Feykir - 09.02.2022, Síða 2
Nú er rétt rúm vika í sameiningarkosningar og spennan alveg
að fara með mannskapinn, eða ekki! En hvernig sem spennan
er þá verður kosið þann 19. febrúar næstkomandi um
sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps annars
vegar og Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hins
vegar.
Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og
eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi
sveitarfélagi og er alls ekki
ónauðsynlegt að hvetja fólk til að
mæta á kjörstað. Kjörskrár liggja
frammi á skrifstofum sveitarfélaganna
og á heimasíðu Þjóðskrár, skra.is,
geta einstaklingar gengið úr skugga
um hvort þeir séu ekki örugglega á
kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa.
Kjörfundir fara fram víðsvegar í sveitarfélögunum en í
Húnavatnssýslunni verða þeir tveir, á Blönduósi í norðurenda
Íþróttamiðstöðvar frá kl. 10 til 20 og á Húnavöllum frá kl. 11 til
20.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Kjörfundir verða nokkru fleiri í Skagafirði, einn í Akrahreppi
þar sem kosið verður í Héðinsminni frá kl. 12 og í Sveitarfélaginu
Skagafirði verður hægt að kjósa á sjö stöðum: Bóknámshúsi
FNV á Sauðárkróki frá kl. 9, Félagsheimilinu Höfðaborg á
Hofsósi frá kl. 10, Varmahlíðarskóla frá kl. 10, Félagsheimilinu
Ketilási frá kl. 12, Grunnskólanum á Hólum frá kl. 12 og
Félagsheimilinu Árgarði í Steinsstaðahverfi frá kl. 12 og
Skagaseli frá kl. 12.
Á heimasíðu sameiningarnefndarinnar í Skagafirði segir að
kjörfundi megi slíta átta klukkutímum eftir að kjörfundur hefst,
enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig
síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa
hafa greitt atkvæði. Kjörfundi má einnig slíta fimm
klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er sammála um
það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf
sig síðast fram. Þetta kallar á að fólk mæti tímanlega til
kjörfundar.
Aðsetur kjörstjórnar í Sveitarfélaginu Skagafirði verður í
Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki en í öðrum sveitarfélögum á
viðkomandi kjörstöðum á kjördag. Talning atkvæða fer fram
þar sem kjörstjórn hefur aðsetur og hefst eftir að öllum
kjörstöðum hefur verið lokað. Verða atkvæða talin og úrslit birt
m.a. á skagfirdingar.is og hunvetningur.is.
Mig grunar að íbúar Blönduóss, Húnavatnshrepps og
Akrahrepps muni ekki láta sig vanta á kjörstað en stóra
spurningin er hvað íbúar Svf. Skagafjarðar muni gera. Síðast
þegar var kosið í Skagafirði, árið 2005, var kjörsókn þar í
algjöru lágmarki og óvíst hvort úrslit hafi sagt til um hug
íbúanna til sameiningar. Því segir ég: Ekkert kæruleysi og
mætum á kjörstað og kjósum með hjartanu!
Góðar stundir!
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Mikilvægar kosningar framundan
AFLATÖLUR | Dagana 30. janúar til 5. febrúar á Norðurlandi vestra
Arnar HU 1 með rúm 490 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Málmey SK 1 Botnvarpa 204.490
Alls á Sauðárkróki 698.414
SKAGASTRÖND
Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína 6.037
Hópsnes GK 77 Landbeitt lína 4.541
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.502
Von HU 170 Lína 7.316
Alls á Skagaströnd 19.396
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 3.661
Ragnar Alfreðs GK 183 Lína 4.269
Alls á Hvammstanga 7.930
SAUÐÁRKRÓKUR
Arnar HU 1 Botnvarpa 490.033
Lundey SK 3 Þorskfisknet 3.891
Það var heldur rólegt í höfnunum á Norðurlandi
vestra í síðustu viku því aðeins ellefu landanir
áttu sér stað. Á Króknum var landað fimm
sinnum og komu rúm 698 tonnum á land.
Arnar HU 1 var aflahæstur með 490.033 kg.
Þá voru fjórar landanir á Skagaströnd og komu
þar 19.396 kg á land. Aflahæst var Von HU 170
með 7.316 kg.
Tveir lönduðu á Hvammstanga samtals 7930
kg, Harpa HU 4 og Ragnar Alfreðs GK 183. Enginn
landaði á Hofsósi og var heildarafli á Norðurlandi
vestra 725.740 kg.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði
Óbreyttum samningi ekki framhaldið
Samningur um rekstur
skólabúðanna að Reykjum í
Hrútafirði er runninn út og
verður ekki framlengdur í
óbreyttri mynd, eftir því sem
fram kemur í fundargerð
sveitarstjórnar Húnaþings
vestra, en hann hefur verið
tvíframlengdur við núverandi
rekstraraðila.
Reykjatangi ehf. hefur
starfrækt búðirnar frá árinu
2003 en eigendur eru hjónin
Karl B. Örvarsson og Halldóra
Árnadóttir. Hafa þau lýst áhuga
á að halda rekstrinum áfram en
í fyrrnefndri fundargerð kemur
jafnframt fram að aðrir
áhugasamir aðilar hafi einnig
gefið sig fram.
Nú verður leitað hugmynda og
tilboða í framtíðarrekstur
búðanna og hefur sveitarstjóra
og byggðarráði verið falið að
gera tillögu til sveitarstjórnar
um hvernig auglýst skuli eftir
samstarfsaðilum um rekstur
þeirra, samningsdrög, hvaða
kröfur skuli gerðar, hvaða
skilyrði umsækjandi þurfi að
uppfylla og hvernig valið verði
milli umsækjenda.
Skólabúðirnar í Reykjaskóla
tóku til starfa haustið 1988 og
hafa starfað óslitið síðan.
Nemendum grunnskóla, víðs-
vegar að af landinu, gefst kostur
á að dvelja í skólabúðunum,
vikutíma í senn, við nám, leik
og störf. Á heimasíðunni
skolabudir.is segir að árlega
komi u.þ.b. 3000 börn í
skólabúðirnar og miðast
starfstíminn að mestu við
skólaár grunnskóla landsins. Í
dag starfa átta manns í fullu
starfi við búðirnar auk fólks í
hlutastörfum en utan hefð-
bundins starfstíma þeirra er
rekin ferða- og veisluþjónusta í
Reykjaskóla. /PF
Skólabúðirnar Reykjaskóla en myndin er
fengin af heimasíðu þeirra.
Uppbygging á Skagaströnd
Ætla að fjölga íbúðum í sveitarfélaginu
Sveitarfélagið Skagaströnd og
Húsnæðis- og mannvirkja-
stofnun hafa gert með sér
viljayfirlýsingu um samstarf
þess efnis að leita leiða til að
fjölga íbúðum og efla stafræna
stjórnsýslu á Skagaströnd.
Lítið hefur verið byggt af
íbúðarhúsnæði á staðnum en
einungis hefur fjölgað um eina
íbúð síðastliðinn áratug þegar
byggt var einbýlishús og er
íbúðaskortur farinn að hafa
veruleg áhrif, eftir því sem fram
kemur á heimasíðu HMS.
Þar segir ennfremur að í
núgildandi húsnæðisáætlun
sveitarfélagsins komi meðal
annars fram að skortur á
íbúðarhúsnæði hamli eðlilegri
framþróun sveitarfélagsins.
Ungt fólk sem vilji snúa aftur
heim að loknu námi eða nýir
íbúar sem vilja sækja atvinnu
hafa ekki um mikið að velja.
Skortur á húsnæði hamli
fjölgun íbúa í sveitarfélaginu
þar sem lítið og stundum ekkert
íbúðarhúsnæði standi til boða.
„Það er veigamikill þáttur í
uppbyggingu á atvinnu í
sveitarfélaginu og auknum
umsvifum í ferðaþjónustu að til
staðar sé hentugt húsnæði fyrir
aðila sem vilja setjast að á
Skagaströnd. Sveitarfélagið
fagnar þessu framfaraskrefi
sem felst í samstarfi við HMS
og vonast til þess að það verði
gjöfult til framtíðar þegar
kemur að nýbyggingum á
fasteignum á Skagaströnd,“
segir Alexandra Jóhannesdóttir
sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagastrandar.
Í viljayfirlýsingunni kemur
fram að markmið samstarfsins
sé að fjölga íbúðum í
sveitarfélaginu þá meðal annars
með því að nýta þau úrræði
sem HMS hefur úr að ráða og
auglýsa eftir byggingaraðilum
sem vilja taka þátt í
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í
sveitarfélaginu. Ásamt þessu
komi sveitarfélagið og HMS til
með að vinna að eflingu
stafrænnar stjórnsýslu í sveitar-
félaginu, meðal annars með
útgáfu á stafrænni húsnæðis-
áætlun, markvissri notkun
mannvirkjaskrár HMS auk þess
að undirbúningur hefjist við
skráningu leigusamninga á
svæðinu í húsnæðisgrunn
HMS. Viljayfirlýsingin er hluti
af verkefninu Tryggð byggð
sem er samstarfsvettvangur um
húsnæðisuppbyggingu á
landsbyggðinni. /PF
2 06/2022