Víkurfréttir - 01.01.2023, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 01.01.2023, Qupperneq 15
VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is Bílanaust Hafnargötu 52, 260 Reykjanesbæ S. 421 7510 Opið Mán - fös 8 - 18 Lau 10 - 14 Átta Keflvíkingar unnu til verð- launa í taekwondo á RIG Átta Keflvíkingar kepptu í taekwondo á Reykjavik Int­ ernational Games (RIG) um helgina og unnu þeir allir til verðlauna. Mótið þótti heppnast vel en dómgæsla og umgjörð mótsins var til fyrirmyndar. Mótið var liður í undirbúningi Keflvíkinga fyrir sterkt alþjóðlegt mót sem fram fer í Belgíu í mars en tæplega tuttugu kepp­ endur frá Keflavík munu taka þátt í því. Næsti viðburður hjá deildinni er bikarmót í febrúar. Hér er árangur Keflvíkinga á mótinu: Snorri Páll Sigurbergsson - brons Karl Dúi Hermannsson - brons Ylfa Vár Jóhannsdóttir - silfur Þorsteinn Helgi Atlason - silfur Magnús Máni Guðmundsson - silfur Ragnar Zihan Liu - gull Amir Maron Ninir - gull Daníel Arnar Ragnarsson - gull Fjöldi verðlauna og lágmark á Norðurlandamót unglinga Sundfólk ÍRB náði fínum árangri á Reykjavíkurleikunum um síðustu helgi. Árangurinn verður að teljast sérstaklega góður í ljósi þess að nærri helmingur þess sundfólks sem skráð var til leiks lá heima í veikindum og gat ekki keppt. Þeir sem unnu til verðlauna voru: Árni Þór Pálmason: Gull í 50 metra skriðsundi í unglingaflokki. Austéja Savickaité: Silfur í 200 metra bringusundi í unglingaflokki og brons í 100 metra bringusundi í unglingaflokki. Elísabet Arnoddsdóttir: Gull í 50 metra flugsundi í unglinga- flokki, gull í 100 metra flugsundi í unglingaflokki, gull í 400 metra fjórsundi í unglingaflokki, silfur í 200 metra fjórsundi í unglinga- flokki og silfur í 100 metra skrið- sundi í unglingaflokki. Fannar Snævar Hauksson: Gull í 50 metra baksundi. Freydís Lilja Bergþórsdóttir: Gull í 200 metra flugsundi unglinga, brons í 200 metra fjórsundi ungl- inga og brons í 200 metra baksundi unglinga. Guðmundur Leo Rafnsson: Gull í 200 metra baksundi og silfur í 100 metra baksundi. Ástrós Lovísa Hauksdóttir: Náði lágmörkum á NÆM (Norður- landamót unglinga) í 100 metra baksundi. Þorsteinn Helgi og Amir Maron. Magnús Máni og Ragnar Zihan. Elísabet Arnoddsdóttir vann þrenn gull- og tvenn silfurverðlaun. Árni Þór. Austéja Savickaité. Snorri Páll og Karl Dúi. Ylfa Vár. Daníel Arnar. Sara Rún, Anna Ingunn og Ísabella Ósk valdar Benedikt Guðmundsson, landsliðs­ þjálfari kvenna í körfuknattleik, hefur valið liðið sitt fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni Euro­ Basket Women´s 2023 sem fara fram núna í febrúar og eru þrír leik­ menn af Suðurnesjum í hópnum að þessu sinni. Leikið verður nú í febrúar, heima og að heiman, og þar með klárast þessi undankeppni. Mótherjar Ís- lands í riðlinum eru Spánn, Ung- verjaland og Rúmenía. Ísland hefur leikið gegn Rúmeníu tvisvar og Ung- verjalandi hér heima í nóvember 2022, fyrir rúmu ári síðan. Ísland náði í einn sigur, í leiknum í nóv- ember síðastliðinum á heimavelli gegn Rúmeníu og hafði að auki inn- byrðissigur eftir tvo leiki. Leikir í febrúar verða gegn Ung- verjalandi og Spáni. Fyrst verður leikið á útivelli gegn Ungverjalandi þann 9. febrúar í Miskolc og svo hér heima gegn Spáni í seinni leiknum. Heimaleikurinn fer fram í Laugar- dalshöll sunnudaginn 12. febrúar kl. 19:45 og verður í beinni á RÚV2. Gengið framhjá Huldu Björk og Birnu Valgerði í valinu? Í Subway Körfuboltakvöldi var landsliðsvalið rætt og sérfræðingum fannst að gengið hafi verið framhjá Grindvíkingnum Huldu Björk Ólafs- dóttur í valinu. Ólöf Helga Pálsdóttir (fyrrverandi þjálfari Grindvíkinga) benti á að hún væri með mun hærra meðaltal en Emma Sóldís Svan Hjör- dísardóttir og er miklu betri varnar- maður. „Hún er alltaf að dekka bestu sóknarmennina,“ sagði Ólöf Helga. Þáttastjórnandinn, Hörður Unn- steinsson, spurði hvort það væri réttmætt að aðeins ein úr toppliði Keflavíkur væri valin en Ólöf sagðist hafa heyrt að Birna Valgerður hafi ekki gefið kost á sér en þá skýringu kallði Hörður eftirá skýringu. „Þetta er klassísk eftirá skýring því af hverju var nafn hennar ekki á list- anum,“ sagði Hörður þegar hann vísaði í fréttatilkynningu KKÍ þar sem þrír fjarverandi leikmenn voru nafngreindir. Birna Valgerður Benónýsdóttir. Hulda Björk Ólafsdóttir. vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.