Fréttir - Eyjafréttir - 26.07.2022, Blaðsíða 20
20 | | 26. júlí 2022
Eyjakonan Þura Stína hefur
verið í hljómsveitinni Reykja-
víkurdætur í sex ár, það má
kannski segja að hljómsveitin
hafi lent á radar allra lands-
manna eftir að hafa lent í öðru
sæti í forkeppni Eurovision í
ár. Það var því mikið gleði-
efni fyrir marga að sjá þær
tilkynntar sem eitt af stóru
nöfnunum í Dalnum í ár.
Þura Stína heitir fullu nafni
Þuríður Kristín Kristleifsdóttir
og er alnafna ömmu sinnar.
Þær eru þó aldrei kallaðar
annað en Þura Stína. Afi
hennar er Guðmundur Þ.B.
Ólafsson og foreldrar hennar
eru Heiða Önundardóttir og
Kristleifur Guðmundsson.
Togast í átt að Heimaey
„Ég fæddist í Eyjum og bjó þar
til sirka fjögurra ára aldurs. Ég er
mikil Eyjakona í hjartanu og vildi
hvergi annarsstaðar búa þegar ég
var krakki. Ég kom öll sumur og
aðra til þriðju hverja helgi frá því
að ég flutti og hef því eytt miklum
gæðatíma í Herjólfi í gegnum
ævina. Ég flutti svo aftur til Eyja
þegar ég varð eldri og dregst alltaf
jafnmikið í áttina að Heimaey. “
Hvað heldurðu að þú hafir komið
oft á þjóðhátíð?
„Ég held ég hafi nú komið á
flestar, ég tók aldrei annað í mál
þegar ég var lítil en að fara á
þjóðhátíð. Þegar ég var 15 ára fór
pabbi með okkur til Spánar og
ég held að það hafi verið grátið á
heimilinu frá janúar þegar ferðin
var bókuð og framyfir þjóðhátíð.
Fyrir mér er þjóðhátíð eitthvað
sem ég get ekki misst af, ástar-
hátíðin í Dalnum með fjölskyldu
og vinum. Einu sinni spilaði ég á
föstudegi á annarri tónlistarhátíð
og kom svo yfir og það var eitt
það erfiðasta sem ég hef gert enda
föstudagurinn - setningardagurinn
sjálfur mikill stórhátíðardagur í
minni fjölskyldu og allra Eyja-
manna.“
Hornið á Heimakletti
í uppáhaldi
Það besta við Vestmannaeyjar
er sjórinn, ég sæki mjög mikið í
sjóinn og líður best þar. Mér finnst
gott að hafa hann allt um kring.
En uppáhaldið mitt er líka hornið
á Heimakletti og innsiglingin, ég
fæ alltaf fiðring í magann þegar
ég er að sigla inn og sé eyjuna
fallegu.“
Hvað finnst þér það besta við
þjóðhátíð?
„Þjóðhátíð er ekki hægt að lýsa
með orðum. Ég hef reynt ótal
Eyjakonan og Reykjavíkurdóttirin Þura Stína mætir
Dæturnar spenntar að
skemmta á Þjóðhátíð
” Fyrir mér er þjóðhátíð eitthvað sem
ég get ekki misst af, ástarhátíðin í
Dalnum með fjölskyldu og vinum.