Víkurfréttir - 01.01.2023, Side 4
Mikilvægt að Hinsegin Plútó
hafi sitt húsnæði til umráða
Velferðarráð Reykjanesbæjar tekur
undir með forsvarsfólki Hinsegin
Plútó um mikilvægi þess að þau
hafi sitt húsnæði til umráða þar
sem hægt er að tryggja betur öryggi,
vellíðan og traust ungmenna sem
sækja stuðning í félagsstarfið. Hin-
segin Plútó hefur fengið aðstöðu í
88 húsinu undanfarin ár sem hefur
gert starfinu kleift að dafna. Þar
blandast ungmennin við önnur sem
sækja aðra viðburði í húsinu, sem
undir öðrum kringumstæðum væri
frábært, en í tilfelli ungmenna sem
treysta sér ekki til að opinbera hver
þau í raun og veru eru – getur það
verið erfiðara en orð fá lýst.
Málefni Hinsegin Plútó, félags-
starfs fyrir hinsegin ungmenni, voru
til umfjöllunar á fundi velferðarráðs
Reykjanesbæjar á dögunum þar sem
Guðrún María Þorgeirsdóttir frá
Hinsegin Plútó mætti á fundinn og
kynnti starfið.
Hinsegin Plútó sem stofnað var
30. maí 2018 er félagsstarf fyrir
ungmenni á aldrinum tólf til átján
ára og hefur verið starfandi í um
fimm ár. Það sem dreif Ragnar Birki
Bjarkarson og Guðrúnu Maríu Þor-
geirsdóttur áfram að stofna þessi fé-
lagasamtök var hugsjón og drífandi
kraftur. Hvernig á að fræða barnið
sitt þegar ungir krakkar eru að
finna sig og máta lífið og tilveruna?
Á fyrsta kvöldið komu sjö ungmenni
og með tímanum sem liðinn er frá
stofnun félagsins hefur forsvarsfólk
tekið á móti allt að tuttugu ung-
mennum á einu kvöldi. Hinsegin
Plútó þjónustar öll Suðurnesin og
hafa ungmenni frá Reykjanesbæ,
Vogum, Grindavík og Suðurnesjabæ
sótt kvöldin.
Samkvæmt greinargerð er til-
gangur Hinsegin Plútó að halda úti
félagsmiðstöð fyrir hinsegin ung-
menni á Suðurnesjum og vinna að
málefnum hinsegin samfélagsins. Fé-
lagið leitast við að vera með fræðslu
og skemmtikvöld fyrir hinsegin ung-
menni og aðstandendur þeirra eftir
efnum og áhuga auk þess að vinna
að réttindum alls hinsegins fólks á
svæðinu, sem með félaginu kýs að
starfa.
Öll vinna sem framkvæmd er af
Hinsegin Plútó hefur verið unnin í
sjálfboðavinnu. Velferðarráð telur
mjög mikilvægt að starf af þessu tagi
sé í boði á svæðinu þar sem tækifæri
gefst fyrir ungmenni að eignast jafn-
ingjagrundvöll og finna stað sem þau
tilheyra frjáls í okkar samfélagi hér á
Suðurnesjum. Rík áhersla er lögð á
þá staðreynd að hinsegin ungmenni
eru í aukinni hættu á útskúfun, hat-
ursfullri orðræðu og minni stuðningi
frá jafnöldrum, vinum og jafnvel fjöl-
skyldu. Það er á ábyrgð hvers sam-
félags að koma í veg fyrir mismunun
og óréttlæti.
Velferðarráð tekur undir með for-
svarsfólki Hinsegin Plútó um mikil-
vægi þess að þau hafi sitt húsnæði til
umráða þar sem hægt er að tryggja
betur öryggi, vellíðan og traust ung-
menna sem sækja stuðning í félags-
starfið. Hinsegin Plútó hefur fengið
aðstöðu í 88 húsinu undanfarin ár
sem hefur gert starfinu kleift að
dafna. Þar blandast ungmennin við
önnur sem sækja aðra viðburði í
húsinu, sem undir öðrum kringum-
stæðum væri frábært, en í tilfelli
ungmenna sem treysta sér ekki til
að opinbera hver þau í raun og veru
eru – getur það verið erfiðara en
orð fá lýst. Með því að tryggja Hin-
segin Plútó eigin aðstöðu getur for-
svarsfólk betur búið um öryggi ung-
menna og fengið tækifæri til að gera
umhverfið sitt regnbogavænt með
hlýjuna að leiðarljósi. Ungmenni í
okkar bæjarfélagi sem mögulega
leita svara við spurningum sínum
um eigin kynhneigð eiga að geta gert
það á hlutlausum stað, það er mikil-
vægt í okkar fjölmenningarsamfélagi.
Aðstaða fimleikadeildar er ekki nógu góð
og stór iðkendahópur án þjálfarastyrks
Fimleikadeild Keflavíkur hefur sent
íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
nesbæjar erindi og vill koma á fram-
færi að deildin nýtur ekki þjálfara-
styrks fyrir stóran iðkendahóp hjá
deildinni sem eru á aldrinum tveggja
til sex ára. Að auki vill fimleika-
deildin koma á framfæri að núver-
andi aðstaða er ekki nógu góð fyrir
starfsemi deildarinnar og skorar á
bæjaryfirvöld að bregðast við hið
fyrsta.
Íþrótta- og tómstundaráð tekur
undir áhyggjur deildarinnar og
minnir á bókun ráðsins frá 166.
fundi ráðsins en þar segir: „Íþrótta-
og tómstundaráð er sammála um að
auka þurfi fjármagn til málaflokksins
til að geta staðið undir metnaðar-
fullu íþrótta- og tómstundastarfi í
Reykjanesbæ og borið okkur saman
við sambærileg sveitarfélög.“
Erindi fimleikadeildarinnar er
vísað annars vegar til mannvirkja-
nefndar sem og til rekstrarnefndar
sem ljúka eiga störfum í mars.
Samráð við börn vegna skipu-
lagsmála í Reykjanesbæ
Reykjanesbær stendur að inn-
leiðingu Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna og verða þannig hluti
af verkefninu Barnvæn samfélög.
Unnið er að því að allir starfs-
menn Reykjanesbæjar fái fræðslu
um Barnasáttmálann og réttindi
barna í gegnum rafrænan fræðslu-
vettvang UNICEF á Íslandi. Það er
mikilvægt að heyra raddir barna í
sveitarfélaginu og sáu starfsmenn
umhverfis- og framkvæmdasviðs
tækifæri í að auka samráð við börn í
skipulagsvinnu. Þetta kemur fram á
vef Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær og JeES arkitektar
vinna nú að nýju deiliskipulagi
fyrir Hafnargötu og var ákveðið að
samráð yrði við nemendur í Myllu-
bakkaskóla, þar sem deiliskipulags-
svæði tilheyrir þeirra skólahverfi.
Markmiðið var að fræða börn um
skipulagsmál og hvernig þau geta
haft áhrif á nærumhverfi sitt. Í sam-
ráði er leitast eftir sjónarmiðum og
börnin láti sínar skoðanir í ljós.
Nemendur í 3. bekk og 6. bekk í
Myllubakkaskóla fóru í vettvangs-
ferðir, 30. nóvember og 2. desember
2022, með verkefnastjóra um-
hverfismála Reykjanesbæjar. Til-
gangur ferðanna var að skoða um-
hverfi á og við Hafnargötu. Nem-
endur fengu fræðslu og upplýsingar
um skipulagsmál í ferðinni og var
samtal tekið á nokkrum stöðum, s.s.
á gatnamótum Hafnargötu og Skóla-
vegar, við opið svæði við sjávarsíðu,
á gatnamótum Hafnargötu og Aðal-
götu og við verslanir á Hafnargötu.
Nemendur unnu verkefni með
tillögum fyrir nýtt deiliskipulag og
afhentu nemendur í 3. bekk skipu-
lagsfulltrúa ábendingar í ráðhúsi
Reykjanesbæjar og ábendingar frá
6. bekk bárust í tölvupósti frá um-
sjónarkennara. Tillögur voru unnar
á fjölbreyttan hátt; í spjaldtölvum, á
blaði, í sögu, í frásögn og teikningum.
Unnin var samantekt á tillögum sem
var kynnt fyrir nemendum. Þar var
útskýrt fyrir börnum hvað hægt
sé að hafa áhrif á og hvernig unnið
verður úr tillögum þeirra.
Fjölbýli með allt að 36 íbúðum að Vallargötu 9–11
JeES arkitektar ehf. f.h. lóðarhafa
óska eftir að heimild til að vinna
breytingu á deiliskipulagi Reykjanes-
bæjar vegna reitsins Vallargata 7–11
sem afmarkast af Vallargötu, Aðal-
götu og Klapparstíg.
Á fundi umhverfis- og skipu-
lagsráðs er fagnað mögulegri upp-
byggingu á þessum mikilvæga reit.
Ráðið heimilar að unnin sé tillaga að
breytingu á deiliskipulagi í samráði
við skipulagsfulltrúa. Ekki er gerð
krafa um skipulagslýsingu vegna
þess að um er að ræða breytingu á
deiliskipulagi.
Áætlað er að færa núverandi hús á
Vallargötu 9 á lóðina Vallargata 7 og
reisa fjölbýli á Vallargötu 9–11 með
allt að 36 íbúðum. Hæð fjölbýlis-
hússins er að hámarki tvær hæðir
með risi og bílakjallara. Öll bílastæði
innan lóðar verða í bílakjallara,
gestastæði er staðsett utan lóðar
austanmegin við lóðina. Kirkjuvegur
10–14 mun hafa aðgengi að sameigin-
legum garði Vallargötu 9–11, með
mögulegum púttvelli.
Við Vallargötu og Aðalgötu er
hugsanlegur möguleiki á tveggja
til þriggja hæða byggingu í takt við
aðlæga byggð við Kirkjuveg. Bíla-
stæðum væri komið fyrir í bíla-
geymslum neðanjarðar að hluta.
Möguleiki á nýjum lóðum fyrir minni
hús sem laga sig að eldra byggðar-
mynstri.Svona er hugmynd JeES arkitekta um uppbyggingu á reitnum.
2016 börn nýttu sér hvatagreiðslur í Reykjanesbæ
Alls nýttu 2016 börn sér hvatagreiðslur í Reykjanesbæ árið 2022, sem
er 58,1% af heildarfjölda barna sex til átján ára í Reykjanesbæ. Nýtingin
hefur aukist um 7,2 % frá 2019. Bæjaryfirvöld ákváðu fyrir skemmstu
að bæta við hvatagreiðslum fyrir fjögurra til fimm ára börn sem tók
gildi 1. janúar síðastliðinn.
Töluverð aukning hefur orðið á nýtingu erlendra barna á hvata-
greiðslunum en 9,79% nýttu sér þær árið 2017 samanborið við 28,4%
árið 2022. „Við erum á réttri leið en betur má ef duga skal,“ segir í
gögnum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar.
Þá segir jafnframt. „Saman skulum við hvetja alla til að stunda
íþróttir og tómstundir í skipulögðu starfi og hvetja foreldra til að nýta
hvatagreiðslur sveitarfélagsins. Óumdeilt er að gildi forvarna er mikið
þegar litið er til þátttöku barna í kröftugu íþrótta- og tómstundastarfi
í Reykjanesbæ.“
4 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM