Víkurfréttir - 18.01.2023, Side 8
„Ég á bara ekki til orð. Vá, hvað ég er glöð,“ sagði Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur og eigandi
Reykjanesapóteks, sem Víkurfréttir hafa valið Suðurnesjamann ársins 2022. Víkurfréttir hafa í rúma
þrjá áratugi staðið fyrir vali á Suðurnesjamanni ársins. Fyrstur til að hljóta nafnbótina var útgerðar-
maðurinn Dagbjartur Einarsson úr Grindavík en hann var Suðurnesjamaður ársins 1990. Sigríður Pálína,
eða Sigga Palla, hefur rekið Reykjanesapótek frá árinu 2017 og getið sér gott orð á meðal Suðurnesja-
fólks fyrir einstaka þjónustulund.
Lesendur Víkurfrétta, sem tóku
þátt í valinu á Suðurnesjamanni
ársins, voru á einu máli um það að
Sigga Palla sé að veita mikla og góða
þjónustu í apótekinu sínu. Apó
tekum Reykjanesapóteks fjölgaði
reyndar um eitt á nýliðnu ári en
útibú frá Hólagötunni hefur verið
opnað á Fitjum. Sigga Palla stendur
reyndar áfram vaktina á Hólagötunni
og þar er hún í samstarfi við aðra
lyfjafræðinga Reykjanesapóteks að
veita neyðarþjónustu utan venju
legs opnunartíma – og venjulegur
opnunartími á Hólagötunni er sam
ræmdur að vakt heilsugæslulækna
á HSS, þannig að þegar fólk kemur
af læknavaktinni getur það sótt
ávísuð lyf í apótekið hjá Siggu Pöllu.
Hún hlaut líka styrk frá Heilbrigðis
ráðuneytinu á síðasta ári fyrir það
sem kallað er „lyfjastoð“ – og þrátt
fyrir langar vaktir í apótekinu hefur
Sigga Palla tíma fyrir hestana sína
sem hún sinnir tvisvar á dag, alla
daga vikunnar.
Hvött til að fara í lyfjafræði
Sigga Palla er Njarðvíkingur,
stundaði sitt grunnskólanám í Njarð
víkurskóla og fór þaðan í Fjölbrauta
skóla Suðurnesja. „Eftir fjölbraut var
spurning hvert ætti að stefna og ég
var hlynntari raungreinunum. Svein
björn Gissurarson, sem er einu ári
eldri en ég, fór í lyfjafræði og hann
spurði mig af hverju ég færi ekki bara
í lyfjafræði. Hún væri alveg eins og
efnafræði og líffræði. Það er eigin
lega honum að þakka að ég fór í lyfja
fræðinámið.“
Eftir nám starfaði Sigga Palla bæði
í apóteki og á rannsóknarstofu. Hún
bjó og starfaði einnig í Noregi í tæpan
áratug. „Ég var formaður Lyfjafræð
ingafélags Íslands um tíma og það
háði mér að kunna ekki að rífast á
norðurlandamáli. Á þessum tíma
vantaði svo lyfjafræðinga í Noregi,
þannig að ég sló til árið 2004 og var
með annan fótinn þar í níu ár. Kom
heim á milli en hef þrisvar sinnum
verið apótekari í Noregi og opnað
nýtt apótek þar. Það er góður saman
burður að hafa starfað í Noregi og
einnig mikil endurmenntun.“
Er einhver munur á því að vera
apótekari í Noregi eða á Íslandi?
„Regluverkið er alveg það sama og
þjóðirnar eru líkar og alveg hægt að
spegla sig í því. Það sem mér fannst
skemmtilegast þegar ég kom heim
árið 2017, en þá var ég að koma frá
Drammen, að ég vildi opna apótek
sem var líkt því sem ég var að gera í
Noregi. Þannig erum við með okkar
apótek, þar sem lyfjafræðingurinn er
frammi og veitir góð ráð þannig að
fólk noti lyfin rétt.“
Vildi nýta menntunina á
Íslandi eftir Noregsdvöl
Áður en Sigga Palla opnaði
Reykjanesapótek árið 2017 hafði
hún unnið bæði hjá Lyf & heilsu og
Lyfju. Þegar hún er spurð hvort það
hafi alltaf verið draumurinn að opna
eigið apótek, svarar hún því til að ef
hún hefði verið hárgreiðslumeistari
hefði hún opnað hárgreiðslustofu.
Það lá því beinast við að nýta
menntunina sem lyfjafræðingur
og opna apótek. Það var samt ekki
draumurinn um eigið apótek í Njarð
víkum sem dró Siggu Pöllu heim til
Íslands. Það var íslenski hesturinn.
Hún var og er með hesta sem hún
sinnir alla daga. Dagurinn byrjar
alltaf í hesthúsinu á Mánagrund þar
sem hestunum er gefið og það má
einnig segja að vinnudeginum ljúki í
hesthúsinu, því hrossunum er gefið
tvisvar á dag. Sigga Palla deilir hest
húsi með ungri hestakonu og er þar
með tvö hross. Hún fer á hestbak
nokkrum sinnum í viku og í hesta
ferð á sumrin. Hún segist alveg vilja
geta varið meiri tíma með hestunum.
„Þegar maður kynnist hestunum þá
verða þetta svo miklir vinir manns.
Það er ígildi þess að fara til góðs sál
fræðings að fara í hesthúsið,“ segir
Sigga Palla og brosir.
Apótekið náttúruvænt og grænt
„Ég var ekki með neinar sér
stakar væntingar þegar ég opnaði
Reykjanesapótek árið 2017. Ég
hugsaði aðallega um að að búa til
vinnu fyrir mig og þá sem yrðu að
vinna með mér. Viðtökurnar hafa
bara verið svo góðar. Við höfðum
strax að leiðarljósi að hafa apótekið
náttúruvænt og grænar áherslur.
Björn, sonur minn, er prímusmót
orinn í þessari grænu stefnu okkar.
Við nýttum allt sem við gátum notað
og allt sem við kaupum nýtt er með
þessum grænu formerkjum. Það á
einnig við um þær vörur sem við
erum að selja, við reynum að hafa
þær á þessum græna grunni.“
Lyfjastoð styrkt af
heilbrigðisráðuneytinu
Reykjanesapótek er ekki hluti af
stærri keðju en flest apótek landsins
tilheyra keðjum apóteka. Sigga Palla
segir að hún hafi svo sem ekki mikið
verið að velta því fyrir sér að hella
sér í samkeppni við keðjurnar. Það
hafi verið lyfjafræðilega ráðgjöfin
sem hafi ráðið för m.a. verið höfð að
leiðarljósi þegar Reykjanesapótek
opnaði. Eins og Víkurfréttir greindu
frá síðasta sumar var Reykjanesapó
teki veittur þriggja milljóna króna
styrkur frá heilbrigðisráðuneytinu
til að ráðast í tilraunaverkefni sem
miðar að því að auka öryggi lyfja
meðferðar og bæta meðferðarheldni
sjúklinga.
Þjónusta sem þessi er þekkt er
lendis undir heitinu „new medicine
service“ en hefur fengið heitið „lyfja
stoð“ á íslensku. Markmiðið er að
draga úr rangri lyfjanotkun, tryggja
öruggari innleiðingu meðferðar hjá
sjúklingum, bæta lyfjaöryggi þeirra
sem nota mörg lyf og auka öryggi
lyfjanotkunar þegar um áhættusöm
lyf er að ræða. Rannsóknir benda
til að mest þörf á leiðsögn og upp
lýsingagjöf sé á fyrstu vikum lyfja
meðferðar – á fyrstu dögunum til að
stuðla að meðferðarheldni og um
mánuði eftir að meðferð hófst til að
veita sjúklingi upplýsingar ef fram
hafa komið einhver vandamál tengd
lyfjagjöfinni.
Tilraunaverkefni Reykjanesapó
teks miðast við að bjóða sjúklingum
sem eru að hefja lyfjameðferð þátt
töku í verkefninu. Viðkomandi er
boðið viðtal við lyfjafræðing apó
teksins einni til tveimur vikum eftir
meðferð og svo annað viðtal þremur
til fimm vikum síðar. Samstarf er
við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
(HSS) sem á þess kost að vísa sjúkl
ingum á þessa þjónustu.
„Þetta hefur bara gengið vel, því
móttökurnar hafa verið svo góðar og
ég er mjög þakklát fyrir það.“
Ekkert nema sjálfsagt
að hlaupa til
Þú fékkst sterk viðbrögð strax og
þú opnaðir árið 2017. Þú hefur
verið að veita mjög góða þjónustu
og m.a. utan opnunartíma.
Grænt Reykjanesapótek fékk frábærar viðtökur, ekki síst fyrir mikla þjónustu.
Fékk styrk til að vinna að tilraunaverkefni sem miðar að því að auka öryggi
lyfjameðferðar og bæta meðferðarheldni sjúklinga.
SIGRÍÐUR PÁLÍNA ARNARDÓTTIR SUÐURNESJAMAÐUR ÁRSINS 2022
Sjálfsagt að hlaupa til
ef það vantar þjónustu
utan opnunartíma
Hvernig var að vera apótekari í Covid-faraldrinum?
„Það var áhugavert. Í vísindum var þetta spennandi en á sama tíma
ógnvænlegt. Við í Reykjanesapóteki tókum þátt í blöndun bóluefna með
heilsugæslunni. Lyfjafræðingar og lyfjatæknar apóteksins blönduðu bólu
efni og samstarfið við HSS var mjög gott. Apótekið var alltaf vel sótt
hreinsað og við vorum með vaktaskipti þar sem við pössuðum að hittast
ekki á milli til að halda apótekinu opnu. Við þurftum reglulega að fara í
sóttkví en við vorum mjög lánsöm og þurftum aldrei að loka apótekinu.
Það önduðu svo allir léttar þegar bóluefnið kom í hús.“
Þegar Sigga Palla er beðin um að meta Covidtímabilið, þá segir hún
að það hafi skilað kærleika. Allir hafi staðið svo vel saman. Samstaðan
var stórmerkileg og það var mikilvægt að þeir sem yrðu veikir myndu
ná bata.
Covid skilaði kærleika
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfjafræðingur og eigandi Reykjanesapóteks, sem Víkurfréttir hafa valið Suðurnesjamann ársins 2022.
Magdalena, Björn og Sigga Palla.
Sigga Palla með sínum besta vini úr Skagafirðinum í hesthúsinu á Mánagrund.
8 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM