Víkurfréttir - 08.03.2023, Qupperneq 7
Þar sem að febrúar mánuður
er búinn er rétt að líta yfir og sjá
hvernig gekk í höfnunum á
Suðurnesjunum. Samtals komu
á land 3197 tonn í 212 löndunum í
Grindavík, Sandgerði og Keflavík/
Njarðvík.
Rétt er að hafa í huga að afli
frystitogaranna er ekki með í
þessum tölum og eins og við vitum
þá er ekki eitt einasta gramm af
loðnu sem kemur á land í þessar
hafnir þrátt fyrir að loðnan sé að
veiðast rétt fyrir utan Grindavík og
Sandgerði.
Lítum á hafnirnar og byrjum
í Reykjaneshöfnum. Þær eru
Keflavík og Njarðvík. Í raun má
skipta aflanum á tvær hafnir þar.
Í Keflavík komu á land alls 36,4
tonn, landað af Halldóri Afa GK á
netum og Líf NS á færum.
Í Njarðvík komu á land alls 351,1
tonn í 43 löndunum, og var það allt
frá þremur bátum, Maroni GK,
Grímsnesi GK og Erlingi KE sem
var með 182 tonn í sautján róðrum.
Sandgerði sem var með flestar
landanir komu á land alls 892 tonn
í 79 löndunum og þar var
Margrét GK aflahæst á línu
með 184 tonn í tólf róðrum. Siggi
Bjarna GK var með 130 tonn í sjö,
Benni Sæm GK með 123 tonn í átta
róðrum. Sigurfari GK með 84 tonn
í fimm og Maggý VE 71 tonn í sex
róðrum, allir á dragnót. Hópsnes
GK var með 69 tonn í átta róðrum,
Geirfugl GK með 65 tonn í sex, Óli
á Stað GK 52 tonn í fimm og Daðey
GK með 37 tonn í þremur róðrum,
allir á línu.
Mestur afli kom á land í
Grindavík eða 1918 tonn í 72
róðrum og þar af landaði Sturla
GK mest eða 383 tonnum í sjö
löndunum á trolli. Sighvatur GK
með 278 tonn í tveimur róðrum
á línu, Áskell ÞH með 217 tonn í
þremur róðrum og Vörður ÞH með
199 tonn í þremur, báðir á trolli.
Páll Jónsson GK var með 155
tonn í einum túr og Fjölnir GK
með 111 tonn í einum, báðir á línu.
Auður Vésteins SU kom að austan
og landaði í Grindavík 89 tonnum
í átta róðrum. Vésteinn GK með 87
tonn í sjö róðrum, Sævík GK með
79 tonn í sex róðrum. Óli á Stað
GK með 63 tonn í sex róðrum.
Ef við berum þennan febrúar
mánuð árið 2023 við febrúar
mánuð árið 1993, eða fyrir 30 árum
síðan þá er ansi athyglisvert að sjá
muninn. Þá komu á land samtals
5952 tonn í 986 löndunum og inn
í þessari tölu er enginn loðna eða
síld en árið 1993 var loðnu líka
landað í Grindavík og Sandgerði.
Í Keflavík/Njarðvík komu á land
alls 1359 tonn í 172 róðrum eða um
1000 tonnum meiri afli en árið
2023. Þar var Stafnes KE hæstur
með 178 tonn í sextán róðrum.
Særún KE með 137 tonn í fjórum,
Erling KE 137 með tonn í sextán og
Albert Ólafsson KE með 131 tonn
í fjórum. Stafnes KE og Erling KE
voru á netum, hinir á línu, á eftir
þeim kom svo Happasæll KE með
118 tonn í nítján róðrum.
Í Sandgerði sem þá var lang-
stærsta löndunarhöfn landsins,
komu á land alls 2119 tonn í 530
löndunum og bátarnir voru ansi
margir eða alls 92 sem lönduðu
þar. Þar var hæstur Arney KE með
126 tonn í þremur róðrum, Freyja
GK með 81 tonn í 10, Sigþór ÞH
með 76 tonn í níu og Björgvin á
Háteig GK sem var á dragnót með
73 tonn í 11. Auk þess var togarinn
Ólafur Jónsson GK með 242 tonn
í þremur löndunum í Sandgerði í
febrúar 1993.
Í Grindavík komu á land alls
2476 tonn í 284 löndunum og þar
var Kópur GK hæstur með 243
tonn í fimm róðrum á línu. Gaukur
GK var með 235 tonn í 16, Geirfugl
GK 198 tonn í 16 róðrum, báðir á
netum. Hrungnir GK var með 168
tonn og Skarfur GK með 155 tonn,
báðir í þremur róðrum og báðir á
línu með beitningavél.
Eins og sést þá geta hafnirnar á
Suðurnesjunum núna árið 2023
nokkuð vel við unað þrátt fyrir
mjög slæma tíð en munurinn aftur
á móti við árið 1993 er ansi mikill.
Hafnargötu 29. Reykjanesbæ
40 50
60 70
% %
% %
afsláttur afsláttur
afsláttur afsláttur
LAGERSALA
SKILAFRESTUR VEGNA STJÓRNARKJÖRS 2023
Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja, auglýsir
uppstillinganefnd félagsins frest til að skila inn tillögum vegna stjórnarkjörs
á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 18.apríl 2023.
Í kjöri er formaður í stjórn kosinn til tveggja ára einnig tveir aðalmenn í stjórn kosnir til
tveggja ára og tveir varamenn kosnir til eins árs.
Tillögum skal skila til Uppstillinganefndar STFS, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ, eigi síðar
en 15. mars 2023. Tillögum skal fylgja: nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang
og heiti vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.
Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um.
Uppstillingarnefnd
aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Ekki eitt einasta
gramm af loðnu
Skrifstofuhúsnæði
óskast á Suðurnesjum. Allt kemur til
greina. Endilega hafið samband á
mradambaldvins@outlook.com
Óska eftir einbýlishúsi
í Keflavík
Er að leita eftir einbýlishúsi í góðu standi
með að a.m.k. 4-5 svefnherbergjum.
Vinsamlega hafið samband í
síma 777 5656 eða sendið upplýsingar
um eignina á gunnlaugur@fastko.is
Öll tölublöð Víkurfrétta frá 1980 og til dagsins
í dag eru aðgengileg átimarit.is
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 7