Leyfi til að elska - jan. 2023, Blaðsíða 8
sjálfsbjargarviðleitni, á borð við leik við jafnaldra
og einbeita sér að lærdómi og leik. Uppkomin börn
sem upplifa síðar að útilokunarforeldrið ber ábyrgð
á missi æsku sinnar upplifa einnig glötun sakleysis í
eðli sambands síns við útilokunarforeldrið (Bentley
og Matthewson, 2020).
MISSIR „NÓGU GÓÐS“ FORELDRIS
Með því að telja barninu trú um að útilokaða foreldrið
hafi aldrei elskað það né viljað, yfirgefið það eða sé
hættulegt, spillir útilokunarforeldrið því sem voru
heilbrigð tengsl við útilokaða foreldrið (Clawar og
Rivlin, 2014). Með tíð og tíma innleiðir barnið þessi
neikvæðu viðhorf og elur með sér sársauka, reiði og
gremju (Clawar og Rivlin, 2014). Barnið kemur til
með að neita öllum jákvæðum tilfinningum sem það
bar áður til útilokaða foreldrisins og upplifir það sem
„alslæmt“ samanborið við útilokunarforeldrið sem er
„algott“ (Bernet o.fl., 2020; Blagg og Godfrey, 2018). Á
endanum mótmælir það eða neitar samskiptum við
útilokaða foreldrið sem var áður skilgreint sem „nógu
gott“ (Lorandos og Bernet, 2020).
MISSIR STÓRFJÖLSKYLDUNNAR
Stórfjölskyldan veitir börnum ást, viðurkenningu,
andlega næringu og aðrar tegundir sálfélagslegs
stuðnings gegnum lífið (Haines o.fl., 2019). Hún
miðlar mismunandi hæfileikum og þekkingu
sem hjálpar barninu að vera frjótt og skapandi í
háttum á fullorðinsárum. Stórfjölskyldan er einnig
félagslegt tengslanet, uppspretta þekkingar og veitir
tilfinningalegan og félagslegan stuðning (Coleman,
1988; Wu o.fl., 2015). Útilokuð börn tapa oft þessum
mikilvægu samböndum vegna foreldraútilokunar
(eins og þegar komið er í veg fyrir heimsóknir ömmu
og afa) sem getur haft áhrif á allt líf þeirra (Sims
og Rofail, 2014; Haines o.fl., 2019). Þau missa af
tækifærum til að öðlast þekkingu og lífssýn sem gæti
haft áhrif á framtíðarmöguleika og stækkað félagslegt
tengslanet þeirra út fyrir nánustu fjölskyldu.
MISSIR SAMFÉLAGS
Að flytja í nýtt hverfi, á nýtt svæði eða í nýtt land er
foreldraútilokandi hegðun sem slítur eða minnkar
samband á milli barnsins og útilokaða foreldrisins
8
MISSIR SEM BÖRN UPPLIFA VIÐ ÚTILOKUN FRÁ FORELDRI JENNIFER J. HARMAN O.FL.