Feykir - 26.01.2022, Qupperneq 5
Knattspyrnudeiild Tindastóls
Hannah Cade á krókinn
hjá kvennaliði Tindastóls
Hannah Jane Cade, sem spilaði
með Fram í 2. deild kvenna sl.
sumar, hefur samið við knatt-
spyrnudeild Tindastóls um að
stíga dansinn með Stólastúlkum
í Lengjudeildinni í sumar.
Hannah er 24 ára miðjumaður
og er væntanleg til landsins um
miðjan febrúar.
„Hannah Cade er fjölhæfur
miðjumaður sem getur einnig
leyst fleiri stöður á vellinum.
Hannah er frábær karakter og
góður liðsmaður sem við vænt-
um mjög mikils af. Við hlökkum
mikið til að fá hana til okkar í
febrúar og gerum ráð fyrir því að
hún muni hafa góð áhrif á liðið
að öllu leyti,“ segir Donni, aðal-
þjálfari meistaraflokka Tinda-
stóls, í samtali við Tindastóll.is.
Þrjár heimastúlkur sömdu
Þrjár Tindastólsstúlkur skrifuðu
sl. helgi undir tveggja ára
samning við Knattspyrnudeild
Tindastóls og leika því í sumar
með Stólastúlkum í Lengju-
deildinni. Þetta eru þær Birna
María Sigurðardóttir, Magnea
Petra Rúnarsdóttir og Marsilía
Guðmundsdóttir en þær hafa
allar komið upp í gegnum ung-
mennastarf Stólanna og voru
viðloðandi hóp Tindastóls í
Pepsi Max deild kvenna á síðasta
tímabili.
Birna María á reyndar að
baki 51 leik með liði Tindastóls
en hún er fædd árið 2000. Hinar
tvær eru fæddar 2005 og kom
Magnea Petra við sögu í tveimur
leikjum í Pepsi Max deildinni í
fyrra en Marsilía á enn eftir að
koma við sögu í deildarleik með
meistaraflokki Tindastóls skv.
heimasíðu KSÍ en báðar eiga
þær hátt í tíu leiki í Kjarna-
fæðismóti og Lengjubikar. /ÓAB
Hannah Cade.
Körfubolti
Covid stríðir Stólunum
Kórónuveiran hefur stungið sér
niður í röðum körfuboltafólks
hjá Tindastóli og hefur því þurft
að fresta síðustu leikjum hjá
bæði stelpunum og strákunum.
Strákarnir áttu að mæta liði
KR sl. fimmtudag og stelpurnar
áttu sömuleiðis von á Vestur-
bæingum í heimsókn um liðna
helgi.
Tap gegn ÍR
Kvennalið Tindastóls í körfu-
bolta spilaði fyrsta leik sinn í
rúman mánuð þegar þær héldu
suður í Breiðholt sl. miðvikudag
þar sem lið ÍR beið þeirra í TM
hellinum. Liði Tindastóls hefur
gengið brösuglega gegn sterku
ÍR liði síðustu misserin og það
varð engin breyting á því að
þessu sinni og verður að viður-
kennast að lið ÍR er skör hærra
á körfuboltasviðinu. Staðan í
hálfleik var 48-23 en heima-
stúlkur slökuðu aðeins á í síðari
hálfleik og lokatölur urðu 81-
54.
Það er auðvitað deginum
ljósara að brotthvarf Ksenju,
sem kvaddi lið Tindastóls í
desember, skilur liðið eftir
veikara og enn meiri þungi
hvílir á Maddie Sutton í leik
liðsins. Hún var með 39 fram-
lagspunkta í leiknum en restin
af liðinu átta. Það er þó ekkert í
boði að hengja haus. /ÓAB
Maddie sækir að körfu ÍR fyrr í vetur. MYND: DAVÍÐ MÁR
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FAÐSENT | Þóra Sverrisdóttir skrifar
Nú er komið að því að kjósa um sameiningu
Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar þann 19.
febrúar nk. Aðdragandi þess er búinn að vera
langur en í byrjun
júní sl. var kosið um
sameiningu sveitar-
félaganna fjögurra í
Austur- Hún. eftir
tæplega fjögurra ára
viðræður/undirbún-
ingstíma. Sú sam-
einingartillaga var
samþykkt í Húna-
vatnshreppi og
Blönduósbæ en felld
í hinum tveimur og
því varð ekki af þeirri sameiningu. Sú ákvörðun
var tekin í sveitarstjórn Húnavatnshrepps að
kanna hug íbúa til sameiningar þessara tveggja
sveitarfélaga og voru 2/3 kjósenda jákvæðir fyrir
að skoða þessa sameiningu.
Hagsmunir íbúa Húnavatnshrepps og Blöndu-
ósbæjar liggja saman á flestum sviðum. Á
Blönduósi er miðstöð verslunar og þjónustu,
bæði á hendi einkaaðila og hins opinbera, ásamt
því að mjög margir íbúar Húnavatnshrepps sækja
atvinnu þar. Þar er einnig rekið dreifnám fyrir
íbúa í A-Hún.
Nú er fyrirliggjandi að breytingar munu þurfa
að verða á rekstri grunnskóla í Húnavatnshreppi
innan tíðar hvort sem af sameiningu verður eða
ekki þar sem nemendafjöldi Húnavallaskóla er
orðin það lítill að ekki eru nema þrír nemendur
að meðaltali í árgangi. Býður það upp á ýmsa
veikleika svo sem einhæft félagaval og einhæft
námsval. Einnig er grundvöllur hópíþrótta og
hópavinnu orðinn hæpinn þar sem margir
árgangar þurfa að vera saman við ójafnan leik
vegna þroska- og aldursmunar. Jafnframt er orðið
erfitt að standa fyrir stærri viðburðum í skólanum
svo sem árshátíðum og bingói þar sem svo fáir
koma að undirbúningnum. Nokkur börn búsett í
Húnavatnshreppi eru nú með lögheimili á
Blönduósi til að geta sótt Blönduskóla þar sem
foreldrar þeirra telja það betri kost fyrir börnin
sín með tilliti til áðurnefndra þátta, þrátt fyrir
ágætt starf sem fram fer í Húnavallaskóla og
starfsfólk sem gerir sitt besta miðað við þessar
forsendur. Er nú svo komið að margir nemendur
Húnavallaskóla og foreldrar þeirra bíða eftir að
breyting verði á skipan þessara mála.
Í undirbúningi er stofnun Umhverfisaka-
demíu á Húnavöllum – lýðskóla sem samræmist
vel þeim hótelrekstri sem þar hefur verið rekinn
á heilsársgrundvelli sl. fimm ár og hafa ráða-
menn gefið loforð fyrir fjármagni í verkefnið ef af
sameiningu verður. Mikil áhersla er á umhverfis-
og loftslagsmál í dag og má sjá fyrir sér að þetta
verkefni geti vaxið hratt og orðið umfangsmikið
á stuttum tíma. Það eru jafnframt miklir mögu-
leikar á ylræktun grænmetis t.d. enda gott
aðgengi að heitu vatni þar.
Við búum yfir miklum mannauði á svæðinu
sem við þurfum að geta nýtt betur til sóknar,
mannlífið er gott og grunnþjónusta er nokkuð góð
en hana þarf að efla enn frekar svo sem þjónustu
við börn, unglinga, öryrkja og eldri borgara. Má
þar m.a. nefna frístundaakstur og frístundaheimili.
Við þurfum að sækja fram, efla samfélagið
okkar, vegakerfið, fjölga atvinnutækifærum og
gera það ákjósanlegt fyrir unga fólkið að snúa til
baka/ velja sér búsetu hér, hvort heldur sem er í
þéttbýli eða dreifbýli. Ég tel að við verðum mun
öflugri og samhentari og munum ná betri árangri í
þessum málum sem eitt sveitarfélag. Með
sameinuðu sveitarfélagi höfum við sterkari rödd út
á við, gagnvart ríkisvaldinu og einnig í samstarfi
við önnur sveitarfélög og erum fýsilegri kostur
fyrir hvers kyns atvinnustarfsemi.
Núna er fjárhagsleg staða sveitarfélaganna
beggja erfið eins og flestra annarra sveitarfélaga
sem rekja má til áhrifa heimsfaraldurs Covid19.
Það er fyrirsjáanlegt að ef ekki verður af þessari
sameiningu verður sveitarfélögunum tveimur
þröngur stakkur búinn næstu árin varðandi
rekstur og ekki síst allar fjárfestingar og fram-
kvæmdir. Ef hins vegar af sameiningu verður þá
mun nýtt sveitarfélag fá hátt í 600 milljónir í
sameiningarframlög frá Jöfnunarsjóði, þar af er
tæplega helmingur þeirrar fjárhæðar skulda-
jöfnunarframlag. Er það mikil innspýting fyrir
svæðið. Ef að Húnavallaskóli og Blönduskóli yrðu
sameinaðir á einn kennslustað þá munu grunn-
skólaframlög haldast óbreytt næstu fimm ár á eftir
eins og um tvo kennslustaði væri að ræða sem
gerir um 44 milljónir á ári eða um 220 milljónir á
fimm árum. Jafnframt er áætlað að 40-50 millj.
króna hagræðing yrði á ári ef kennslustaður er
einn. Samtals má segja að sameining færi okkur
um milljarð i innspýtingu svæðisins og munar um
minna. Þessir fjármunir munu gera okkur kleift að
efla og styrkja samfélagið enn frekar og veita betri
þjónustu. Einnig munu árleg reglubundin framlög
Jöfnunarsjóðs hækka um 24 milljónir króna eftir
sameiningu og munar um minna.
Í tillögum samstarfsnefndar er gert ráð fyrir
að fyrirkomulag og tilhögun fjallskilamála muni
verða með óbreyttum hætti ef sveitarfélögin
sameinast. Það verði áfram staðbundnar fjall-
skilastjórnir og nýtt sveitarfélag muni sjá um
viðhald rétta, afréttagirðinga og gangnamanna-
skála eins og verið hefur.
Mín upplifun er sú að við séum eitt samfélag á
flesta vegu og því sé ég enga meinbugi á því að
sveitarfélögin tvö sameinist. Við erum sterkari
saman en í sundur og höfum heildarhagsmuni
svæðisins að leiðarljósi.
Ef ekki verður af sameiningu núna er ekki fast
í hendi hvort íbúar hér muni hafa val um
framtíðarskipan sveitarfélaganna en útlit er fyrir
að það verði lögskipaðar sameiningar innan fárra
ára vegna þess hversu íbúar eru fáir.
Það er afar mikilvægt að íbúar mæti á kjörstað
laugardaginn 19. febrúar og greiði atkvæði um
þessa sameiningartillögu til þess að niðurstöður
kosninganna endurspegli vilja íbúanna og vil ég
því hvetja alla íbúa til að nýta kosningaréttinn.
Undirrituð hefur setið í sveitarstjórn Húna-
vatnshrepps síðan 2010, þar af fjögur ár sem
oddviti. Ég á fjögur börn og þrjú barnabörn, er
sjúkraliði og rekstrarfræðingur og við hjónin
rekum sauðfjárbú að Stóru-Giljá.
Þóra Sverrisdóttir
Fulltrúi í samstarfsnefnd Blönduósbæjar
og Húnavatnshrepps
Kæru íbúar Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar
Tökum næsta skref inn í framtíðina
03/2022 5