Feykir - 05.01.2022, Blaðsíða 6
Völvuspá 2022
Gott ár framundan og
sameiningar í sjónmáli
Löngum hefur það tíðkast að nýliðið ár hefur
verið gert upp í fyrstu blöðum Feykis á nýju ári.
En nú verður aðeins brugðið út af vananum þar
sem við ætlum að rýna örlítið í framtíðina í
upphafi nýs árs. Sá sem heldur á spilunum,
kastar rúnunum og spekúlerar í myndum
spákúlunnar vill ekki láta nafn síns getið en sá
hefur áður spáð í framtíðina fyrir Feyki, eins
og lesa má í síðasta blaði ársins 2019.
Ýmislegt stóðst í þeirri spá en annað vakið athygli sem
ekki var sagt eins og t.d. Covid fárið. Segir hann
skýringuna vera þá að honum hafi ekki verið sýndar
nægilega vel afleiðingar þess og kannski vegna þess að
þær hafi verið öllum huldar í mósku forlaganna. En
nú sést fyrir endann á fárinu og ættu allir að geta um
frjálst höfuð strokið næsta sumar. Kannski er þá bara
best að klára þetta Covid-vesen.
„Það er kannski ekki seinna vænna að fara að spá
endalokum Covid-19 en í lok febrúar verða liðin tvö ár
frá því að veiran greindist fyrst á Íslandi. Hún hefur verið
lævís og náð að halda sér gangandi með stökkbreytingum
og nýjum afbrigðum. En núna er hún á lokametrunum
og það má greina í spákúlunni að endalok hennar verða
staðreynd á árinu, a.m.k. á Vesturlöndum þar sem ekki
verður um nýtt afbrigði að ræða sem nær einhverri
fótfestu. Annars staðar, þar sem heilbrigðiskerfi eru
bágborin, má þó búast við áframhaldandi vandamálum
enda færri bólusettir en t.d. hér á landi. Við Íslendingar
munum kveðja kórónuveiruna áður en sumarið nær
hámarki,“ segir seiðskrattinn og virðist nokkuð viss í
sinni sök. Hann vill þó árétta að hér sé aðeins um spá að
ræða unna upp úr þeim upplýsingum sem honum séu
færðar af örlaganornum, skömmu fyrir áramót. „Eins og
með allar spár geta forsendur breyst og þá þarf stundum
lítið til að örlög taki nýja stefnu með öðrum afleiðingum.
En svona lítur þetta út núna,“ segir spámaðurinn dulúð-
legi. Þá er bara að líta á hvað hann segir um framtíðina.
Sameiningar
Tvennar kosningar fara fram í febrúar þar sem gengið
verður úr skugga um hvort sveitarfélögin tvö í Skaga-
firði verði sameinuð í eitt sem og Blönduós og Húna-
vatnshreppur. Ekki er búið að boða kosningar um
sameiningu Skagastrandar og Skagabyggðar en mér
sýnist samt að það verði gert. Fjárhagslega þykir það
rétt skref fyrir sveitarfélögin og eftir mikla baráttu
verður sameining samþykkt. Fólk mun ekki verða vart
við miklar breytingar en fegið þegar þetta verður
yfirstaðið enda framtíðin bara björt.
Það verður ansi tvísýnt með sameiningu sveitar-
félagana í Skagafirði en mér sýnist hún ganga eftir.
Vissar forsendur eru fyrir því að sameining verði að
veruleika en samt eru nokkrir óvissuþættir. Pólitíkin
vill samruna en margir íbúanna ekki sannfærðir enda
líður fólki vel eins og staðan er. Til hvers þá að sam-
eina? Þetta fer allt eftir kosningaþátttöku því verði hún
góð verður sameinað.
Það er mjög skrítin mynd sem mér er sýnd af
sameiningu Blönduóss og Húnavatnshrepps en ég er
alveg sannfærður um að af henni verði. Þetta á eftir að
verða heillaspor fyrir sveitarfélögin sem fá aukinn kraft
í uppbyggingu og eflingu sameinaðs samfélags bæði í
sveitum sem og í þéttbýli.
Sveitarstjórnarkosningar
Skagafjörður
Eins og allir vita fara sveitarstjórnarkosningar fram í
vor og eins og má búast við með nokkuð breyttu sniði
vegna sameininganna sem væntanlega fara fram. Reynt
verður að vanda til verka í öllum sveitarfélögum, og
sérstaklega þeim nýju og má sjá að allir eru tilbúnir í
samstarf. Kosningabaráttan verður heiðarleg að mestu
en nokkurn skjálfta verður að finna í Skagafirði þar
sem efasemdarfólk sameiningar lætur til sín taka án
þess þó að illt muni af hljótast. Skagafjörður heldur
áfram að vaxa og dafna og mun ánægja ríkja hjá flest-
um enda mun ný sveitarstjórn verða farsæl. Uppbygg-
ing iðnaðar og viðamiklar framkvæmdir vítt um hér-
aðið verður áberandi og í skólamálunum má búast við
heilmiklum aðgerðum.
Blönduósbær og
Húnavatnshreppur
Það er bjart framundan hjá þessum sveitarfélögum í
Austur-Húnavatnssýslu og almenn sátt ríkir um sam-
eininguna. Ekki verða miklar væringar eftir kosningar
enda eru menn almennt meðvitaðir um mikilvægi þess
að láta hlutina ganga upp. Fjárhagslega eru horfurnar
góðar og með bjartsýni að vopni má nýta sér slag-
kraftinn til frekari atvinnuuppbyggingar, ekki síst þeg-
ar litið er til allrar orkunnar sem hægt er að virkja í
héraðinu. Í sveitinni blómstrar landbúnaðurinn og ef
einhverjir bændur eiga eftir að eflast og finna aukin
tækifæri í greininni þá eru það bændurnir í héraðinu.
Skagaströnd og Skagabyggð
Þetta er nokkuð snúin sýn sem ég fæ og ég veit ekki
alveg hvernig á að túlka. En eins og áður hefur komið
fram er líklegt að af sameiningu verði en mér er líka
sýnt sundurlyndi. Hvort það sé fyrir því að sameiningin
muni ekki fara fram eða að einhver óánægja sé með
hana í samfélaginu veit ég ekki. Kannski er líka verið að
segja mér að sameiningin sé í kortunum en fari ekki
fram fyrr en síðar, jafnvel eftir einhver misseri. Það
verður þá bara að koma í ljós. En ég fæ að heyra að
áhuginn sé til staðar en einhver reiði eigi eftir að krauma
í sambandi við þetta mál allt saman. Þetta mun þó ekki
hafa djúpstæð áhrif á samstarf sveitarfélaganna sem,
þrátt fyrir allt, eru eins og systkin.
Húnaþing vestra
Ekki þarf að hafa áhyggjur af sameiningum í Vestur-
Húnavatnssýslu þar sem nú þegar er mikil og góð heild
í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra. Þar stjórnar öflugt
teymi og engin breyting verður þar á. Sveitarfélagið
hefur yfir öflugum sveitarstjóra að ráða og svo mun
einnig verða eftir kosningar. Það er engu líkara en
Húnaþing vestra sé í stórsókn líkt og raunin er um allt
Norðurland vestra. Ferðabransinn fær ferskt loft í
lungun og nýtur héraðið góðs af því um allt héraðið.
Þrátt fyrir að Vatnsnesvegurinn fái enga yfirhalningu
sem gagn er að verður hann fjölfarinn sem fyrr þegar
ferðamenn fara að fjölmenna á ný.
Íþróttir
Kormákur/Hvöt á afar erfitt tímabil fyrir höndum þar
sem leikmenn meistaraflokks mæta virkilega öflugum
andstæðingum í 3. deildinni og næsta víst að ástandið
virðist oft óyfirstíganlegt. Það kæmi mér ekki á óvart að
uppskeran verði rýr í lok tímabils og, eins leiðinlegt og
er að segja það, jafnvel fall. En ef rétt er á spilum haldið
og allir einbeittir á markmiðin er allt hægt. Vonum það
besta.
Karlalið Tindastóls er að hefja nýja vegferð í sinni
sögu og þó að liðið leiki í neðstu deild í ár er það samt
ákveðin áskorun. Margir möguleikar felast í stöðunni
sem á eftir að koma sér vel fyrir liðsheildina, jafnvel þó
liðið fari ekki upp um deild fyrr en síðar. Margt gott á
sér stað sem koma mun liðinu vel í framtíðinni þar sem
fagleg miðlun og umræða á eftir að breyta kúltúrnum
í liðinu til hins betra.
Það mun einnig hafa áhrif á yngri lið félagsins sem
eiga eftir að sjá miklar breytingar með öflugu og faglegu
starfi þjálfara og góðu utanumhaldi. Mér sýnist t.d.
sameinaður 2. flokkur félaga á Norðurlandi vestra eiga
eftir að gera það gott. Þar er mér sýndur góður árangur,
athyglisverð sköpun, ef hægt er að orða það svo, og svo
mikil gleði sem smitast mun til áhorfenda sem eiga eftir
að flykkjast á bak við liðið og styðja vel.
Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls verða sigur-
sælar í 1. deildinni í sumar og munu berjast á toppnum
enda með mikla reynslu og getu. Hvort þær fari upp í
Pepsí í haust eru örlagadísirnar ekki alveg tilbúnar að
Þrátt fyrir afleitt ástand Vatnsnesvegar munu ferðamenn halda áfram
að þeysast fram og aftur holótta blindgötuna. Hér eru Sigurður Ingi
Jóhannsson þv. samgönguráðherra og Arnheiður Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands að opna Norðurstrandaleið
formlega við Hvammstangaafleggjara í júní 2019. MYND:P PF
Einhverjar blikur eru á lofti í hestasamfélaginu í Skagafirði en vonandi
verða þær ekki alvarlegar. MYND ÚR SAFNI FEYKIS
Horfurnar eru góðar hjá nýju sveitarfélagi í Austur-Húnavatnssýslu og
með bjartsýni að vopni má nýta sér slagkraftinn til frekari atvinnu-
uppbyggingar. MYND: VALDIMAR GUÐMANNSSON
6 01/2022