Víkurfréttir - 01.01.2023, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 01.01.2023, Qupperneq 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson. Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Ökuskóli allra landsmanna Finndu næsta námskeið inn á www.aktu.is Allir réttindaflokkar Verkleg kennsla í boði víða um land Bókleg kennsla á netinu MEIRAPRÓF Fjarkennsla Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu HEYRN.IS Stóru línubátarnir nánast þeir einu sem hafa getað verið á veiðum Janúarmánuður er búinn að vera ansi góður, veðurfarslega séð, en núna síðustu viku hafa veðurguð- irnir heldur betur látið til sín taka og má segja að það hafi verið stans- laus bræla í viku. Svo til einu bátarnir sem hafa geta verið á veiðum eru stóru línu- bátarnir en þeir eru búnir að vera á veiðum utan við Sandgerði og þar hafa líka verið nokkrir 29 metra togarar. Veiðin hefur verið nokkuð góð hjá þeim og af stóru línu- bátunum er Valdimar GK kominn með 404 tonn í fimm löndunum og er, þegar þetta er skrifað, næstafla- hæsti línubátur landsins. Sighvatur GK 375 tonn í þremur, Páll Jónsson GK 343 tonn í þremur og Fjölnir GK 339 tonn í þremur. Minni bátarnir hafa ekkert geta róið núna síðan 22. og 23. janúar en veiðin var nokkuð góð hjá þeim þangað til þeir stoppuðu. Kristján HF, sem hefur verið að landa í Sandgerði, Grindavík og Hafnarfirði en að mestu í Sandgerði, er með 155 tonn í ellefu róðrum, Óli á Stað GK 137 tonn í nítján og að mestu í Grindavík en hann er sá bátur sem hefur oftast allra farið á sjóinn núna í janúar. Gísli Súrsson GK 128 tonn í átta róðrum og hefur báturinn verið að veiðum í Breiðafirðinum og landað á Ólafsvík, Margrét GK 127 tonn í fjórtán, mest í Sandgerði, Sævík GK 118 tonn í þrettán, mest í Þorlákshöfn, Daðey GK 104 tonn í þrettán, mest í Grindavík, Vésteinn GK 91 tonn í átta, allt í Grindavík, og Hulda GK 72 tonn í ellefu, mest í Grindavík. Veiðin hjá dragnótabátunum var góð og var Sigurfari GK með 155 tonn í þrettán róðrum en núna er hann orðinn stopp í fjórar vikur, því báturinn var sviptur veiðileyfi í fjórar vikur vegna brottkasts sem Fiskistofa myndaði með dróna þegar hann var við veiðar á Hafnar- leir – en það er ekki langt frá landi og hægt að fljúga frá landi með dróna þangað út eftir. Ég sjálfur hef flogið dróna þarna út og flaug þegar Ísey EA var við veiðar. Var ég þá staddur á Hafnar- bergi, flaug að Ísey EA og náði að mynda aðeins bátinn þar, það voru 4,1 kílómetrar. Siggi Bjarna GK með 134 tonn í róðrum, Benni Sæm GK 129 tonn í fjórtán og Aðalbjörg RE 34 tonn í fimm, allir að landa í Sandgerði. Hjá netabátunum þá ber það hæst að nýi Erling KE er komin á veiðar og þegar þessi pistill er skrif- aður hefur báturinn landað um 10 tonnum í tveimur róðrum. Báturinn er reyndar ennþá í lit og útliti eins og hann var þegar hann var keyptur en ráðgert er að setja bátinn í slipp eftir að vertíðinni lýkur. Erling KE er búinn að vera með netin sín utan við Garðskaga og Sandgerði, þar hefur Kap VE líka verið með netin sín en Kap VE veiðir í sig, eins og hefur verið greint frá hérna, og landar í Vest- mannaeyjum, reyndar landaði Kap VE 42 tonnum í Hafnarfirði í síð- asta róðri. Af minni netabátunum þá er Maron GK með 63 tonn í þrettán róðrum, Halldór Afi GK 12 tonn í fimm, Hraunsvík GK 6,9 tonn í tveimur og Grímsnes GK 87 tonní átta. Grímsnes GK er að mestu að eltast við ufsann og af þessum afla er ufsi 71 tonn. Í næsta pistli mun ég bera saman janúar árið 2023 og 1993. Þrjátíu ára munur og það er æði merki- legt að bera þessi tvö ár saman, því ótrúlega margt hefur breyst á þessum tíma. aflafrÉttir á SuðurNeSJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Fjáröflunartónleikar Krafts á Park Inn í Reykjanesbæ Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú fyrir árvekni- og fjár- öflunarátaki. Liður í átakinu er að fara hringinn í kringum landið og vera með Lífið er núna tónleika. Tónleikar verða á Park Inn hótel- inu í Reykjanesbæ föstudaginn 3. febrúar. „Við ákváðum að taka rúntinn hringinn í kringum landið með tónleika en tilgangurinn með því er að kynna starfsemi okkar og minna fólk á að njóta augna- bliksins. Fólk sem greinist með krabbamein þarf oft að sækja meðferð til Reykjavíkur þó það sé búsett úti á landi og því er gott að vita hvert þau geta leitað þegar þau eru í bænum,“ segir Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Krafts. Tónleikaferðalagið átti að hefjast 30. janúar en veðurguð- irnir eru augljóslega jafnhrifnir af sterka appelsínugula litnum og Kraftur skartar svo því þurfti að hætta við þá tónleika. „Við brunuðum því bara beint á Höfn og blésum þar til fyrstu Lífið er núna tónleikaveislunnar. Svo höldum við áfram hringinn en við endum veisluna í Reykjavík á baráttudegi gegn krabbameini 4. febrúar með tónleikum í Iðnó,“ segir Stefán enn fremur. Hægt verður að kaupa miða við inn- ganginn á alla tónleikana sem eru á landsbyggðinni og kostar 2.000 kr. inn. Einnig er hægt að tryggja sér miða á tónleikana í Iðnó, á Tix.is eða kaupa við innganginn en miðaverð á þá er 3.500 kr. Að sjálfsögðu verður einnig hægt að kaupa Lífið er núna húfu Krafts á svæðinu. Tónleikadagskráin: 31. janúar - Hafið - Höfn í Hornafirði - Stebbi Jak og hljómsveit. 1. febrúar - Egilsbúð Neskaupstað - Stebbi Jak og hljómsveit, Ína Berglind og Coney Island Babies. 2. febrúar - Græni Hatturinn - Akureyri - Stebbi Jak og hljómsveit, Lost, Angurværð og Dopamine Machine. 3. febrúar ­ Hótel Radisson Park Inn ­ Reykjanesbæ ­ Stebbi Jak og hljómsveit. 4. febrúar - Iðnó - Reykjavík - Briet, Sycamore Tree, Stebbi Jak og hljómsveit, Anya Shaddock, Grunge rokkmessa, Elín Hall, Langi Seli og Skuggarnir, Unnsteinn og Hermigervill. verður flutt í Stapa 22. febrúar Óperufélagið Norðuróp og Tónlistar- skóli Reykjanesbæjar munu flytja Sálumessu eftir Giuseppe Verdi í Stapa, Hljómahöll í Reykjanesbæ miðvikudaginn 22. febrúar. Sálu- messan er um það bil 90 mínútna langt tónverk fyrir fjóra einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og er ein allra þekktasta sálumessa tónbók- menntanna. Verkið er flutt árlega víða um heim en afar sjaldan hér á landi. Á þessum tónleikum verður verkið flutt af 35 manna sinfóníu- hljómsveit, 60 manna kór einsöngs- menntaðra söngvara, langt kominna söngnemenda, tónlistarkennara, þjálfaðra áhugasöngvara og fjórum einsöngvurum. Stapi í Hljómahöll er glæsilegur tónleikasalur með stórt svið, um 400 sæti í sal og á svölum og hljómburður er sérlega góður. Stjórnandi: Jóhann Smári Sæv- arsson. Konsertmeistari: Una Svein- bjarnardóttir. Einsöngvarar: Hallveig Rúnars- dóttir, sópran, Guja Sandholt, mezzosópran, Jóhann Friðgeir Valdi- marsson, tenór og Keith Reed, bassi. Óperufélagið Norðuróp stofnaði fyrir nokkrum árum óperustúdíó í Reykjanesbæ í samvinnu við Tón- listarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll, með uppfærslu á óper- unni Brúðkaup Fígarós eftir W. A. Mozart. Verkefnið var opið öllum söngvurum og söngnemendum Tónlistarskólans sem og öðrum efni- legum söngvurum á Suðurnesjum og annars staðar af landinu. Aðstaðan er góð í glæsilegri Hljómahöll. Eftir mjög vel heppnaða og fjöl- sótta uppfærslu Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar á söngleiknum Fiðlarinn á þakinu eftir J. Bock sem sýndur var í Stapa, Hljómahöll, haustið 2019 og þann mikla áhuga þeirra sem tóku þátt í því viðamikla verkefni og eftir vel heppnaðan flutning á Mozart Requiem vorið 2022, þá hefur verið ákveðið að halda samstarfi Óperufé- lagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar áfram og ráðast í flutning þessa magnaða verks, Sálu- messu eftir Giuseppe Verdi. Sálumessa eftir Verdi Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar ráðast í stórvirki: 6 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.