Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Page 14
14 | | 26. júlí 2022
Hermann Hreiðarsson, sem
nú stýrir meistaraflokki karla
í knattspyrnu er borinn og
barnfæddur Eyjamaður. Gerði
garðinn frægan með ÍBV og
hélt ungur í atvinnumennsku í
Englandi þar sem hann var í 15
ár. Varð enskur bikarmeistari
með Portsmouth 2008, fyrsti
og eini Íslendingurinn til að
ná þeim árangri. Toppurinn á
glæsilegum ferli og þá glödd-
ust Eyjamenn.
Vinahópurinn var sterkur og lét
vita af sér. Vallógengið, peyjar
sem á sumrin unnu hjá bænum
undir stjórn Sigurðar Jónsson-
ar, Sigga Valló og var hópurinn
kenndur við hann. „Það voru
miklir höfðingjar þarna og eru
ennþá, Daði Páls, Rútur Snorra,
bræðurnir Hlynur, Hjalti og
Steingrímur Jó, Arnar Péturs,
Yngvi Bor, Sigurvin Ólafs og
Kiddi Gogga. Sindri Grétars var
verkstjóri og svo hershöfðinginn
sjálfur, Siggi Valló. Allir á kafi
í íþróttum, flestir í fótboltanum
en Daði, Hlynur og Arnar voru í
handboltanum,“ segir Hermann
og ábyrgð þeirra var mikil þegar
kom að þjóðhátíð.
„Við slógum Dalinn og eitt árið
slógum við ansi stórum stöfum,
Vallógengið í brekkuna þannig að
það vissu auðvitað allir hverjir við
vorum, vildum við meina. Þetta
sást frá tunglinu,“ segir Hermann
og hlær.
„Það var alltaf mikil stemning
fyrir þjóðhátíðinni þegar byrjað
var að slá leiðina inn í Dalinn og
brekkuna sjálfa. Það átti allt að
vera snyrtilegt
og glæsilegt
fyrir þessa stór-
glæsilegu hátíð.
Mikil rútína en
skemmtileg.“
Öflugur vina-
hópur
Hópurinn hefur
verið mjög öfl-
ugur og mikið
brallað? „Það
var sitt lítið af
hverju sem við
komum nálægt.
Við gerðum ansi
margar stuttmyndir og svo tókum
við þátt í firmakeppni ÍBV, innan-
hússmóti í knattspyrnu á hverju
ári. Það var skætingur í mönnum
eins og alltaf. Ég veit ekki hvort
þú manst það, en sigurhátíðin var
alltaf auglýst fyrir mótið til að
æsa menn upp. En við stóðum
undir nafni og unnum ár eftir ár.
Ég held svo að eftir að Vallógeng-
ið hætti að taka þátt í mótinu hafi
það verið lagt niður.“
Hermann er og verður Týrari og
segir Týsþjóðhátíðir hafi skarað
langt fram úr Þórsþjóðhátíðum.
„Að sjálfsögðu en við vorum í
bland Þórarar og Týarar í hópnum
þannig að við tókum saman þátt
í öllu, sama hvort
félagið hélt há-
tíðina. Líka þegar
kom að því að
tyrfa Þórs- og Týs-
völlinn. Vallógeng-
ið tók þátt í þessu
öllu saman enda
snerist þetta fyrst
og fremst um að
bæta og byggja
upp íþróttastarfið á
Eyjunni sem allir
nutu góðs af.“
Og að sjálfsögðu
voru þeir í bún-
ingum og fóru
ekki með veggjum. „Við fórum
einu sinni klæddir í glæsilegum
sérsaumuðum íþróttagöllum með
prentaðri mynd af Sigga Valló og
textanum - Er þetta vinnan? Því
Hermann Hreiðarsson og fjölskylda hlakka til Þjóðhátíðarinnar:
Vallómerkið í Brekkunni
sást frá tunglinu
Öflugur vinahópur Settu svip á bæinn Fagnsumarið 1995
Þjóðhátíðin það ár sú besta
Fjölskyldan, Hermann með Hermann Alex, Jóhann Lárus og Ída, Alexandra með Emil Max og Thelma Lóa.
” Það er líka eftirminnilegt þegar
við bárum Sigga Valló inn í Dal í
kóngastól og svo fórum við einu
sinni klæddir eins og frændi okkar
frá Vestmannaeyjum karabíska
hafsins, Bob Marley. Ég myndi segja
að Yngvi Bor hafi náð honum best.
Þessa mynd tók Sigurgeir Jón-
asson 26. maí 1996 af Hermanni
sem þá var orðinn atvinnumaður í
knattspyrnu.