Feykir - 09.02.2022, Side 11
AÐALRÉTTUR
Gúllassúpa
U.þ.b. 1 kg gúllas
2 hvítlauksrif
2 laukar
3-4 bökunarkartöflur
4 gulrætur
1 rauð paprika
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. kúmen
1 teningur nautakjötskraftur
vatn eftir þörfum
salt og pipar eftir smekk
Aðferð: Byrjið á að skera gúllasið í
litla bita. Brúnið kjötið og kryddið
með salti og pipar. Skerið lauk og
hvítlauk og bætið saman við kjötið.
Bætið vatni við og sjóðið í u.þ.b, 40
mín. Setið niðursoðna tómata saman
við ásamt paprikukryddi, nauta-
kjötskrafti og kúmeni. Skrælið
kartöflur og gulrætur, skerið í bita
ásamt paprikunni og bætið í pottinn.
Látið sjóða í u.þ.b. 30 mín. Lækkið
hitann og látið súpuna malla í a.m.k.
1 klst. Því lengur því betra. Súpan
smakkast enn betur upphituð daginn
eftir.
Ómissandi með gúllassúpunni eru
nýbakaðar gerbollur með smjöri og
osti.
.
MEÐLÆTI
Gerbollur
400 g hveiti
200 g heilhveiti
1 bréf þurrger
1 egg
2 msk. sykur
4 msk. olía
4-5 dl mjólk og vatn (volgt)
Aðferð: Blandið saman mjólk og
vatni í skál og setjið þurrger saman
við. Bætið við sykri, eggi og olíu
og hrærið. Setjið hveiti og
heilhveiti saman við og hrærið og
hnoðið. Látið hefast í u.þ.b. 40
mín. Mótið bollur úr deiginu og
látið hefast í 20 mínútur til
viðbótar. Penslið með þeyttu eggi
og bakið í 12-15 mín. við 200°C.
Verði ykkur að góðu!
Árni Geir skorar á æskuvin sinn
Þröst Magnússon í Myndun.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Skör.
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvað er best
og verst af
þorramatnum?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Gallsúrir pungar er það allra
besta og það er ekki til vondur
þorramatur.“
Sigurður Ingi Einarsson
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
„Húmor og hlátur styrkir ónæmiskerfið, eflir orkuna, dregur úr verkjum
og ver þig gegn þessu daglega stressi,“ segir á Heilsutorg.is; „Og það
sem er best við þetta ókeypis lyf er að það er skemmtilegt og afar
einfalt að nota.“ Ótrúlegt, en kannski satt, þá hlæja börn að meðaltali
300 sinnum á dag meðan fullorðnir hlæja aðeins 17 sinnum á dag.
Hahahaha!
„Ég er ekki mikið fyrir
þorramat, allt súrt finnst mér
ógeð og borða helst hangikjöt
og svið.“
Sigurlaug Lilja Ólafsdóttir
„Best er sviðasulta a la
mamma en súr hvalur er
verstur."
Oddný Ragna Pálmadóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Tekið í eyra og pungspark.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
„Hákarlinn er bestur og
lundabaggarnir eru án efa
verstir.“
Jóhann Gunnlaugsson
Gúllassúpa
og gerbollur
Það er Árni Geir Sigurbjörnsson sem er matgæðingur vikunnar að
þessu sinni en hann er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki. Konan
hans, Katla Gísladóttir, á einnig rætur að rekja í Skagafjörðinn en er
uppalin á Suðurlandi. Þau eiga saman tveggja ára tvíburastelpur,
Hildi Ingu og Telmu Rún. Árni Geir starfar sem smiður og Katla vinnur
hjá Mannvit og starfar við brunahönnun.
“Ég er ekki mikið í eldhúsinu en tel samt að ég geti reddað mér
þegar á reynir. Uppskriftirnar koma því úr uppskriftabókum Kötlu,”
segir Árni.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Árni Geir Sigurbjörnsson | Kópavogi
Árni Geir og Katla með dæturnar. MYND AÐSEND
Tilvitnun vikunnar
Enginn hefur nokkru sinni orðið fátækur af því að gefa. - Anne Frank
Gúllassúpa og brauðbollur. MYND TEKIN AF SÍÐUNNI WWW.KRYDDOGKRASIR.COM.
06/2022 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Hún er vaxin á höfði manns.
Hefst upp í bekkinn með frekjunni.
Við smalann stígur hún stundum dans.
Stöðug vörn gegn leka á þekjunni.