Breiðholtsblaðið - 01.01.2023, Page 12

Breiðholtsblaðið - 01.01.2023, Page 12
STUÐ STUÐ 0 STUÐ 1 » Þarf stærri heimtaug? » Hvaða lausn hentar best? » Er kerfið búið álagasstýringu? » Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi? Er hleðsla rafbíla hausverkur í húsfélaginu? Við aðstoðum við að leysa málið með hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun. Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is 12 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2023 Nóg er um að vera hjá frístundamiðstöðinni Miðbergi eins og endranær. Á síðasta ári hlut Miðberg Regnbogavottun Reykjavíkurborgar en Markmiðið með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks. Þessa vottun erum við í Miðbergi stolt og ánægð með að hafa fengið enda viljum við að okkar starfsstaðir bjóði öll velkomin bæði starfsfólk sem og börnin og unglingana sem við þjónustum. Við erum svo í stöðugri vinnu við að fylgjast með og vera vakandi fyrir því að starfsstaðirnir okkar séu hinseginvænir og þurfum að viðhalda vottuninni reglulega. Annað sem starfsstaðirnir okkar eru búnir að gera átak í eru grænu skrefin en flestir starfsstaðir okkar eru komin með að minnsta kosti 1. skrefið þar og sum komin lengra en grænu skrefin hjá Reykjavíkurborg miða að því að að efla vistvænan rekstur í starfsemi borgarinnar og minnka umhverfisáhrif sveitarfélagsins í fjórum skrefum. Við ætlum öll að stefna á að ljúka fleiri skrefum á árinu og þannig leggja okkar af mörkum við að auka umhverfisvitund bæði okkar og barnanna. Nú var að hefjast ný önn í bæði barna og unglingastarfinu hjá okkur en unglingastarfsfólkið okkar byrjaði árið á starfsdegi þar sem Indíana Rós Ægisdóttir hélt kynfræðslunámskeið, til þess að auka kunnáttu starfsfólks sem er reglulega að fræða ungmennin okkar í Breiðholtinu um þau mál. Að sjálfsögðu vorum við líka með klassískt hópefli eftir námskeiðið, meðfylgjandi er mynd af hópeflisleik sem starfsfólkið fór í. Framundan eru svo hinir ýmsu viðburðir á vorönninni eins og t.d. Danskeppni SAMFÉS 20. janúar og sama dag er Hönnunar og búningakeppnin Stíll sem er einnig á vegum SAMFÉS. Í febrúar hyggjumst við svo halda Breiðholt Got Talent keppnina okkar bæði fyrir börnin á frístundaheimilunum og unglingana í félagsmiðstöðvunum og hlökkum við til að geta sagt ykkur frá þessum skemmtilegu viðburðum síðar. Við hlökkum til að eiga áfram gott samstarf við fólkið í hverfinu á nýju ári. Margt að gerast í Miðbergi Frá æfingu í Miðbergi. Umsóknir um byggingarleyfi orðnar rafrænar Umsóknir um bygg­ ingar leyfi hjá Reykjavíkur­ borg urðu rafrænar frá og með mánudeginum 12. desember sl. Með raf rænum byggingar­ leyfisumsóknum sparast tími bæði íbúa og starfs­ fólks. Sömuleiðis dregur úr kolefnis fótspori vegna starfseminnar út af minni útblæstri vegna bílferða og minni pappírsnotkunar. Talsverðar breytingar verða á skilum gagna og meðhöndlun umsókna hjá byggingarfulltrúa. Nú verður öllum umsóknum um byggingarleyfi skilað í gegnum Mínar síður Reykjavíkurborgar og svarbréf verða rafræn. Skráningin byggir á umsóknargátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Um 300 kg. af pappír munu sparast á ári við þessa breytingu og um 18 heimsóknir á dag sem er um 270 mínútur á dag ef miðað er við 15 mínútna ferð samtals fram og til baka. Teikningum verður skilað rafrænt og þarf að sameina þær í eins fáar PDF skrár og mögulegt er. Rafrænar teikningar sem þarf að undirrita geta ekki verið stærri en 20 mb. Það er nauðsynlegt að vera með rafræn skilríki fyrir þessar skráningar. Nánar er hægt að lesa um skráninguna og ferlið allt á vef borgarinnar. Nú er hægt að sækja um byggingar­ leyfi við eldhúsborðið heima. Silly Suzi og Momo eru bestu trúða­vinkonur í heimi. Þær tala mismunandi tungumál og eiga því stundum erfitt með að skilja hvor aðra. Krökkum er boðið að koma í Gerðuberg og taka þátt í trúðslátum með þessum frábæru vinkonum og sjá hvernig þær sigrast á ágreiningi og læra tungumál. Sýningin inniheldur djögl, loftfimleika, trúða og margt fleira og er tilvalin stund fyrir 4 til 9 ára en sýningin er skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. Silly Suzi og Momo tilvalin skemmtun fyrir börn Silly Suzi og Momo með trúðanefin á sýningu. Viltu vera Memmm er opinn leikskóla Memmm Play og er alla miðvikudaga kl. 10 til 12 á neðri hæðinni í Gerðubergi. Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskyldu- vænna samfélagi. Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt. Markmiðið er að gaman sé að hitta aðra foreldra og forsjáraðila með börnin sín, syngja saman, leika og læra. Óþarft er að skrá sig og allir eru velkomin. Stundirnar eru einkum hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri. Opin leikskóli í Gerðubergi Gaman að leika og læra í Memmm.

x

Breiðholtsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.