Víkurfréttir - 08.03.2023, Síða 11
Bjartmar Guðlaugsson, tónlistarmaður og hljómsveit hans, Bergris-
arnir, munu halda tónleika laugardagskvöldið 11. mars í tónleikasal
veitingastaðarins Fish house, Gígnum.
Bjartmar þarf væntanlega ekki
að kynna fyrir neinum en hann
hefur verið afkastamikill laga- og
textahöfundur síðan 1977. Einn
Suðurnesjamaður er í Bergris-
unum, Júlíus Freyr Guðmundsson.
„Pabbi heitinn og Bjartmar
voru miklir vinir og ég hef þekkt
Bjartmar síðan ég man eftir mér.
Árið 2010 fæddist þessi hugmynd
með að stofna hljómsveit og Berg-
risarnir urðu til. Bjartmar þekkti
gítarleikarann Birki Rafn Gíslason
og hann þekkti trommarann Egil
Rafnsson. Daði Birgisson kom
síðan inn í dæmið sem hljómborðs-
leikari en Arnar Gíslason er tekinn
við kjuðunum af Agli. Við gáfum
út eina plötu og stefnum á að gefa
út aðra á þessu ári, við erum búnir
að gefa út fjögur lög og fleiri eru
á leiðinni. Við höfum verið dug-
legir að spila að undanförnu og
það er eitthvað framundan, vorum
á Sviðinu á Selfossi um daginn og
hlökkum til að koma á þennan
frábæra tónleikastað Kára á Fish
house, Gíginn. Mjög skemmtilegur
staður með frábæran hljómburð.
Við munum væntanlega flytja öll
þessi nýju lög en að sjálfsögðu
rennum við í gömlu góðu lögin,
Sumarliða o.fl, það væri glapræði
að sleppa þeim. Þá yrðu líklega
uppþot, það viljum við ekki,“ sagði
Júlíus að lokum.
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Bjartmar og Bergrisarnir
í Gígnum í Grindavík
„Það væri glapræði að taka ekki vinsælustu lögin,“ segir
Júlíus Freyr Guðmundsson, bassaleikari Bergrisanna.
„Við munum flytja þessi nýju lög Kristínar, við höfum mikla trú á
þeim og ekki síst textunum,“ segir Berta Dröfn Ómarsdóttir, kórstjóri
kvennakórsins Grindavíkurdætra en þær halda tónleika í Grinda-
víkurkirkju og syngja frumsamin lög eftir Kristínu Matthíasdóttur
12. mars.
Kvennakórinn Grindavíkur-
dætur, var stofnaður í árslok 2018
af þeim Bertu Dröfn Ómarsdóttur,
Sigurlaugu Pétursdóttur og Rósu
Ragnarsdóttur, Berta er kór-
stjórinn. Kórinn var ekki búinn að
vera lengi starfandi þegar COVID
skall á og eðlilega var ekki mikið
hægt að koma fram en andinn í
kringum starfið hefur verið það
góður að kórinn hélt velli í gegnum
heimsfaraldurinn. Hingað til hefur
hann flutt þekkt lög en kona að
nafni Kristín Matthíasdóttir frá
Grindavík, gaf sig á tal við Bertu
Dröfn og spurði hvort hún mætti
semja lög og texta sem Grinda-
víkurdætur myndu svo flytja. Þetta
kom Bertu talsvert á óvart þar sem
Kristín hafði ekki verið þekkt fyrir
sína tónlistarsköpun en hún ákvað
að hlusta á það sem Kristín hafði
samið og hingað eru þær komnar.
Berta segir að það hafi verið öðru-
vísi að æfa upp frumsamin lög en
gengið vel og dætur Grindavíkur
tilbúnar fyrir tónleikana.
„Kórinn byrjaði að æfa lögin á
fullum krafti í september og hafa
æfingar gengið vel. Við höfum
hingað til flutt þekkta slagara, inn
á milli tekið eitthvað lag sem var
heitt á þeim tímapunkti, eins og
lagið sem hafði unnið Eurovision.
Svo það var öðruvísi að fara æfa ný
og óþekkt lög en þetta hefur gengið
betur en ég þorði að vona fyrir-
fram. Þessi lög hennar Kristínar
eru svo melódísk með flottum lag-
línum, mjög aðgengilegt. Kórinn
er kominn í ótrúlega góða æfingu,
við höfum gert ótal hluti og því er
reynslan til staðar, þess vegna gekk
m.a. svona vel að æfa upp þessi
nýju lög.“
Miðasalan fyrir tónleikana fer
fram á Tix.is og hefur gengið vel
segir Berta. „Við ákváðum að hafa
miðasöluna á Tix og hún fór strax
vel af stað og ég hef mikla trú á
það verði uppselt. Grindavíkur-
kirkja tekur 240 manns í sæti svo
ég hvet alla til að tryggja sér miða
sem fyrst. Við munum bara flytja
þessi nýju lög Kristínar, við höfum
mikla trú á þessum lögum hennar
og ekki síst textum. Hún semur
um lífið og tilveruna vítt og breytt,
mikil jákvæðni en kemur líka inn
á sorg og missi og eins og ég segi,
ofboðslega fallegt hjá henni. Boð-
skapurinn er mjög fallegur, hann
talar í raun til okkar allra. Við
Grindavíkurdætur hlökkum mikið
til að halda þessa tónleika,“ sagði
Berta Dröfn að lokum.
Grindavíkurdætur
syngja lög eftir Kristínu
Matthíasdóttur
„Við munum bara flytja þessi nýju lög Kristínar, við höfum mikla
trú á þessum lögum hennar og ekki síst textum,“ segir Berta Dröfn
Ómarsdóttir, kórstjóri kvennakórsins Grindavíkurdætra.
Kristín Matthíasdóttir. Ingunn Hildur Hauksdóttir. Berta Dröfn Ómarsdóttir.
Deiliskipulagsbreyting
íþróttasvæðis í Grindavík
Kynning á vinnslutillögu
Í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir
árið 2023 samþykkti bæjarstjórn að
halda áfram með vinnu við breytingu á
deiliskipulagi íþróttasvæðis.
Deiliskipulagsvinnan hefur farið fram á
vettvangi bæjarráðs, skipulagsnefndar
og frístunda- og menningarnefndar.
Vinnslutillaga skipulagsins var kynnt á
íbúafundi þann 14. febrúar sl.
Íbúum hefur verið gefinn kostur á að
senda inn ábendingar við vinnslutil-
löguna í gegnum heimasíðu Grinda-
víkurbæjar.
Deiliskipulagssvæðið nær til íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og er unnið með það að
leiðarljósi að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum. Stærð svæðisins er 10,8 ha.
Markmið með skipulagsbreytingunni er þríþætt:
n Endurbæta fótboltavelli og aðstöðu um þá með nýrri lýsingu keppnis- og æfingarvallar
og tilfærslu vallanna. Keppnisvöllur er færður austar og æfingarvelli er snúið um 90 gráður,
svo hægt sé að samnýta ljósamöstur milli valla.
n Endurskipuleggja byggingareiti bygginga á svæðinu, þannig að lögun og hæð þeirra
skapi sem minnst skugga á svæðinu og séu aðlagandi í heildarásýnd svæðisins
og heimila niðurrif eldri bygginga.
n Auka útivistagildi svæðisins með nýjum göngustígum og útivistasvæðum austast á svæðinu.
Þeir sem vilja gera formlegar athugasemdir og/eða ábendingar varðandi vinnslutillögu
deiliskipulagsins skulu senda þær skriflega til skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar,
Víkurbraut 62, 240 Grindavíkurbæ eða í tölvupósti á atligeir@grindavik.is. Athugasemdir
og ábendingar skulu berast í síðasta lagi 19. mars 2023.
Vinnslutillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar á 2. hæð Víkurbrautar 62,
240 Grindavík ásamt því að vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Atli Geir Júlíusson,
skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 11