla og óeigingjarna vinnuframlag í baráttunni við Covid­19 heimsfar­ aldurinn allt frá fyrsta degi.“ sþ Nýr umdæmislæknir sóttvarna hjá HVE Þórður Ingólfsson, nýr umdæmislæknir sóttvarna á Vesturlandi. Ljósm. hve.is.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.