Breiðholtsblaðið - 01.01.2023, Blaðsíða 10
10 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2023
Síðumúla 27 | 588 4477 | www.valholl.is | Reykjavík | Snæfellsbæ | Höfn Hornafirði
Fagleg þjónusta - Vönduð vinnubrögð Nútímaleg, kraftmikil og framsækin fasteignasala
sem byggir á áratuga reynslu starfsmanna!
Anna F.
Gunnarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lista og innanhús Stílisti
892 8778
anna@valholl.is
Sturla
Pétursson
Löggiltur fasteignasali
899 9083
sturla@valholl.is
Snorri
Snorrason
Löggiltur fasteignasali
895 2115
snorri@valholl.is
Pétur Steinar
Jóhannsson
Aðstoðarm. fasteingasala
Snæfellsnesi
893 4718
petur@valholl.is
Heiðar
Friðjónsson
Sölustjóri, löggiltur
fasteignasali B.Sc
693 3356
heidar@valholl.is
Ingólfur Geir
Gissurarson
Framkvæmdastjóri, lögg.
fasteignasali, leigumiðlari
896 5222
ingolfur@valholl.is
Hildur
Harðardóttir
Lögfræðingur, löggiltur
fasteignasali, skjalagerð
897 1339
hildur@valholl.is
Hólmfríður
Björgvinsdóttir
Ritari
588 4477
ritari@valholl.is
Elín
Viðarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
695 8905
elin@valholl.is
Á g ú s t O r r i H j á l m a r s s o n
varð semí dúx á stúdentsprófi í
Fjöl brauta skólanum í Breiðholti í
lok lið innar haust annar. Hann er
ættað ur úr Kópa vogi og segir skóla
sögu sína í grunn skóla ekkert til
að hrópa húrra fyrir. “Mér fannst
ég aldrei finna mig nægilega vel í
skólanum. Það var ekki fyrr en
ég kom í FB að ég tók við mér,”
segir hann í spjalli við Breiðholts
blaðið. Þessi viðsnúningur hans
á náms brautinni varð til þess að
hann var semídúx eða næst efstur
nemenda á stúdentsprófi.
Talið berst fyrst að því af hverju
Ágúst Orri hafi valið FB þegar kom að
framhaldsskólanámi. Var það áhugi á
einhverri sérstakri námsgrein. Hann
neitar því. Segist ekki hafa hugsað
svo langt á þeim tíma. “Ætli það
hafi ekki verið einkunnirnar mínar
úr grunnskóla sem réðu því að ég
fór í Breiðholtið. Þær voru ekkert
sérstakar. Hvorki úr Snælandsskóla
þar sem ég var í sex ár og síðar
Kópavogsskóla. Ég var ekkert að skara
fram úr í grunnskólanáminu. Náði
ekki að tengja huganna nægilega vel
við námið. Það er ekki fyrr en ég kem
í FB að dæmið fer að snúast við. Ég
byrjaði á hópvinnubraut og hélt mig
það á allri menntaskólagöngunni.
Kerfið er þannig að maður þarf
að fylla upp í 77 námseiningar í
kjarnanámi skólans en getur síðan
valið önnur fög eftir áhugamálum.”
Var hluti af listahópi
“Ég var hluti af listahópi og starfaði
í leikfélagi innan skólans. Ég var
kominn nógu langt til að koma að
ákvörðun hvaða leikrit ætti að taka
til sýninga og vinna við undirbúning
þegar Leikfélag FB Aristófanes sýndi
leikritið Hvíslarana í Breiðholtsskóla
þann 9. maí árið 2019. Leikritið
fjallar um Lísu sem heldur fram hjá
Guðmundi sem lætur ekki bjóða
sér það lengur. Þetta er stuttur
gamanleikur eftir hinn ítalska Dino
Buzzati. Þetta voru þó ekki mín fyrstu
afskipti af leiklist.” Ágúst Orri segist
hafa erft einhver leiklistagen. “Þetta
er í ættinni. Faðir minn er leikari og
ég kom fyrst að þessu í dægradvöl
þegar ég var í grunnskóla. Ég hef líka
leikið í kvikmynd og tekið þátt í að
leika í stuttmyndum. Svo er ég líka
mikill áhugamaður um kvikmyndir.
Fer oft í bíó.”
Af hverju semidúx
Aftur að FB. Hvernig fór Ágúst Orri
að því að semidúxa. “Ég spyr mig að
því sama. Sennilega er ekkert eitt
svar við því. Það kom fljótt í ljós eftir
að ég kom í FB að ég hafði gaman af
heimalærdómi. Ég naut þess einnig
að mæta í skólann og sinnti náminu
mjög alvarlega. Ég var ekkert endilega
að reyna að fá hæstu einkunnirnar
en það fór að enda þannig. Ég var
að vinna aðeins með náminu fyrstu
tvær annirnar og svo hætti ég að
vinna á skólatíma og fór að einbeita
mér alfarið að skólanum. Ég held
að það hafi hjálpað til að ná þessum
árangri. Ég fór síðan að vinna aftur
eftir útskriftina. Er að vinna hjá
Olíudreifingu hér á Grandanum.”
Ágúst Orri orðar það með þessum
hætti því við hittumst skammt frá
vinnustað hans á Kaffivagninum.
“Ég hef mikinn áhuga á leiklist og er
nú að safna fyrir framhaldsnámi. Ég
hef líka verið að hugleiða að skoða
eðlisfræði og tengdar náttúru
greindar. Ég kynntist þeim talsvert í
FB og það vakti áhuga minn á þeim.
Mér gekk ágætlega í stærðfræði en
hafði í fyrstu ekki mikinn áhuga á
fræðifögum en áhuginn opnaðist
smám saman fyrir þeim.”
Fljótandi heimur
Ágúst Orri segir að gera megi ráð
fyrir sér í Listaháskólanum í haust.
Í leiklistinni. Hann kveðst þó ekki
búinn að innrita sig því lokað hafi
verið fyrir skráningar áður en hann
hafi klárað stúdentsprófið. Hann
segir að foreldrar sínir hafi tekið
misvel í að hann færi í leiklistina.
“Hugsanlega sjá þau ekki nægilega
góða atvinnumöguleik á því sviði.
Mamma horfir meira á iðngreinarnar.
Leiklistin er svolítið fljótandi heimur.
Ég stefni að komast í nám erlendis
síðar. Þar er mun stærri heimur.
Vissulega er mikil samkeppni en
tækifærin eru líka mörg,” segir Ágúst
Orri Hjálmarsson leikarasonur úr
Kópavoginum, semidúx úr FB og
stefnir á framhaldsnám í leiklist.
Fann mig í FB
Ágúst Orri hampar verðlaunaskjali fyrir góðan námsárangur og þátttöku
í félagsstarfi FB frá Rótarýklúbbnum Reykjavík Breiðholt.
- stefni á framhaldanám í leiklist
Foreldrar
eru að bugast
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og borgarfulltrúi segir að
eins og vandinn blasi nú við sé vissulega engin ein töfralausn.
Mörg hundruð börn bíði eftir plássi. Plássum hafi verið lofaði í
leikskólum sem ekki höfðu verið byggðir eða fullkláraðir sem var
áfall fyrir foreldra.
„Ekki kann góðri lukku að stýra að lofa upp í ermina á sér og þurfa
síðan að svíkja loforðin. Það er ekki aðeins vandamál að það vanti
pláss heldur berast títt fréttir af því að leikskólar sendi börn heim
vikulega eða jafnvel oft í viku vegna manneklu. Það gengur heldur
ekki til lengdar að foreldrar ungra barna hafi áhyggjur og að starfsfólk
leikskólanna sé að bugast vegna mikils álags í starfi,“ segir Kolbrún.
Hún segir hættu á að svipað ástand geti skapast og sé á
bráðamóttöku Landspítalans. Þar hafi margt starfsfólk sagt upp vegna
mikils álags og slæmrar vinnuaðstöðu.
„Borgin, sem er í hröðum vexti, stefnir á fjölgun leikskólaplássa
um allt að 500 á næsta ári. Margir leikskólakennarar hafa flutt sig yfir
til grunnskólanna þar sem þeim kann að finnast störfin þar meira
aðlaðandi. Í Reykjavík þarf að laða fólk til starfa í leikskólum meðal
annars með bættum kjörum og starfsaðstæðum. Það kann að vera
erfitt þar sem fjárhagur borgarinnar er á heljarþröm.“
Kolbrún segir að hlaðborð lausna þurfi til að vinna úr stöðunni
sem komin er upp. „Ein þeirra eru heimagreiðslur til foreldra meðan
þeir bíða eftir leikskólaplássi fyrir börn sín. Sú lausn er ódýrari fyrir
sveitarfélagið en dýrt leikskólapláss ef miðað er við yngstu börnin. Við
höfum einnig ítrekað lagt til að bjóða fólki upp á sveigjanleg starfslok.
Í hópi eldri borgara er dýrmætur mannauður, mannauður sem við
viljum njóta sem lengst.“ segir Kolbrún.
- segir Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur og borgarfulltrúi
Þangbakka 10 (MJÓDD) • Sími: 557-2053
Kennslustund í leikskóla.