Víkurfréttir - 08.03.2023, Side 16

Víkurfréttir - 08.03.2023, Side 16
Mundi Verður þá aftur rigning á 17. júní? Menningarfull- trúi Reykjanes- b æ j a r ky n n t i f r a m k v æ m d 1 7. j ú n í h á - tíðarhalda fyrir Menningar- og a t v i n n u r á ð i Reykjanesbæjar á síðasta fundi. Á tímum heimsfaraldurs var sú leið farin að brjóta hátíðarhöldin upp og færa út í hverfi bæjarins. Ljóst er að slíkar aðgerðir eru bæði dýrari og flóknari í fram- kvæmd en að vera með dagskrá á einum stað. Í ljósi fjárhagsramma hátíðar- innar og til að nýta megi fjármagn með sem bestum hætti leggur ráðið til að framkvæmd hátíðarhaldanna fari aftur í fyrra horf og fari fram í skrúðgarðinum við Tjarnargötu. Menningar- og atvinnuráð hvetur jafnframt aðrar deildir og stofnanir til þess að koma að 17. júní dagskrá Reykjanesbæjar með beinum hætti. 17. júní í fyrra horfÁ 19. öld var Kotvogur í Höfnum eitt stærsta býli landsins. Þar bjuggu m.a. þrír forríkir útvegs- bændur mann fram af manni, þeir hétu allir Ketill og eru oftast nefndir Katlarnir þrír. Nú má segja að Kotvogur sé rústir einar eftir að ein af byggingum gamla eyðibýlisins splundraðist í óveðri á dögunum. Brakið er engum til yndisauka og þyrfti að fergja áður en næsta óveðurs- lægð grípur járnið og þeytir því yfir þorpið í Höfnum. Kotvogur er menningarminjar sem þyrfti að endurbyggja með tíð og tíma en þar mætti halda á lofti sögu Hafna sem er svo löng að þar höfðu menn komið sér upp útstöð löngu fyrir eiginlegt landnám Ís- lands. Myndin er af brakinu eins og það blasti við ljósmyndara blaðsins um liðna helgi. VF/Hilmar Bragi Kotvogur splundraðist í óveðri Sameinast í Suðurnesjabæ Rak augun í frétt þar sem bæj- arráð Suðurnesjabæjar hefur sam- þykkt að ráðist verði í vinnu við framtíðarsýn íþróttamála. Verk- efnið er gott og göfugt en óskandi væri að Suðurnesjabær tæki bara að sér að leiða framtíðarsýn fyrir Suðurnesin eins og þau leggja sig. Ekki bara íþróttamál í eigin sveitarfélagi. Ég tel nokkuð ljóst að eina vit- ræna framtíðarsýnin sé sú að sveit- arfélögin á Suðurnesjum sameinist undir nafni Suðurnesjabæjar. Það er löngu orðið ljóst að ekkert við nafn Reykjanesbæjar heillar enda komin næstum 30 ára reynsla á nafnið og það virkar ekki. Keflavík fengi heldur aldrei brautargengi sem nafn. Við sjáum nú fram á framtíðaruppbyggingu í húsnæði sem einu sinni átti að vera álver á mörkum þessara sveitarfélaga. Það væri nú gaman í framhjáhlaupi að vita hvað bestu vinir aðal þurftu að borga út sem hrakvirði fyrir tuga- milljarða framkvæmd sem fór í þrot. Spennandi dæmi. En framtíðarsýn. Vitræna. Án kísilvers. En með grænum iðnaði og ferðaþjónustu. Í sameinuðum Suðurnesjabæ. Sem nær alveg til Grindavíkur og að sameinuðu sveitarfélagi Voga og Hafnar- fjarðar. MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR Boeing E-6B Mercury þota bandaríska sjóhersins var á Keflavíkurflugvelli nýverið en áhöfn vélarinnar hitti Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og fleiri. Vélin gengur undir nafninu „Dómsdagsvélin“ eða „Do- omsday-plane“ og er fljúg- andi stjórnstöð. Vélin var í verkefnum í Evrópu. Vélin stundar einnig oft æfingar á norðurslóðum með banda- lagsþjóðum í NATO. Mynd af vélinni á Keflavíkurflug- velli var birt á fésbókarsíðu U.S. European Command (EUCOM). „Dómsdagsvélin“ á Keflavíkurflugvelli

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.