Víkurfréttir - 08.03.2023, Síða 9

Víkurfréttir - 08.03.2023, Síða 9
Í kynning- unni á sínum tíma nefnduð þið dróna af stærri gerðinni sem þróast hratt. Er það eitthvað sem þið sjáið fyrir ykkur hér á Keflavíkurflugvelli? „Drónaflug er eitthvað sem er að stækka í heiminum og mögu- leikar til flutninga á varningi og fólki með þeim. Við sjáum fyrir okkur lóðir á Ásbrú með aðgengi að flughlaði. Einnig varðandi flugvélaíhluti og framtíðar orku- gjafa. Hér gæti verið frábært þekkingarsamfélag um framtíð flugs.“ Hvað með starfsemi bílaleiga við flugvallarsvæðið. Var hún skoðuð í þessu verkefni ykkar? „Við tókum okkur nokkur hlut- verk sem okkur fannst að þyrfti að líta til. Það hefur verið áhuga- vert að vinna með ráðgjöfunum sem héldu kannski að þeir væru að fara að þróa nýja flugvallar- borg en þeir þurftu líka að fara að telja bíla- leigubíla og taka stöðuna á þeim á svæðinu. Eins og við þekkjum er þeim dreift víða um Suðurnes. Við erum með áætl- anir hvar best er að sjá þessa starf- semi fyrir sér stækka og dafna á sjálfbærari hátt frekar en að hver fyrir sig sé að finna sér einhver bílastæði við fyrirtæki eða í sveitarfélögunum. Við erum með grunnpælingar sem hægt er að nota.“ Hvað með samgöngur og hvernig koma þær inn í þessa áætlun? „Samgöngur eru eitt af stóru málunum. Við höfum verið að skoða tengingar við höfuðborgar- svæðið með almenningssam- göngum. Eins höfum við verið að skoða tengingar hér á svæðinu við sveitarfélögin frá flugvell- inum. Einnig aðra samgöngu- máta. Það er mikil bílaumferð. Það þarf að bæta öryggi og flæði á Reykjanesbrautinni. Það er fullt af hjólreiðafólki sem kemur til landsins og hjólar meðfram Reykjanesbraut og það er auð- veldlega hægt að gera úrbætur á því kerfi. Við erum með skoðun á því hvernig hægt er að koma okkur lengra, þannig að við séum ekki stöðugt að bíða eftir lestinni. Ef hraðlest verður eitthverntíman niðurstaðan, þá verðum við aldrei fyrir henni í því sem við erum að leggja til. Við erum að leggja til ákveðnar úrbætur í fjöldasam- göngum milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins. Það er hægt að fara í mjög aðgengilegar lausnir eins og legg frá flugstöð á Reykjanesbraut og svo tvöföldu kerfi til höfuðborgarsvæðisins sem myndi gjörbreyta upplifun og þjónustu með almennings- samgöngum. Við erum ekki að tefla fram lest í okkar vinnu. Við erum að sjá raunhæfar lausnir til skemmri tíma án þess að vera fyrir.“ Hvað með samgöngur frá sveit- arfélögunum á Suðurnesjum og að flugstöðinni? „Við erum að sjá fyrir okkur nýjan kjarna þróast utanum Aðal- torg og við Reykjanesbrautina þar. Við erum líka að leggja til leiðir til að breyta og bæta al- mennings samgönguþjónustu innan svæðisins með t.d. rútum sem þú getur hringt í ef þú ert í strjálli byggðum. Við erum líka að leggja til þétt þróunarsvæði ut- anum Aðaltorg sem gerir það að flugvöllurinn fær betri tengingu við byggðina. Þar ertu kominn með beina leið inn í Reykjanesbæ og líka stóra stoppistöð almenn- ingssamgangna, hvort sem þú ert að koma frá Suðurnesjabæ eða annarsstaðar frá. Það þróunar- svæði hefur gríðarlega mögu- leika.“ Hvaða þýðingu mun þetta hafa fyrir nærsamfélagið? „Þetta mun hafa þá þýðingu að við erum komin með eitthvað í hendurnar sem við getum látið vita af. Við á þessu svæði stöndum saman á bak við þetta. Við höfum forskot á aðra og getum sýnt fram á að samfélögin hérna vilja þessa þróun og getum farið með þetta út í umheiminn á þann hátt. Á sama tíma er eitt af okkar hlutverkum að fjölga körfunum fyrir eggin á svæðinu og fjölga atvinnutækifærum. Auðvitað er flugvöllurinn langstærsti atvinnu- veitandinn og það sem tengist flugvellinum. Okkur langar að fá meira út úr flugvellinum og margþætta þjónustu. Við viljum líka sjá fjölbreyttari störf, þannig að ef einhver skakkaföll verða að þau hafi ekki jafn dramatísk áhrif á þetta samfélag í nágrenni flug- vallarins. Samfélagið er fyrst og fremst að fá fjölbreyttari atvinnu- tækifæri og tímastillta áætlun miðað við hvað samfélagið þarf að koma með á sama tíma. Ef þessi fjölgun verður á atvinnutæki- færum og íbúum á þessu svæði, þurfa sveitarfélögin, ríkið og fleiri að vera tilbúin með að veita þá þjónustu sem þarf, eins og skóla, heilsugæslu og svo framvegis.“ Getur þú nefnt einhverjar tölur? Þetta er viðamikil áætlun. „Hún er það og það þarf að stilla hana af miðað við upp- byggingaráætlanir flugvallarins. Það sem við sjáum fyrir okkur er að hér geti orðið til hérna um 400.000 fermetrar sem munu byggjast hér upp. Þetta eru um 5.000 störf sem verða til og við erum að horfa til langs tíma eða til ársins 2050. Þá erum við að horfa á 700 störf í uppbyggingu í gegnum allt ferlið. Þetta eru risastórar tölur. Kostnaðurinn við þessa heildar uppbyggingu sem við áætlum er rúmlega 130 milljarðar króna.“ Hvaðan munu þeir peningar koma? „Þeir koma frá fjárfestum. Ef að opinberir aðilar ætla að fjárfesta í því sem að þarf til hérna kemur það frá ríkinu eða sveitarfélögum. Þetta eru allra helst fjárfestar sem við viljum fá á svæðið, bæði inn- lendir og erlendir.“ Þetta er veruleg áskorun fyrir sveitarfélögin að taka á móti þessu. Það er ekki ólíklegt að íbúafjölgun, sem hefur verið fordæmalaus, haldi áfram. Þessi áætlun kallar á fleira fólk. „Það er afskaplega líklegt. Það er líka það sem við höfum verið að reyna að komast að, hvað sveitar- félögin þurfa að vera tilbúin með. Flugvöllurinn skapar gríðarlega mörg störf ár frá ári og tengist fjölda ferðamanna sem koma til landsins og þetta er viðbót við það. Á sama tíma er þetta mikil fjölbreytni og ný tækifæri.“ Það hefur oft verið talað um mikla einhæfni starfa á svæðinu. „Það er það sem við viljum fara eftir er meiri fjölbreytni, þekking og sköpun sem tengist þessari uppbyggingu.“ Sjálfbærni er lykilorð hjá ykkur. „Sjálfbærni er grunnstefið í allri okkar áætlun. Það er hugmynda- fræðin á bak við þessa uppbygg- ingu, hvað varðar umhverfismálin og iðngarðinn sem er verið að leggja til. Helguvíkurhöfn byggir á sjálfbærninni. Einnig sjálfbær vöxtur til framtíðar við uppbygg- inguna sem er verið að leggja til, að það sé ekki alltaf verið að elta skottið á sér.“ Þið hafið kynnt þetta sem sam- starf margra aðila, sveitar- félaga, KADECO og ríkisins, auk fleiri aðila. Hvernig hefur það gengið? „Það hefur gengið heilt yfir vel. Það hefur auðvitað verið tekist á um ýmsa hluti. Það eru allskonar hagsmunir undir í þessu ferli. Það er algjör samstaða um það sem við erum að tefla fram. Það er mjög hollt að fara í gegnum þessi samtöl og samstarfið er einstakt. Það er ekkert annað svæði á Ís- landi sem er að vinna á sama hátt og við erum að gera hérna með þessum tveimur sveitarfélögum og flugvellinum.“ Ertu bjartsýnn á viðbrögð og að ykkur verði ágengt? „Við erum mjög bjartsýn, sér- staklega í ljósi þess að við erum að finna fyrir áhuga nú þegar, bæði frá aðilum sem vilja þróa svæði fyrir íbúabyggð á Ásbrú, aðilum sem leita að lóðum til að byggja hótel. Við erum í samtölum við allskonar fyrirtæki, fjárfestingar- sjóði og einkafyrirtæki sem eru að sýna þessu svæði mikinn áhuga. Í beinu framhaldi af þessari kynn- ingu hér heima erum við að fara á alþjóðlegar ráðstefnur og láta vita af þessu og höfum enga trú á öðru en þessu verði sýndur mikill áhugi.“ Þið metið það svo að hnattstaða Keflavíkurflugvallar sé gríðar- lega sterkur punktur? „Já og tengingar frá Kefla- víkurflugvelli í austur og vestur. Auðnin og svæðið í kringum flug- völlinn er gríðarlega spennandi og höfnin þar rétt við. Græn orka og Ísland í fararbroddi þar. Það eru hugmyndir varðandi rafelds- neyti fyrir flugvélar og við getum verið í fararbroddi í svo mörgu. Það eru ofsalega spennandi tímar framundan.“ „Þetta eru um 5.000 störf sem verða til og við erum að horfa til langs tíma eða til ársins 2050. Þá erum við að horfa á 700 störf í uppbyggingu í gegnum allt ferlið. Þetta eru risastórar tölur. Kostnaðurinn við þessa heildar uppbyggingu sem við áætlum er rúmlega 130 milljarðar króna.“ Á tölvugerðri myndinni má sjá þessi þrjú svæði sem eru í aðalhlutverki í nýrri þróunaráætlun í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Í Helguvík og Bergvík er gert ráð fyrir þróun grænna iðngarða. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.