Víkurfréttir - 08.03.2023, Blaðsíða 8
Kynning á þróunaráætlun hefur
verið mikil vinna hjá ykkur.
Hvað getur þú sagt okkur um
niðurstöður?
„Við erum búin að vera í nokkur
mörg ár að undirbúa þetta og það
hefur verið aðdragandi áður þar
sem koma þurfti á samkomulagi
milli þessara aðila sem stýra hér
skipulagi og öðru á svæðinu. Við
höfum verið að vinna að þessu
með hönnuðum, sem unnu hug-
myndasamkeppnina hjá okkur,
allt síðasta ár. Við höfum verið
að hitta hagsmunaaðila, fyrir-
tæki, íbúa og fleiri. Þetta er núna
komið á þann stað að við viljum
sýna lokaafurðina, þar sem við
erum að sýna þau þróunarsvæði
sem við teljum vera álitlegust í
kringum Keflavíkurflugvöll.“
Hvað er það helsta sem þið eruð
að fara að gera? Eruð þið að
fara að laða að fjárfesta og hvað
er á þessum svæðum sem er
svona spennandi að ykkar mati?
„Það sem er spennandi er ná-
lægðin við risastóran alþjóðaflug-
völl. Sömuleiðis erum við með
stórskipahöfn í nágrenni við flug-
völlinn. Við erum með frábært
samfélag sem við erum að byggja
á og erum með nálægð við annað
frábært samfélag sem er höfuð-
borgarsvæðið. Við erum með fullt
af landi og þú finnur þetta ekki
víða við flugvallarsvæði. Það eru
ótrúlega margir kostir við Kefla-
víkurflugvallarsvæðið.
Við erum að fara að laða að
fjárfesta og við erum líka að fara
að laða að íbúa. Á sama tíma
erum við að fara að stilla af hvað
þarf til í samfélaginu ef þetta
verður að veruleika, ef flugvöll-
urinn heldur áfram að stækka og
ef þetta tekst hjá okkur, þá eru
frábærir tímar framundan. Sam-
félagið verður líka að vera tilbúið.“
Hvað sjáið þið fyrir ykkur
gerast?
„Við höfum líka verið að máta
inn atvinnutækifæri sem við
teljum að eigi heima á þessu
svæði, teikna upp lóðir og svæði.
Við Helguvíkurhöfn erum við
að sjá að geta skipt því svæði upp
í það sem er léttari iðnaður, eitt-
hvað sem tengist framtíð flugs,
grænir iðngarðar og svo fram-
vegis. Okkur langar að markaðs-
setja það svæði sem risastóran
grænan iðngarð, þar sem hring-
rásarhagkefið stýrir ákvarðana-
töku um hvaða fyrirtæki koma
inn, þannig að þau séu að vinna
með afurðir hvers annars. Þá
erum við komin með þannig
svæði sem er á mörkum flugvallar
og hafnar og hefur þannig for-
skot umfram önnur svæði. Við
viljum láta umheiminn vita af
því. Sömuleiðis erum við að tefla
fram svæðum fyrir íbúðabyggð á
Ásbrú. Við erum einnig að vinna
með svæði eins og í kringum
Aðaltorg í Reykjanesbæ þar sem
farin er af stað mikil þróun. Við
erum að leggja til annað sem gæti
átt heima á þeim stað samhliða
þeirri þróun sem þegar er að eiga
sér stað.“
Hvað er markmiðið með þessu?
„Upphaflega markmiðið var
að ná utan um skipulagsmál og
þróunarmál sem eru á höndum
margra aðila. Það var ekki verið
að fullnýta þau tækifæri sem við
sáum fyrir okkur að gætu verið
hér á svæðinu. Þróunarsvæði voru
ekki að njóta þess að vera þéttir
kjarnar og við erum að ná utan
um það. Samstaða sveitarfélaga
og skilaboðin til þeirra sem við
ætlum að reyna að laða að eru
gríðarlega mikilvæg, að það séu
allir saman á bakvið þetta verk-
efni. Við erum saman að láta alla
vita af því að hér eru spennandi
tækifæri.“
Hvað er næsta skref ?
„Næsti fasi í okkar tilveru er að
láta vita að þessu. Við erum með
skipulagðar kynninar innanlands
og þá erum við að fara á alþjóð-
legar ráðstefnur, þar sem við
erum á sviði og básum að tala við
fjárfesta og tala við önnur flug-
vallarsvæði til að láta vita af tæki-
færunum hér.
Það er okkar hlutverk núna
að markaðssetja svæðið, að nota
þau gögn sem við höfum verið að
vinna. Við erum með mjög skýrar
hugmyndir um hvað getur verið
hérna og nú ætlum við að láta vita
af því.“
Hvað er það helst sem þið erum
spennt fyrir að sjá koma?
„Við erum spennt fyrir því sem
snýr að matvælaframleiðslu, inn-
flutningi og útflutningi. Stilla
betur af hvað hægt er að gera
með Helguvíkurhöfn og Kefla-
víkurflugvöll. Við erum með mjög
spennandi þróunarsvæði á Ásbrú
þar sem gert er ráð fyrir íbúða-
byggð og höfum teiknað upp það
svæði. Við erum einnig að horfa á
starfsemi á Ásbrú sem er að njóta
góðs af því að vera nálægt flug-
hlaði á austurhlaði flugvallarins.
Á svæðinu milli Ásbrúar og flug-
vallarins sjáum við fyrir okkur að
þróa byggð á sama tíma og verið
væri að bjóða upp á frábærar lóðir
fyrir flugvallartengda starfsemi og
þekkingarsamfélag, þá er á sama
tíma verið að skýla byggðinni frá
ásýnd hávaða og svo framvegis
sem kemur frá flugvellinum.“
n Fimm þúsund ný og fjölbreytt störf.
n Ótrúlega margir kostir við Keflavíkurflugvallarsvæðið.
Kadeco kynnir framsækna þróunaráætlun til ársins 2050
Nýsköpun og sjálfbærni í nýrri
framtíðarsýn við Keflavíkurflugvöll
„Það er ekkert annað svæði á Íslandi sem er að vinna á sama hátt og við erum að gera hérna með reykjanesbæ, suðurnesjabæ
og flugvellinum. Nálægðin við keflavíkurflugvöll gefur gríðar mikla möguleika á uppbyggingu þróunarsvæðis sem myndar saman
vistkerfi sem einkennist af samvinnu og samspili iðnaðar, samgangna, nýsköpunar og sjálfbærrar byggðaþróunar. Þúsundir
nýrra og fjölbreyttra starfa verða til í verkefni sem mun kosta 130 milljarða króna og gera suðurnesin að einu mest spennandi
svæði landsins á næstu árum,“ segir Pálmi Freyr randversson, framkvæmdastjóri kadeco, Þróunarfélags keflavíkurflugvallar
en þróunaráætlun félagsins til ársins 2050 verður kynnt í vikunni
Þróunaráætlunin nær til
ársins 2050 en fyrstu
skrefin verða tekin strax.
Má þar nefna þróun grænna
iðngarða við Helguvíkurhöfn,
bættar almenningssam-
göngur á milli flugvallar og
höfuðborgar, tilraunir með
eftirspurnardrifnar almenn-
ingssamgöngur og uppbygg-
ing íbúða á Ásbrú svo fátt sé
nefnt. Þróunaráætlunin var
unnin í afar umfangsmiklu
samráði með hagaðilum á
svæðinu og víðar sem skilar
afurð sem er í takti við vænt-
ingar samfélagsins.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Í Helguvík og Bergvík er gert ráð
fyrir þróun grænna iðngarða.
viðtal við Pálma Frey verður í suðurnesja-
magasíni og aðgengilegt hér frá 9. mars.
8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM