Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Side 6
6 | | 26. júlí 2022
Mynd af þjóðhátíð frá fyrri hluta síðustu aldar.
listarinnar.
Mér dettur í hug eitt einkenni-
lega skemmtilegt atvik. Veðrið
hafði spillst á hátíðinni, rokhvesst
og rignt svo fólk varð að flýja
Dalinn, tjöld rifnuðu mikið og
allt varð í mesta fári um nóttina.
Morguninn eftir gekk maður
einn inn í Dal að líta eftir tjaldi
sínu og dóti. Það var enn rigning
nokkur, en komið logn. Sér hann
þá hvar tveir menn sitja inni í einu
hústjaldsgrindinni, sem var það
eina er eftir var af tjaldinu, sitja
þar við borð og drekka [tvímenn-
ing]. Óðar er þeir koma auga á
aðkomumann kalla þeir til hans:
„Blessaður vertu ekki að standa
úti í rigningunni, komdu inn
í tjaldið og fáðu þér glas með okk-
ur“. Já, ekki vantaði gestrisnina en
skjólið vantaði alveg því grindin
var tjaldlaus!
(Úr bókinni Eyjar
og úteyjalíf (2012)).
„Lúðrasveit Vestmannaeyja gerir
sig klára enn eitt árið að taka
þátt í þjóðhátíð, líkt og sveitin
hefur gert undanfarin ár frá árinu
1939. Arfleifð Oddgeirs og félaga
er sterk og ber þess sérstaklega
merki í kringum þjóðhátíð, enda
Oddgeir stofnandi og stjórnandi
Lúðrasveitarinnar ásamt því að
hafa samið öll þjóðhátíðarlög
fram til ársins 1968, tveimur
árum eftir að hann féll frá,“ segir
Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi
sveitarinnar.
„Það er á okkar ábyrgð að halda
á lofti þessari arfleifð og þeim
mikla menningararfi sem í henni
liggur. Því höfum við ekki látið
um okkur spyrjast að mæta ekki
í Herjólfsdal á þjóðhátíð. Má þá
einu gilda hvort heimsfaraldur
eða hvað annað hamli öðrum
hátíðahöldum. Lúðrasveitin mætir
í Dalinn og spilar kl.14:30 í tilefni
þjóðhátíðar. Það gerðum við í
fyrra og árið þar á undan.“
Jarl segir að oftar en ekki sé
fyrsti flutningur þjóðhátíðar-
lagsins í Herjólfsdal í höndum
Lúðrasveitarinnar. „Yfirleitt hefur
þjóðhátíðarlagið verið útsett fyrir
Lúðrasveit og höfum við þá spilað
það. Hæg voru heimatökin fyrstu
árin þegar Oddgeir hafði þetta allt
á sinni könnu.
Hefð er fyrir því að Lúðrasveitin
spili lög sem eiga stórafmæli
þannig að í ár má búast við að
heyra lög hljóma þar sem ártalið
endar á tveimur. Má þar nefna lög
eins og „Ég veit þú kemur“ og
„Þar sem hjartað slær“. Hvort lag
ársins hljómar einnig kemur í ljós
þegar þar að kemur.
Það er alltaf mikil tilhlökkun
fyrir hátíðinni.“
Lúðrasveitin er yfirleitt vel
mönnuð þennan dag, enda margir
félagar sveitarinnar sem búa á
fastalandinu og eru komnir til
Eyja yfir helgina. Einnig hefur
það tíðkast að hljóðfæraleikar-
ar almennt sækist eftir að spila
með við þetta tækifæri, enda fáar
stundir jafn töfrum gæddar og
setning Þjóðhátíðar.
„Við erum stolt af því að eiga
þátt í að viðhalda föstum liðum
Þjóðhátíðar sem gæða hana
þeirri sérstöðu sem skilur hana
frá öðrum útihátíðum landsins.
Hvítu tjöldin, brekkusöngurinn,
skreytingarnar, brennan, fjöl-
skyldustemningin o.fl. eru allt
atriði sem kannski selja ekki endi-
lega flesta miðana, en gera hátíð-
ina að því sem hún er. Setningin
með sínum hefðbundnu atriðum,
Lúðrasveit, Kór Landakirkju,
blessun og ávörpum er einnig
hluti af þeirri sérstöðu sem hátíðin
okkar hefur.
Undanfarin ár hefur aftur færst í
vöxt að fólk mæti prúðbúið á setn-
inguna og hefur fjöldinn aukist ár
frá ári. Það er virkilega ánægju-
lega þróun. Við hlökkum til að sjá
sem flesta á setningu Þjóðhátíðar í
ár,“ sagði Jarl að endingu.
Lúðrasveit Vestmannaeyja verður á sínum stað í Dalnum:
Okkar ábyrgð að halda á lofti
þessari arfleifð
Það var fámennt í Herjólfsdal á Þjóðhátíðinni 2021 en Lúðrasveit Vestmannaeyja lét sig ekki vanta.