Feykir - 09.02.2022, Qupperneq 9
Heilir og sælir lesendur góðir.
Fyrir, því miður, allt of mörgum árum
var undirritaður svo heppinn að eignast
indæla nótt með gleðskaparfólki úr
Biskupstungum. Var mikið sungið og
meðal annars rifjaðar upp svokallaðar
druslur sem oft hafa verið vinsælar til
söngs í þeirri sveit. Tókst mér að læra
þá sem oftast var sungin og þótti ekki
verra að upplýsa Húnvetninginn um að
þar færi sannkallaður biblíusöngur, með
lagboðanum Lofið vorn drottin.
Kristján í Stekkholti
í kaupstað með nautin sín ríður.
Kúfskjótta merin
sem ljósgeisli um jörðina líður.
Hátt ber hann lof.
Hans mun þó aldrei um of.
Safnaðarfulltrúinn fríður.
Reynt hef ég að finna höfund að þessum
ágæta brag en þeir sem helst vita telja
hann muni vera eftir skáldið Pál bónda á
Hjálmsstöðum, ekkert hægt að vita meira
um það.
Fyrir voða mörgum árum síðan var
Svavar Gests með dægurlagaþátt í
útvarpinu á sunnudögum. Var hann
vinsæll þó kannski líkaði hann ekki alveg
öllum. Af því tilefni mun Guðmundur
Arnfinnsson hafa ort svo:
Einn sunnudag söngglaður fress
tók sóló með eindæmum hress,
þá vaknaði af blundi
bóndinn og stundi.
Æ. Byrjar nú Svavar Gess.
Einhverju sinni var gerð skoðanakönnun
meðal svokallaðs menntafólks og kom
þá í ljós að það hikaði við að kjósa
Framsóknarflokkinn. Glöddu þessi
tíðindi ýmsa hagyrðinga sem fegnir töldu
tíðindin góð. Jón bóndi í Víðimýrarseli
var einn af þeim.
Framsókn lítt til fram rís
fáir styðj´ana.
Háskólafólkið heldur kýs
hina flokkana.
Annarri vísu man ég eftir sem tengist
þessari vísu Jóns og mun okkar góði
félagi í hljómsveitinni Upplyftingu,
Kristján Björn Snorrason, vera höfundur
að henni.
Við höftum þarf að hafa svar
heildræn ráð og festu.
En háskólamenntaðir heimskingjar
hruninu ollu að mestu.
Vel passar við vetrarmánuðinn þorra að
rifja næst upp þessa sannleiksríku vísu
Ingólfs Ómars:
Held ég fast í fornan sið
fyllist hugur kæti.
Blóta þorra, kýli kvið
og kverkar mínar væti.
Í þessu endalausa hvassviðri sem
nú hefur ríkt í þrjár vikur með annað
hvort rigningu eða hríð á suðvestan
hér á Norðurlandi, má sem best hugga
sig við næstu vísu Ingólfs. Klikkar þar
karl ekki frekar en stundum áður á
hringhenduforminu.
Vísnaþáttur 801
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Vindar knáir vítt um sjá
vekja brá á unni.
Rísa háar öldur á
ægisbláum grunni.
Fallega gerð vísa kemur hér næst, veit
því miður ekki um höfund að henni.
Ævilokin færðu fríð
firrtur öllu táli.
Ef þú fylgir alla tíð
aðeins réttu máli.
Önnur falleg vísa kemur hér en því miður
höfundarlaus.
Íslensk tunga há og hrein
hljóma sendu þína,
fögur sem hin græna grein
gegn um strengi mína.
Það er Skúli Pálsson sem segir okkur frá
ferðalagi sínu í næstu vísu.
Skröltandi bílnum í skalf ég
skrjóðurinn hristist og alveg.
Ríms og vísunnar vegna
verð ég að fara Kjalveg.
Þá rifjast næst upp þessi kunna vísa
Ólafs Davíðssonar:
Finnst mér lífið fúlt og kalt
fullt er það af lygi og róg
en brennivínið bætir allt
bara ef það er drukkið nóg.
Það er hinn afkastamikli hagyrðingur
Guðmundur Arnfinnsson sem er
höfundur að þessari frétt:
Níels á Neðri-Rangá
nótt eina gisti á Langá,
hann illa sá
og sængaði hjá
Sveindísi gömlu af vangá.
Önnur limra kemur hér eftir Guðmund.
Þar er á ferð talsverður sannleikur um
það sem kallað er stundum endalok.
Það stendur hér einn fyrir utan
óvæntur gestur með kutann,
kallar á mig
og kallar á þig.
Nú sígur á seinni hlutann.
Nú er þessi þáttur er í smíðum í lok janúar
hefur mikið gengið á í fjölmiðlum vegna
auglýsingar sem birtist í útvarpinu um
þorramat. Ýmsar vænisjúkar persónur
réðust þá á þessa ágætu konu sem las
umrædda auglýsingu fyrir að bölva í
útvarpið. Finnst mér þetta ómerkilegt
hjal og gladdist mjög þegar ég frétti að
okkar ágæti félagi hér áður fyrr, síðar
Dómkirkjuprestur, séra Hjálmar Jónsson,
hafði talið þetta óþarfa upphlaup og
bara gaman að heyra þessi norðlensku
kjarnyrði:
Norðlenska kikkið ég klárlega finn
kunnuglegt orðbragðið mælt fram af þunga.
Helvítis, bölvaður hálfvitinn þinn
hakkaðu í þig slátur og punga.
Vona að sem flestir geri þessi orð að
sínum.
Veriði þar með
sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Kjarnafæðismótið
Góður taktur í karlaliði Tindastóls
Leikið var um toppsætið í
B-deild karla í Kjarnafæðis-
mótinu í knattspyrnu í
Boganum á Akureyri sl.
föstudagskvöld. Lið Tinda-
stóls og Hamranna voru bæði
með níu stig að loknum
þremur leikjum, höfðu unnið
alla sína leiki, og aðeins eftir
að skera úr um hvort liðið
endaði á toppnum. Þegar til
kom þá reyndust Stólarnir
sterkari og unnu öruggan 5-0
sigur.
Lið Tindastóls varð fyrir
áfalli strax á áttundu mínútu
þegar varnarjaxlinn frá
Vopnafirði, Sverrir Hrafn,
varð að yfirgefa völlinn en í
hans stað kom grjótharði
Grenvíkingurinn, Ísak, (sem
entist reyndar bara fram í
hálfleik). Stólarnir náðu
forystunni með marki
Benedikts Kára Gröndal og
leiddu 1-0 í hálfleik.
Addi Ólafs gerði næstu tvö
mörk Tindastóls, það fyrra á
52. mínútu, og það seinna á
71. mínútu, og á 73. mínútu
bætti Jónas Aron við fjórða
markinu. Fimmta og síðasta
mark leiksins gerði Vestur-
Húnvetningurinn Emil Óli
Pétursson á 88. mínútu en
hann hafði komið inn fyrir
Ísak í hálfleik.
Allir leikmenn Tindastóls
sprettu úr spori í leiknum.
Áður hefur verið sagt frá
Sverri, Ísak og Emil en einnig
var gerð markmannaskipting
eftir klukkutíma leik þegar
Anton Helgi kom í markið í
stað Einars Ísfjörð. Bragi Skúla
leysti Hólmar Daða, bróður
sinn, af á 79. mínútu og við
sama tækifæri kom Kristófer
Yngva inn fyrir Benedikt Kára.
Á 84. mínútu var svo trommari
tekinn út af fyrir hljómborðs-
leikara (Eysteinn kom inn
fyrir Jóhann Daða) og virtist
það ekki taka taktinn úr
liði Tindastóls. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum
Feykis áttu ungu strákarnir
flottan leik og má þar nefna
Sigurð Pétur, Einar í markinu
og Benedikt Gröndal sem auk
þess að skora fyrsta markið
lagði upp tvö til viðbótar.
Sigurinn þótti sanngjarn.
En hvað um það; fjórir
fínir leikir að baki hjá liði
Tindastóls sem ætlar
greinilega að koma vel
samstillt og í toppformi til
leiks í sumar. Keppni í
Lengjubikarnum hefst í byrjun
mars en þar tekur lið
Tindastóls þátt í riðli 6 í
C-deildinni en auk Stólanna
eru lið Álafoss (Mosfellsbæ),
Berserkir (B-lið Víkings R.),
KB (Breiðholti) og Samherjar
(Eyjafirði) í riðlinum. Stefnt er
að heimaleik á Króknum gegn
KB 13. mars og Mosfellingar
mæta 2. apríl. /ÓAB
Febrúarspá Veðurklúbbs Dalbæjar
Úthvíldir Dalbæingar
spá í tunglið
Í skeyti frá Veðurklúbbi
Dalbæjar segir að spá-
mönnum hafi orðið ljóst á fundi
þann 1. febrúar að áframhald
verði á þeim mildu veðrum sem
hafa leikið við Dalvíkinga síðan
síðastliðið sumar þó hitastigið
hafi núna breyst yfir í frost og sú
úrkoma sem fellur verði því
nánast bara í sínu fallega fasta
hvíta formi.
„En eins og áður hefur
komið fram í spám okkar þá
verða veður annars staðar á
landinu því miður ekki eins
ljúf, en á meðan eru ennþá
nokkur gistipláss laus hér á
Dalvík og allir þeir sem vilja
komast í blíðuna til okkar
velkomnir á meðan húsrúm
leyfir,“ segir í skeytinu.
Spá Veðurklúbbsfélaga
byggist nú að mestu á nýju
tungli sem kom upp í austri en
þeir telja líklegt að veðurmildi
sú sem þeir hafa notið á
Dalvíkinni undanfarið hafi
orðið til þess að félagar hafa
sofið fast og vel og muna því
enga drauma til að byggja á
undanfarinn mánuð.
En samkvæmt venju er kvatt
með vísum um veður og þorra:
Fangið fáum fullt af fönn
Fagra framtíð sjáum
Sigrast sól á myrksins önn
Sól og sælu þráum.
Höf. Bjór.
Geislar klárir greikka stig
glaður tárast dagur.
Hefir báran hægt um sig
himinn blár og fagur.
Þorri um fjall og flata gljá
feldinn mjallar breiðir.
Úti er falleg sjón að sjá
sól um allar leiðir.
Höf. Ólína Jónasdóttir
/PF
06/2022 9