Feykir - 05.01.2022, Side 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Laukur.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvernig fannst
þér áramóta-
skaupið?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Allavegana ekkert til að fara
grenja yfir! Fannst margt
geggjað í því.“
Gréta María
Halldórsdóttir
Tilvitnun vikunnar
Trúðu á drauma þína, sama hversu ómögulegir þeir virðast
– Walt Disney
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Virginia Woolf var breskur rithöfundur, gagnrýnandi og femínisti
og ein áhrifamesta kona skáldsagnahöfunda á 20. öld. Á WikiPedia
segir að hún hafi ekki lagt mikla áherslu á flóknar fléttur eða djúpa
persónusköpun heldur á tilfinningalíf og hugmyndir söguhetjanna.
Virginia átti við geðræn vandamál að stríða sem varð þess valdandi
að hún framdi sjálfsmorð þann 28. mars 1941 með því að drekkja sér.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá sat hún ekki við skriftir heldur stóð hún
alltaf er hún skrifaði skáldsögur sínar.
„Svona allt í lagi.“
Jakob Sævar
„Eitt orð yfir það:
Hræðilegt!"
Sigþór Smári
Sigurðsson
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Einhver týndi dósinni sinni.
F
„Svona lala.“
Sigurlína Hrönn
Einarsdóttir
Fylltar kjúklinga-
bringur og banana-
döðlublauð
Matgæðingur vikunnar er Erna María Jensdóttir, frá Gili í Skaga-
firði, sem býr ásamt eiginmanni sínum og þrem börnum í Keflavík.
Erna er önnum kafin þessa dagana því hún er á lokametrunum í
mastersnámi í Nýsköpun og viðskiptaþróun við Háskóla Íslands.
Erna endaði svo eitt skólaverkefnið sitt á því að ráða sig til
starfa hjá vaxandi sportafyrirtæki á Suðurnesjunum, Geosilica
og hefur því eldamennskan fengið minni tíma hjá henni. Erna
var hins vegar svo heppin að eignast, í sumar, hinn vinsæla
Airfryer og hefur hann hjálpað mikið til við matreiðslu heim-
ilisins og mælir hún með því að prufa að steikja kjúklinginn í
meðfylgjandi uppskrift í slíkum potti fyrir þá sem eiga.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Erna María Jensdóttir | frá Gili í Skagafirði
AÐALRÉTTUR
Fylltar
kjúklingabringur
með sveppasósu
4 kjúklingabringur (vasi skorinn
í hverja bringu)
kjúklingakrydd eftir smekk
Fylling:
1-2 hvítlauksgeirar
½ poki ferskt spínat
100 g ricottaostur eða
rjómaostur
5-6 msk. saxað ferskt basil
½ msk. rifinn börkur af sítrónu
2 msk. kúskús (eldað)
2 msk. brauðmylsna
Aðferð: Steikið hvítlaukinn við
vægan hita þar til hann fer að
mýkjast, bætið þá spínatinu á
pönnuna og steikið áfram á
vægum hita í nokkrar mínútur.
Restinni er svo bætt við og hrært
vel saman og smakkað til með
salti og pipar. Því næst er fyll-
ingin sett í vasana sem síðan er
lokað með nokkrum tann-
stönglum. Bringurnar eru steiktar
í 2-3 mínútur. á hvorri hlið áður
en þær eru eldaðar í ofni við um
180°C í u.þ.b. 20 mínútur.
Sveppasósa:
250 g ferskir sveppir
1 tsk. kjúklingakrydd
1-2 dl matreiðslurjómi
kjúklingasoð (½ -1 teningur)
sósujafnari
Aðferð: Sveppirnir eru steiktir
upp úr smjöri þar til þeir hafa náð
góðum lit, restinni er síðan bætt
út í og látið sjóða við vægan hita í
u.þ.b. 10 mínútur.
Gott að bera fram með fersku
salati og steiktu rótargrænmeti.
EFTIRRÉTTUR
Banana-döðlubrauð
í hollari kantinum
1 bolli hveiti
1 bolli haframjöl
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
1-1½ tsk. kanill
2-3 vel þroskaðir bananar (og
vel stappaðir)
1 egg
8 fínt saxaðar döðlur u.þ.b.
½-1 dl mjólk (fer eftir magninu
af bönununum)
Aðferð: Blandið þurrefnum
saman í skál. Bætið bönunum,
eggi og döðlum saman við.
Hrærið varlega saman og setjið í
eitt stórt brauðform, eða tvö
minni. Munið að smyrja formin
áður eða notið bökunarpappír.
Bakið í ofni við 180-200°C í u.þ.b.
40 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
Erna María skorar á frænku sína,
Söndru Gestsdóttur, að taka við
matgæðingaþættinum.
Erna María.
MYND AÐSEND
01/2022 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Sauðurinn hann svöngum gefur.
Sómi hverri ætt.
Úr moldu vaxinn margoft hefur
matinn þinn bætt.