Vesturbæjarblaðið - jan 2023, Qupperneq 10

Vesturbæjarblaðið - jan 2023, Qupperneq 10
10 Vesturbæjarblaðið JANÚAR 2023 Opið virka daga 9 - 18 og helgar 10 - 18. Eiðistorgi 15 facebook.com/arnaisogkaffi Karl prédikar í Dómkirkjunni 5. febrúar Barrokksveitin sem spilaði í Dómkirkjunni á nýársdag. Sveitina skipa Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, Sólveig Steinþórsdóttir, Ísak Ríkharðsson, Ásta Kristín Pjetursdóttir og Halldór Bjarki Arnarson. Hér á myndinni er Barokksveitin ásamt frú Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi Íslands prédikaði og séra Sveini Valgeirssyni sóknarpresti Dómkirkjunnar sem þjónaði fyrir altari. Hér á Aflagranda gengur allt sinn vanagang, félagsstarfið er að fara af stað eftir gott jólafrí. Við leitumst við að bjóða upp á fjölbreytt starf og þægilega samveru í hlýju umhverfi. Hér geta allir fundið eitthvað við hæfi og jafnvel farið út fyrir þægindarammann og prófað eitthvað alveg nýtt. Öflugt starf er í húsinu á opnunar­ tíma frá 8:30 til 15:45 og má þar nefna tálgað í tré, postulínsmálun, jóga, Zumba Gold, samsöngur, bókaspjall, kórinn Söngfuglarnir, bókmenntaklúbbur, myndlist og Ukulele. Svo er bingó alla föstudaga. Einnig er starf í húsinu eftir lokun, og er þá unga fólkið meira með völdin. Frosti félagsmiðstöð fyrir unglinga kemur eitt til tvö kvöld í viku, Flótta fólk er með aðstöðu hjá okkur fyrir úkraínskt flóttafólk, hér eru kenndir Bollywood dansar og Leynileikhúsið er með námskeið fyrir börn og unglinga. Við erum með opna vinnustofu alla morgna þar sem fólk hittist með handavinnuna sína og ræðir heimsmálin yfir kaffibolla. Hér er líka Hársnyrtistofa Olgu, tímapantanir í síma 893­3780 og Fótaaðgerðastofa Gyðu, tíma pantanir í síma 895­5505. Bókaspjall Katrínu Kristins Hið sívinsæla bókaspjall með Katrínu Kristinsdóttur er á sínum stað alla miðvikudaga og fær hún til sín góða gesti. Við megum því eiga von á skemmtilegu bókaspjalli í vetur. Komið og njótið. Hingað er hægt að koma og borða hádegismat milli 11:30­12:30, panta/afpanta verður matinn fyrir kl. 12:30 daginn áður og svo er síðdegiskaffi kl. 14:30 alla daga nema miðvikudaga þá er kaffið til kl. 15:00 vegna Bókaspjallsins. Nánari upplýsingar um hádegismatinn veitir Sigrún í síma 411­2707. Í samstarfi við íþróttafélagið KR bjóðum við upp á Kraft í KR og erum við tvisvar í viku, mánudaga og föstudaga kl. 10:30. Tímarnir eru fyrir 60+ og er markmiðið að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu. Íþróttafræðingur, Linda Björk Ólafsdóttir, sér um að láta fólk svitna. Þetta er hressandi hreyfing í frábærum félagsskap þar sem hver gerir á sínum hraða og sinni getu. Boðið er upp á frístundaakstur frá Þorraseli Vesturgötu kl. 10:10, Granda vegi 47 kl. 10:15 og Afla­ granda 40 kl. 10:20 í KR heimilið og aftur til baka. Við hvetjum ykkur til að nýta ykkur frístundaaksturinn. Bæði hreyfingin og aksturinn er ykkur að kostnaðarlausu. Viðburðir fyrir Vesturbæinga Í samfélagshúsinu okkar viljum hafa viðburði fyrir Vesturbæinga svo sem flóamarkaði, spilakvöld, veislur, sýningar og allt það sem Vesturbæingar kalla eftir. Endilega ef þið hafið hugmyndir að starfi eða viðburði sem ykkur langar að sjá hér í samfélagshúsinu okkar, hafið samband við Sirí verkefnastjóra eða Helgu virknifulltrúi á skrifstofunni, 411­2701 & 411­2702. Við erum alltaf til í nýjar hugmyndir og áskoranir. Við hvetjum alla til að finna face­ booksíðuna okkar, Sam félagshúsið Aflagranda 40, því þar koma allar tilkynningar. Öll velkomin. Margskonar starf fyrir alla hópa er á Aflagranda 40. Öflugt starf á Aflagranda - samfélagshús í hjarta Vesturbæjar fyrir jafnt unga sem aldna Karl Sigurbjörnsson biskup mun prédika við guðsþjónustu í Dómkirkjunni sunnudaginn 5. febrúar en hann á 50 ára vígsluafmæli daginn áður 4. febrúar næstkomandi. Messað er í kirkjunni alla sunnudagsmorgna kl. 11:00. Ýmislegt er í boði á vegum kirkjunnar á næstunni. Má minna á að öll þriðjudagskvöld eru Bach tónleikar Ólafs Elíassonar. Af öðru má nefna eru bæna­og kyrrðarstundir, opið hús, tíðasöngur, örpílagrímasöngur og kvöldkirkja. Í hátíðarguðþjónustunni á nýársdag sl. spilaði barokksveit tvö verk. Fjögur lið kepptu Fjögur lið kepptu fyrir hönd Vesturbæjarskóla á jólaskákmóti grunnskóla Reykjavíkur. Tvö lið úr 1. til 3. bekk og tvö úr 4. til 7. bekk. Börnin stóðu sig mjög vel og greinilegt að mikill áhugi er fyrir skák í skólanum. Skák hefur lengi verið hluti af valinu í öllum árgöngum og á Skólatorgi, bókasafninu, er hægt að koma við og tefla. Við óskum þessum frábæru skákiðkendum til hamingju með árangurinn, segir á heimasíðu skólans. Frá jólaskákmóti grunnskólanna. Netverslun: systrasamlagid.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.