Leyfi til að elska - jan. 2023, Blaðsíða 5
Missir sem börn upplifa við útilokun frá foreldri
Jennifer J. Harman, Mandy Matthewson og Amy J. L. Baker
LY K I L O R Ð
FORELDRAÚTILOKUN FORELDRAÚTILOKUNARHEGÐUN SORG MISSIR EINANGRUN
Ú T D R ÁT T U R
Foreldraútilokun á sér stað þegar barn skipast í stöðu með öðru foreldrinu og hafnar
hinu án gildrar ástæðu vegna foreldraútilokandi hegðunar. Greinin veitir yfirsýn
yfir núverandi rannsóknir og kenningar um þann missi sem útilokuð börn upplifa.
Foreldraútilokandi hegðun hefur áhrif á tiltrú og traust barns, upplifun þess af
og minningar um útilokaða foreldrið og verður til að barn upplifir djúpstæðan
missi aftur og aftur. Þessi missir felur í sér missi einstaklingseðlis, upplifana í
æsku, stórfjölskyldunnar, samfélagsins og athafna og sambanda sem nauðsynleg
eru fyrir heilbrigðan þroska. Þar af leiðandi upplifa útilokuð börn oft stöðugan og
óljósan missi og þjást því ein og sér af sorg sem ekki er viðurkennd.
5
MISSIR SEM BÖRN UPPLIFA VIÐ ÚTILOKUN FRÁ FORELDRI JENNIFER J. HARMAN O.FL.