Skessuhorn - 23.11.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 202214
Hið íslenska bókmenntafélag hefur
gefið út bókina Halldór H. Jónsson
arkitekt, eftir Björn Jón Bragason
og Pétur H. Ármannsson. Bókin er
hin veglegasta, um 250 blaðsíður að
stærð og prýdd fjölda ljósmynda.
Davíð Oddsson skrifar aðfarar
orð. Í bókinni er farið yfir feril
og hönnun Halldórs Hauks Jóns
sonar (19121992) sem var Borg
firðingur og einn af merkustu arki
tektum landsins, fæddur og upp
alinn í Borgarnesi.
Sagt er frá uppruna Halldórs og
fjölskyldu, hönnun hans og helstu
byggingum sem hann teiknaði.
Halldór var einn fjögurra barna
Helgu Maríu Björnsdóttur frá
Svarfhóli í Stafholtstungum og
Jóns Björnssonar frá Bæ í Bæj
arsveit. Þau bjuggu í elsta húsi
Borgar ness um ríflega fjörutíu ára
skeið, þar sem kallað er Kaupangur
eða Suðurfrá við Suðurneskletta, í
nánd við gömlu verslunarhúsin sem
nú hýsa starfsemi Landnámsseturs.
Halldór bjó einn vetur í Borgarnesi
að loknu stúdentsprófi en fór þá
til náms í arkitektúr í Stokkhólmi.
Skilyrði fyrir inngöngu í skól
ann var reynsla af húsbyggingum
og hennar aflaði Halldór sér með
vinnu hjá móðurbróður sínum,
Kristjáni Fr. Björnssyni á Steinum
í Stafholtstungum. Meðal verkefna
sem Halldór kom að fyrir Krist
ján var uppsteypa prestsbústaðar
ins í Reykholti sem reistur var eftir
teikningu Guðjóns Samúelssonar.
Að loknu námi dvaldi Halldór um
sinn í Borgarnesi áður en hann setti
á fót teiknistofu í Reykjavík. Árið
1940 hóf hann búskap með Mar
gréti Þ. Garðarsdóttur og bjuggu
þau á Laufásvegi þar til 1951 að þau
fluttu í nýbyggt hús við Ægissíðu
sem Halldór hafði teiknað sjálfur.
Þess má geta að Garðar Gíslason
faðir Margrétar var bróðir Ing
ólfs Gíslasonar læknis í Borgarnesi
(19231941) og náfrændi sr. Einars
Friðgeirssonar, prests á Borg á
Mýrum til áratuga.
Eins og systkini sín öll bjó Hall
dór yfir listrænni taug og hönnun
hans býr yfir glæsileika og fegurð.
Höfundarverk hans er víða sýnilegt,
sérlega í Reykjavík og í Borgar nesi.
Af byggingum sem hann teiknaði
má nefna Borgarneskirkju, gamla
Kaupfélagsbústaðinn í Borgarnesi
(Skúlagata 21), Háteigskirkju og
Bændahöllina í Reykjavík. Hall
dór gegndi fjölmörgum trúnaðar
störfum um ævina og var stjórn
arformaður í fyrirtækjum eins og
Íslenska álfélaginu og Eimskipa
félagi Íslands.
Halldór og Margrét áttu bústað
við Hreðavatn sem þau nefndu
Skógarkot. Þar dvöldu þau löngum
stundum yfir sumartímann ásamt
þremur sonum sínum; Garðari,
Jóni og Halldóri Þór. Í bók
inni kemur fram að ferðalagið að
sunnan hafi alls tekið um fjórar
klukkustundir fyrir brú við Borgar
nes og daga Hvalfjarðarganga. Í
Skógarkoti var ýmislegt sýslað. Þar
kenndi Halldór sonum sínum að
renna fyrir silung líkt og hann hafði
alist upp við á sumrum hjá föðurafa
sínum og ömmu í Bæ, þeim Birni
Þorsteinssyni frá Húsafelli og Guð
rúnu Jónsdóttur frá Deildartungu.
gj
Fyrir skemmstu var útgáfu þriggja
bóka frá MTH fagnað í Penn
anum Eymundsson á Akranesi. Um
var að ræða ljósmyndabók Frið
þjófs Helgasonar „Svona er Akra
nes“ en þetta er fimmta bókin
sem hann sendir frá sér með ljós
myndum af Akranesi. Ásmundur
Ólafsson sendir núna frá sér sína
aðra bók með þáttum um sögu og
mannlíf á Skaganum. Nefnist hún
„Á slóðum Akurnesinga“ og geymir
17 greinar. Fyrri bók Ásmundar; „Á
Akranesi“ er uppseld. Loks er það
svo fyrsta smásagnasafn Kristjáns
Kristjánssonar sem heitir „Sorprit
og fleiri sögur“ en Kristján hefur
áður sent frá sér ljóðabækur, skáld
sögur og leikrit.
mm
Þrjár nýjar bækur frá MTHútgáfu
Höfundarnir þrír; Ásmundur Ólafsson,
Friðþjófur Helgason og Kristján
Kristjánsson árituðu bækur sínar í
Pennanum Eymundsson á Akranesi.
Ljósm. mþ.
Kápur bókanna sem MTH útgáfa sendir frá sér í haust.
Bók um Halldór H. Jónsson arkitekt
Halldór H. Jónsson ásamt systkinum
og foreldrum í Borgarnesi, Helga
María og Jón fyrir miðju. Börn
þeirra f.v: Björn Franklín, Guðrún
Laufey (Blaka), Selma og Halldór
Haukur. Ljósm. Héraðsskjalasafn
Borgarfjarðar.
Borgarneskirkja. Ljósm. mm. Bændahöllin í Reykjavík sem bráðlega fær nýtt hlutverk á vegum Háskóla Íslands.
Ljósm. gj.
Borgarnes, Kaupangur (Suðurfrá) í forgrunni hægra megin myndar. Ljósm. gj. Bókin er prýdd fjölda mynda. Hér má sjá ljósmynd af gömlu bæjarhúsunum og
kirkjunni í Bæ. Ljósm. varðveitt á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar.