Skessuhorn - 23.11.2022, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2022 19
Hunda- og kattahreinsun 2022
Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarnes 28. nóvember í áhaldahúsi að Sólbakka 4.
o Fyrir hunda: kl. 16:30 - 19:00.
o Fyrir ketti kl. 19:15 - 20:15.
Umsjón: Gunnar Gauti Gunnarsson
Hvanneyri 29. nóvember í "gamla BÚT-húsinu" kl. 16:30 - 19:00.
Umsjón: Edda Þórarinsdóttir.
Bifröst 30. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:30 - 18:00.
Umsjón: Gunnar Gauti Gunnarsson.
Borgarnes 5. desember í áhaldahúsi að Sólbakka 4 kl. 17: 00 -
19:00.
Umsjón: Þorgerður Bjarnadóttir
Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.
Lögum samkvæmt skulu allir hundar, kettir og kanínur vera örmerkt og skráð í
miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is
Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega, ormahreinsunin
er innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins. Óskráð gæludýr eru velkomin en skrá
þarf dýrin í gegnum þjónustugátt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Gæludýraeigendum er frjálst að nýta þjónustu annarra dýralækna og skila
vottorði fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar.
Upplýsingar um gæludýrahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu
Borgarbyggðar. Þá er hægt að hafa samband í síma 433-7100 eða í
gegnum netfangið thjonustuver@borgarbyggd.is.
Oddný Þórunn Bragadóttir er
eigandi verslunarinnar Kristý í
Hyrnu torgi í Borgarnesi. Verslunin
hóf starfsemi sína að Skúlagötu 13,
þar sem Kaffi Kyrrð starfar í dag.
Kristý fagnar 30 ára afmæli á þessu
ári en Oddný hefur í gegnum tíð
ina verið eljusöm við framleiðslu
og innflutning á vörumerkjum.
Hún var m.a. fyrst til að selja vöru
merkið Victoria‘s Secret á Íslandi
og selur hluta af þeim vörum enn
í dag. Hún framleiðir einnig sín
eigin ilmvötn og hóf nýverið að
hanna og framleiða leggingsbuxur.
„Ég framleiði sjálf tvö vöru
merki, Toakens of Iceland og
Donna Nord. Toakens of Iceland
inniheldur hálsmen, ilmvötn, silki
slæður og blásna kertastjaka úr
gleri, þetta eru allt ólíkir hlutir sem
er bara skemmtilegt. Ilmvötnin
eru t.d. framleidd á Ítalíu sérstak
lega fyrir mig og eftir mínu höfði.
Svo hef ég átt þetta merki Donna
Nord, eða Kona norðursins, síðan
fyrir hrun en ég var á tímabili að
sauma mínar eigin buxur undir
þessu merki en hætti því svo. Nú er
ég byrjuð aftur og er að fikra mig
áfram með þetta merki. Buxurnar
eru framleiddar í Brasilíu núna og
eru frekar þykkar, ég er með tvö
efni og fjórar útfærslur af þeim. Svo
er ég að bæta smám saman við en
ég er t.d. að prófa að láta framleiða
fyrir mig peysur. Þetta er kannski
hugsað meira hversdags en einnig
hægt að nota buxurnar í íþróttum.
Ég er orðin vön að vinna með
fyrirtækjum út um allan heim og
er alltaf að prófa eitthvað. Það er
mikil vinna á bak við þetta og mjög
margt sem aldrei gengur upp. Það
er t.d. stórt verkefni að finna fram
leiðendur sem gott er að vinna
með. Maður sendir hugmyndir og
teikningar og fær margar prufur
áður en maður samþykkir það sem
fer svo á endanum í framleiðslu.
Aðalatriðið er að gefast ekki upp en
það er margt hægt ef viljinn er fyrir
hendi,“ segir Oddný þegar blaða
maður Skessuhorns kíkti til hennar
í Kristý.
sþ
Esjuskálinn Baulu, verslun og
veitingastaður við þjóðveg eitt í
Borgarfirði, hefur nú hafið sölu á
lausasölulyfjum. Lyfjastofnun veitir
heimild fyrir sölu lausasölulyfja ef
20 kílómetrar eða meira er í næsta
apótek. „Við erum með hefðbundin
verkjalyf, hálstöflur og svo eitthvað
fyrir börn eins og stíla og fljótandi
verkjalyf. Ég stefni samt að því að
fá líka bólgueyðandi, ofnæmislyf og
fleira sem er gott að geta gripið í
á ferðinni. Ég var bara svo oft að
lenda í því að fólk kom og bað
um verkjalyf, þá gaf ég fólki lyf úr
birgðunum sem ég er með hérna
fyrir starfsfólkið mitt,“ segir Fríða
Birna Þráinsdóttir eigandi Esju
skálans í Baulunni og á Kjalarnesi.
„Ég hafði reynt að fá þetta sam
þykkt fyrir Esjuskálann á Kjalarnesi
fyrir ári síðan en sú starfsemi er of
nálægt Mosfellsbæ þar sem apótek
er til staðar en það þurfa víst að vera
meira en 20 km í næsta apótek. Svo
datt mér í hug að athuga með þetta
hér og fékk bara strax jákvætt svar
frá Lyfjastofnun þar sem meira en
20 km eru í næsta apótek í Borgar
nesi.“ sþ
Lausasölulyf nú
fáanleg í Esjuskálanum
Baulunni
Fríða Birna Þráinsdóttir, eigandi reksturs Esjuskálans í Baulunni við lausasölulyf
jastandinn.
Framleiðir ilmvötn og leggings í Kristý
Oddný Þórunn Bragadóttir, eigandi Kristý, með buxur úr vörumerkinu Donna Nord sem hún hóf nýlega að framleiða.
Toakens of Iceland, annað vörumerki Oddnýjar, inniheldur m.a. ilmvötn, hálsmen
og silkislæður.