Feykir


Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 4

Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 4
AÐSENT | Einar Kristján Jónsson skrifar Í tengslum við sameiningarviðræður Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps hefur verið hrundið af stað verkefni til undirbúnings stofnunar umhverfisakademíu á Húnavöllum með fyrirhuguð- um stuðningi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hugmyndin hafði áður verið rædd í tengslum við sameiningarviðræður sveitar- félaganna fjögurra í Austur- Húnavatnssýslu. Starfshópur sem skipaður var í nóvember 2021 skilaði nýlega af sér skýrslu þar sem niðurstaðan er að stofnun umhverfisakademíu á Húnavöllum sé vænlegur kostur fyrir sveitarfélögin sem að sam- einingarviðræðunum standa. Ekkert nám í umhverfisfræðum er í boði á framhaldsskólastigi á Íslandi þótt víða sé hægt að finna greinar á sviði umhverfisfræða í námskrám háskólanna. Umhverfisakademían myndi því fylla í eyðu í skólakerfinu á sviði sem ætti að vera eftirspurn eftir. Góð aðstaða er fyrir starfsemina á Húnavöllum. Verði af sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps má gera ráð fyrir að nýr grunnskóli verði stofnaður og kennt verði á Blönduósi eftir árið 2024. Að síðustu horfði starfshópurinn til þess að í tengslum við undirbúning sameiningar ættu að vera sóknarfæri til að afla stuðnings ríkisins við nýjar og áhugaverðar hugmyndir og fá fjárhagslegan og pólitískan stuðning til að hrinda þeim í framkvæmd. Umhverfisakademían er hugsuð sem lýðskóli, en með því er átt við skóla fyrir 18 ára og eldri sem hefur það að markmiði að veita almenna menntun og uppfræðslu og undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðissamfélagi. Nám í skólanum er ekki metið til eininga, en getur orðið nemendum til framdráttar í frekara námi eða starfi. Starfsemi skólans þarf að uppfylla ýmis skilyrði til að hljóta viðurkenningu fræðslu- yfirvalda, s.s skilyrði um húsnæðisaðstöðu, menntun skólastjórnenda og viðurkennda starfshætti. Starfstími með nemendum í Lýðskóla á að lágmarki vera 12 vikur á skólaárinu og gert er ráð fyrir að nemendur myndu búa á staðnum á námstímanum. Starfsemin gæti því fallið vel að rekstri ferðaþjónustu á Húnavöllum utan háannatímans. Skóli fyrir eldri nemendur en grunnskóla hefur ótvíræða kosti fyrir héraðið allt. Með rekstri skóla á framhaldsskólastigi felast ótal tækifæri eins og sannast hefur með tilkomu dreifnáms FNV í A-Hún. Nýting fasteigna sem að öðrum kosti myndu vera í takmörkuðum notum nema sem hótel er ótvíræður kostur. Með umhverfisnámi getur A-Hún markað sér ákveðna sérstöðu á sviði umhverfismála og skapað sér jákvætt orðspor sem gæti leitt til meiri áhuga til búsetu í héraðinu. Einar Kristján Jónsson sveitarstjóri Húnavatnshrepps og formaður starfshóps um stofnun umhverfisakademíu að Húnavöllum Umhverfisakademía? Hvað er það? AÐSENT | Guðmundur Haukur Jakobsson og Jón Gíslason skrifa Þann 19. febrúar nk. verður kosið um sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Meirihluti kjósenda í sveitarfélögunum tveimur samþykkti tillögu um sam- einingu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu í kosningum í júní 2021, en meirihluti íbúa Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skaga- strandar felldi tillöguna. Í kjölfarið ákváðu sveitar- stjórnir Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps að gefa íbúum sínum færi á að kjósa um sameiningu sveitar- félaganna tveggja. Eftir að hafa skoðað málið í samstarfsnefnd um sameiningu er það niðurstaða okkar að sam- eining myndi verða samfélaginu til góðs, ekki síst þegar kemur að hagsmunagæslu fyrir svæðið. Okkur sem störfum í sveitarstjórnum sveitarfélaganna tveggja þykir hagsmunir sveitarfélaganna okkar oft vega of lítið þegar kemur að skipt- ingu á fjármunum ríkisins sem renna eiga til þess að auka lífsgæði íbúa landsins og framkvæmdum á þess vegum. Á svæðinu okkar er urmull af tækifærum í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, uppbyggingu textílklasa, nýtingu orku í hátækniiðnaði og matvælaframleiðslu svo eitthvað sé nefnt. Hér er á ýmsu að byggja í blómlegu mannlífi og menningarstarfi og íbúaþróun hefur verið jákvæð. Það sem helst heldur aftur af framþróuninni eru inn- viðirnir. Mikil orkuframleiðsla er nú þegar í Blönduvirkjun og fyrirhugað að auka við hana, en þegar kemur að því að flytja orkuna til okkar, strandar á byggðalínunni. Fjölmargir ferðamenn eiga leið um svæðið á degi hverjum, en ástand vega utan hringvegarins og takmörkuð uppbygging á ferða- mannastöðum standa uppbyggingu í ferðaþjónustu fyrir þrifum. Þessa sömu vegi þurfa fjölmargir íbúar að aka um daglega á leið til og frá vinnu eða skóla. Samstarfnefnd hefur að undanförnu unnið að því að vekja athygli ráðherra og þingmanna á þörf fyrir uppbyggingu héraðs- og tengivega og stóraukið viðhald þeirra. Við höfum talað fyrir aukinni flutningsgetu byggðalínunnar frá Blönduvirkjun og auknum stuðn- ing við atvinnuuppbyggingu með framlögum úr Framkvæmda- sjóði ferðamannastaða og fjölgun starfa á innheimtumiðstöð sýslu- mannsins á Blönduósi. Við höfum einnig vakið athygli á þörfinni fyrir bundið slitlag á Blönduós- flugvöll og bætta heilbrigðis- þjónustu og samhliða samein- ingarviðræðunum hefur verkefni um stofnun umhverfisakademíu á Húnavöllum verið hrundið úr vör með stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Við höfum þannig lagt grunninn að frekari baráttu fyrir þessum hagsmunum fyrir þá sem taka við keflinu í sameinuðu sveitarfélagi. Með viðræðum um sameiningu hefur sveitarstjórnarfólk í Blönduósbæ og Húnavatnshreppi tekið frumkvæði í að fylgja stefnu stjórnvalda með því að kanna forsendur fyrir sam- einingu sveitarfélaganna. Við í samstarfsnefndinni væntum þess að ríki og Alþingi fylgi eigin stefnumörkun á sama hátt og sveitarfélögin, með því að forgangsraða fjármunum til að styðja myndarlega við verkefnið. Við teljum fullvíst að fjölmennara sveitarfélag eigi auð- veldara með að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að meiri líkur séu á því að á okkur verði hlustað þegar við komum fram saman en sitt í hverju lagi. Guðmundur Haukur Jakobsson forseti sveitarstjórnar Blönduósbæjar Jón Gíslason oddviti sveitarstjórnar Húnavatnshrepps Áfram veginn! Samstarf Tindastóls og Örgryte í Svíþjóð Þrír efnilegir fóru í víking Á dögunum fóru þrír leikmenn Tindastóls til reynslu til sænska liðsins Örgryte IS sem leikur í næstefstu deild þar í landi. Leikmennirnir sem um ræðir eru Einar Ísfjörð Sigurpálsson (2005), Jón Gísli Stefánsson (2004) og Sigurður Pétur Stefánsson (2003) en þeir hafa allir nýverið skrifað undir samninga við lið Tindastóls. Þeir æfðu með U19 ára liði Örgryte og til stóð að þeir spiluðu einn æfingaleik. Fram kemur í frétt á Tindastóll.is að ferð strákanna er partur af spennandi samstarfi sem Tindastóll er að byggja upp með Örgryte sem er gamalgróið atvinnumannafélag i Svíþjóð. Samstarf sem verður síðan þróað í sameiningu á næstu árum. „Þetta er virkilega spennandi ferð fyrir þessa flottu leikmenn. Allir hafa þeir lagt gríðarlega hart að sér og lagt mikinn metnað í æfingar og uppskera eftir því,” segir Donni, þjálfari meistara- flokka Tindastóls og yfirmaður knatt- spyrnumála. „Við viljum hjálpa öllum okkar leikmönnum að eiga möguleika á að taka næsta skref á ferlinum. Það verður gaman að heyra hvernig dreng- irnir upplifa það að æfa við bestu að- stæður og hvernig þeir taka þá reynslu með sér á næstu mánuðum og árum,” segir Donni í fréttinni. Þess má til gamans geta fyrir þá sem ekki koma þessum köppum fyrir sig að Einar Ísfjörð er Króksari, sonur Sigga Dodda og Kristínar Elfu Magnúsdóttur. Bræðurnir Jón Gísli og Sigurður Pétur eru frá Blönduósi, synir Stefáns Ólafs- sonar hæstaréttarlögmanns og Erlu Ísa- foldar Sigurðardóttur póstmeistara á Blönduósi. Erla Ísafold er dóttir Sigurðar Hermansssonar frá Blönduósi og Sig- fríðar Jónsdóttur frá Vestmannaeyjum. Hún spilaði áður með Hvöt við góðan orðstýr sem vinstri bakvörður og þótti hörð í horn að taka. Samkvæmt inn- herjaupplýsingum Feykis heldur hún því fram að hæfileikar drengjanna á knatt- spyrnusviðinu komi frá sér. /ÓAB Einar Ísfjörð fyrir miðju og bræðurnir Jón Gísli og Sigurður Pétur á sænskri grundu. 4 04/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.