Skessuhorn - 23.11.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202212
Í liðinni viku var þess minnst að
þrír áratugir eru síðan Háls og
bakdeildin var sett á laggirnar við
St. Franciskuspítalann í Stykk
ishólmi. Í opnu húsi við það til
efni færði Ríkharður Hrafnkelsson
deildinni, fyrir hönd Lionsklúbbs
Stykkishólms, 800.000 króna styrk.
Styrkurinn er ætlaður til tækja
og áhaldakaupa og mun koma
deildinni mjög til góða. Með gjöf
inni vilja Lionsfélagar styrkja og
efla starfsemi Háls og bakdeildar
innar sem og bæta aðstöðuna bæði
fyrir skjólstæðinga og starfsfólk.
Jakob Björgvin Jakobsson, bæj
arstjóri sameinaðs sveitarfélags
Stykkishólmsbæjar og Helgafells
sveitar, kvaddi sér einnig hljóðs og
sendi heillaóskir til núverandi og
fyrrum starfsmanna Háls og bak
deildar St. Franciskuspítala, HVE
í Stykkishólmi, í tilefni afmælis
ins og óskaði á sama tíma deildinni
til hamingju með nýja og bætta
aðstöðu. Bæjarstjóri afhenti einnig
á þessum tímamótum Hrefnu
Frímannsdóttur, yfirsjúkarþjálf
ara og fagstjóra, og Jóhönnu Fjólu
Jóhannesdóttur forstjóra HVE,
blómvönd frá sveitarfélaginu. Til
viðbótar þakkaði hann sérstaklega
þeim frumkvöðlum sem stóðu að
stofnun þessarar deildar árið 1992
fyrir þeirra mikilvæga framlag, þ.e.
þeim Jósepi Ó. Blöndal og Lucia
de Korte, en þau lögðu grunninn
að stofnun bakdeildarinnar við St.
Franciskusspítalann í Stykkishólmi
fyrir 30 árum síðan. Þá óskaði
bæjar stjóri einnig landsmönnum
öllum til hamingju með bakdeildina
enda sinnir háls og bakdeildin
mikilvægri þjónustu fyrir sjúklinga
um allt land með bakvandamál.
sþ/jse/ Ljósm. sá
Faxaflóahafnir taka upp umhverfis
einkunnarkerfi fyrir skemmtiferða
skip að norskri fyrirmynd, Environ
mental Port Index (EPI), með
ívilnun eða álögum eftir umhverfis
hegðun skipa á hafnarsvæði.
EPI á upptök sín í Noregi þar sem
höfnin í Björgvin, Det Norske Veri
tas (DNV), ásamt helstu skemmti
ferðaskipahöfnum Noregs tóku sig
saman og þróuðu nýtt umhverfis
einkunnarkerfi sem tekur sérstak
lega á umhverfishegðun skipa á
hafnarsvæði. Faxaflóahafnir eru
fyrstu hafnir utan Noregs sem taka
upp EPI einkunnarkerfið og tengja
það við sína gjaldskrá fyrir 2023.
Við innleiðingu var stuðst við fyr
irkomulag hjá höfninni í Stavanger,
en með vægari álögur þar sem Faxa
flóahafnir eru ekki enn komnar með
landtengingar fyrir stærri skemmti
ferðaskip.
EPI er verkfæri sem gerir
höfnum kleift að skilgreina
umhverfisspor skemmtiferðaskipa
á meðan viðkomu stendur. Mark
miðið er að koma á fjárhagslegu
hvatakerfi til umhverfisvænni og
sjálfbærari rekstrar skemmtiferða
skipa og draga þannig úr ávinn
ingi við að koma til hafna Faxa
flóahafna með mengandi skip.
Skemmtiferðaskipum ber að skila
inn gögnum til mats á umhverfis
frammistöðu í höfn eigi síðar en 72
klst. eftir brottför. Á grunni þeirra
gagna fær hvert skip EPI einkunn
milli 0 (verst) og 100 (best).
„Innleiðing á umhverfis
einkunnarkerfi EPI er í samræmi
við stefnuáherslu Faxaflóahafna
með grænar hafnir og forystu í
loftslags og umhverfismálum í
hafnsækinni starfsemi. Þar hefur
verið mikilvægt að horfa til reynslu
Norðmanna og ekki síst hefur EPI
sýnt fram á mælanlegan árangur í
að minnka umhverfisáhrif skemmti
ferðaskipa í norskum höfnum“ segir
Sigurður Jökull Ólafsson markaðs
stjóri Faxaflóahafna.
mm
Fagnað 30 ára afmæli
Háls og bakdeildar
Jakob Björgvin Jakobsson, Hrefna Frímannsdóttir og
Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir.
Hrefna Frímannsdóttir tekur við styrknum frá Ríkharði
Hrafnkelssyni.
Faxaflóahafnir taka upp umhverfis
einkunnakerfi fyrir skemmtiferðaskip
Fyrsta skemmtiferðaskipið kom í Akraneshöfn í lok júlí árið 2017. Það var Le Boreal, skip sem tekur um 250 farþega og hefur
139 í áhöfn. Ljósm. úr safni/bþb
Dagur í lífi...
Alt mulig mand
á Hellissandi
Nafn: Jón Steinar Ólafsson
Fjölskylduhagir/búseta: Bý á
Naustabúð 9 á Hellissandi ásamt
minni heittelskuðu Kristfríði Rós,
syni okkar Ólafi Örvari og hund
inum Dino.
Starfsheiti/fyrirtæki: Er alt
mulig mand hjá Hraðfrystihúsi
Hellissands. Allt frá því að landa,
sjá um fjármálahliðina og þar á
milli.
Áhugamál: Er rosalegur blöðru
kall. Allt sem hefur bolta hef ég
mikinn áhuga á. Þar fremst fer
fótbolti, golf, körfubolti og hin
snilldar íþrótt amerískur fót
bolti. Svo er stangveiðiáhuginn
að koma sterkur inn eftir að hafa
látið miður slæm orð falla um
hann undanfarin ár.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 17.
nóvember 2022.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Klukkan er 20 mínútur
yfir sjö. Tísta mín eins og hún er
alltaf kölluð kemur heim eftir að
hún hefur þjálfað í CF stöðinni
okkar og vekur mig og peyjann.
Fyrsta sem við gerum er að tann
bursta okkur, klæða og fá okkur
að borða.
Hvað borðaðirðu í morgun
mat? Fæ mér yfirleitt bara kaffi.
Einstaka sinnum boozt eða hafra
graut sem Tísta gerir.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór til vinnu um hálf
níu, eftir að maður var búinn að
koma litla á leikskólann sem er
í tveggja mínútna göngufæri frá
þar sem við búum.
Fyrstu verk í vinnunni? Byrjum
flesta morgna á kaffistofunni að
ræða heimsmálin, annars er það
að renna yfir tölvupóst og fara
yfir verk dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Fá mér kaffi niður á kaffi
stofu með vélstjórunum og föður
mínum.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá
labbaði ég með bróður mínum
yfir í Crossfit stöðina sem við
hjúin rekum með okkar bestu
vinum. Það tekur okkur sirka 30
sekúndur að labba yfir í stöðina
sem er hliðina á HH og því engin
afsökun fyrir mig að vera 106 kg.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Þá var ég að klára að slá inn
aflann af línubátunum hjá okkur
og ræða við bræður mína um
heimsmeistaramótið í Qatar.
Hvenær hætt og það síð
asta sem þú gerðir í vinnunni?
Heyrðu, ég kláraði að vinna rétt
fyrir klukkan fjögur til að ná í
peyjann á leikskólann. Konan var
að þjálfa í Crossfit stöðinni hjá
okkur og féll það í minn verka
hring að ná í Jr.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Eftir vinnu áttum við feðgar ansi
góða stund heima fyrir, lékum
okkur með bíla og gröfur og
hófum svo undirbúning fyrir
kvöldmat áður en Tísta kæmi
heim.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var steiktur fiskur
með sykruðum lauk, parmesan
kartöflum og heimatilbúnu
hrásalati. Það féll í minn hlut að
sjá um kvöldmatinn og gerði ég
það eftir fremsta megni.
Hvernig var kvöldið? Það var
einkar rólegt, fyrst klárað að
ganga frá eftir matinn. Lesið fyrir
púkann, komið honum niður
og svo sátum við konan að ræða
saman líðandi dag og horfðum
smá á sjónvarpið.
Hvenær fórstu að sofa? Við
vorum komin upp í rúm um ell
efu leytið.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég tók snögga sturtu og
tannburstaði mig. Það er iðu
lega það síðasta sem ég geri fyrir
svefn.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Þau forréttindi að fá að
starfa við það sem maður hefur
virkilega áhuga á í sinni heima
byggð.
Eitthvað að lokum? Kurteisi
kostar ekki neitt.