Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Blaðsíða 11
26. júlí 2022 | | 11
Kristín Erna sem er komin aftur
til ÍBV og spilar með liðinu í ár,
hefur mikla reynslu í boltanum.
Hún segir Glenn mjög færan
þjálfara. Kristín Erna segir að
stærsta ástæðan fyrir góðu gengi
liðsins sé sterk liðsheild sem liðið
búi yfir núna.
Hvað fékk þig til að færa þig aftur
yfir til ÍBV?
„Mig langaði í raun aldrei að fara
í annað lið en ÍBV eftir að ég kom
heim síðast, en það voru persónu-
legir hlutir sem urðu til þess að
ég fór í lið í bænum. Það var svo
þegar ég fann að ég var tilbúin að
spila í Eyjum aftur, þá kom aldrei
neitt annað til greina en að spila
fyrir ÍBV.“
Hvernig er Glenn sem þjálfari?
„Að mínu mati er hann mjög fær
þjálfari. Það er gott skipulag og
agi hjá honum og taktískt séð er
hann mjög góður.“
Taktískt mjög góður
á þessum tíma. Hann var að
mestu eða öllu leyti skipaður
ungum og efnilegum stelpum
og ekki hafði verið samið við
erlendu leikmennina sem og
þessar eldri Eyjastelpur. Til
að byrja með var hugsunin
einungis sú að ég myndi fylla
upp í leikmannahópinn yfir
vetrartímann og þangað til
hópurinn yrði fullskipaður.
Þetta gekk svo vonum framar
og fór svo að ég endaði með
að skrifa undir samning og var
þar með orðin leikmaður ÍBV
á ný. Þetta var ekkert sem ég
hafði þorað að gera mér vonir
um en bara ótrúlega gaman að
fá að taka þátt í og vera partur
af þessu frábæra liði.“
Hvernig er Glenn
sem þjálfari?
„Glenn er ótrúlega metnaðar-
fullur og leggur hart að sér til
þess að skila góðum árangri.
Hann er skipulagður og
klókur þjálfari, með gott auga
fyrir leiknum og er góður í að
greina bæði kosti og galla síns
liðs sem og liðanna sem við
erum að spila við. Hann býr
yfir miklum leiðtogahæfileik-
um og er góður í mannlegum
samskiptum.“
Kristín Erna er komin aftur til ÍBV og er ánægð með þjálfarann.
Gleðilega
Þjóðhátíð