Feykir - 16.03.2022, Blaðsíða 6
Það hefur viðrað vel
til snjóhúsa- og
snjókallagerðar um allt
land í vetur og margir nýtt
sér það til fullnustu. Feyki
var bent á brottfluttan
Skagfirðing í Kópavogi
sem lætur ekkert stoppa
sig í þessari göfugu
listsköpun, og vakið hefur
athygli á samfélagsmiðlum
fyrir frumlega skúlptúra.
Ragnheiður Bjarnadóttir er
fædd og uppalin í Skagafirði,
bjó í Víðilundi á Höfðaströnd,
dóttir Ingibjargar Jónsdóttur og
Bjarna Ásgríms Jóhannssonar,
kennara. Eftir að hún kláraði
grunnskólagönguna í Grunn-
skólanum á Hofsósi fór hún í
Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki og svo í píanókennara-
nám í Reykjavík og hefur
starfað sem píanókennari við
Tónskóla Eddu Borg síðan.
„Ég náði mér í kall fyrir
sunnan, Halldór Hauksson, og
við eigum fjórar dætur, Maríu
Elísabetu, Lilju Rut, Júlíu Heið-
rós og Silju Ásbjörgu, og við
búum í Kópavogi,“ segir hún
um sunnanlandsdvöl sína.
En að snjóskúlptúragerðinni
sem margir hafa dásamað á
samfélagsmiðlunum. Hvernig
hófst þessi snjókalla- eða snjó-
skúlptúragerð hjá þér? „Ég var
örugglega bara frekar lítil þegar
ég fór fyrst að búa til snjókarla
með systkinum mínum. Við
bjuggum líka til stór og flott
snjóhús, stundum með nokkr-
um herbergjum. Ég man ekki
hvernig þetta þróaðist út í
„óhefðbundna snjókarla“. En
það var frekar snemma. Ég
man t.d. eftir risastórri snjó-
kerlingu sem við gerðum í
sameiningu, það þurfti að nota
stiga af því að hún var svo stór.
Ég man ekki betur en að
Jóhann bróðir hafi verið „yfir-
smiðurinn“ í því verkefni. Ég
man líka eftir að hafa einu sinni
gert snjóísbjörn og svo eftir að
ég fór suður bjó ég á tímabili í
Hamrahlíð og gerði nokkuð
stóran snjójólasvein sem sat í
garðinum. Það var hægt að sitja
í fanginu á honum.“
Hvað segja börnin um þessa
listasmíð? „Ég hef aukið þessa
snjókarlaframleiðslu eftir að ég
eignaðist stelpurnar og við
erum saman í þessu. Það byrjar
alltaf þannig að við förum
saman út, ég og einhver eða
einhverjar af stelpunum, en svo
er það reyndar oft þannig að
þeim er orðið kalt og farnar inn
áður en ég hef lokið mér af. En
þær hafa mjög gaman af þessu
og sú yngsta tilkynnti mér það
núna síðast þegar við vorum úti
að hún ætlaði að verða svona
snjókarlasnillingur þegar hún
yrði stór.“
Það hefur viðrað vel til
snjólistaverkasköpunar í vetur
víðast hvar og ekki síst á
höfuðborgarsvæðinu og segir
Ragnheiður það fagnaðarefni
þegar snjóar.
„Já, ég viðurkenni það alveg
að ég fagna snjónum. Ég hef
reyndar ekki getað hjólað í
vinnuna í u.þ.b. þrjár vikur
vegna ófærðar, sem er mjög
óvenjulegt hér syðra, og það
hefur alls ekki alltaf verið
almennilegur „snjókarlasnjór“.
Oft hefur verið of kalt og þá er
snjórinn ekki nógu blautur. En
maður grípur tækifærin þegar
þau gefast.“
Herfurðu orðið vör við einhver
viðbrögð fólks í nágrenninu hjá
þér? „Já, það hafa þó nokkrir í
blokkinni okkar lýst yfir
ánægju sinni með þessa
fígúrugerð mína. Svo er líka
nágrannakona í næsta húsi sem
hefur komið til mín og sagst
vera í fullri vinnu við að fylgjast
með þessum framkvæmdum
mínum, taka „snöpp“ og svona
og hefur gaman af,“ segir
Ragnheiður. En hvaða skúlptúr
skyldi hún vera ánægðust með?
„Ég veit það ekki. Ég var
frekar ánægð með páskaeggið,
fannst það skemmtileg
hugmynd, samt ekkert endilega
flottast. En gerir maður nokkuð
upp á milli verkanna sinna
Ragnheiður Bjarnadóttir snjólistamaður vekur verðskuldaða athygli
Óvíst hvort listaverk
Ragnheiðar lifa daginn af
Ragnheiður við hliðina á brosmildu dvergunum sínum sem hún skóp af mikilli list.
MYNDIR AÐSENDAR
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Stelpurnar hafa gaman af því að hjálpa mömmu sinni í snjóskúlptúragerðinni en hér eru þær hjá snjókrökkunum.
frekar en barnanna sinna?“
spyr listakonan eðlilega.
Hvetur bæði börn og
fullorðna til að leika sér
Það er ekki bara snjókallagerð
sem fangar hug Ragnheiðar því
hún finnur listsköpun sinni
farveg á fleiri sviðum. Þannig
segist hún frá því hún var
krakki alltaf hafa haft gaman af
því að teikna og geri stundum
enn og svo hefur hún aðeins
verið að fikta við að mála.
„Ég hef reyndar bara mjög
gaman af alls konar föndri og
hannyrðum. Svo er ég auðvitað
mikil áhugamanneskja um
tónlist enda vinn ég við
tónlistarkennslu og söng lengi í
kórum, t.d. í kirkjukórnum á
Hofsósi og Mótettukór Hall-
grímskirkju.“
En Ragnheiður vill nota
tækifærið og hvetja alla, bæði
börn og fullorðna, til að leika
sér! „Það er líka ótrúlega gaman
að búa eitthvað til, t.d. úr
snjónum sem er algjörlega
ókeypis efniviður og það er
hægt að gera svo margt
skemmtilegt með hann. Munið
bara, ef þið eruð ánægð með
það sem þið búið til úr snjó, að
taka strax mynd af því. Það er
ekkert víst að þið eigið eftir að
sjá það aftur næsta dag!“
Feykir þakkar Ragnheiði fyrir
skemmtilegt spjall og tekur
heilshugar undir þessi hvatn-
ingarorð hennar.
6 11/2022