Feykir


Feykir - 24.08.2022, Page 4

Feykir - 24.08.2022, Page 4
Skipulagsnefnd Skagafjarðar Nestún, parhúsalóðir til úthlutunar Nestún lóðir 16, 18, 22 og 24 – parhúsalóðir Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir parhúsalóðir við Nestún á Sauðárkróki. Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar fjórar parhúsalóðir nr. 16 (verður 16a og 16b), 18 (verður 18a og 18b), 22 (verður 22a og 22b) og 24 (verður 24a og 24b) við Nestún í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar, dags. 4. maí 2022. Sótt er um lóðir á vef Skagafjarðar, www.skagafjordur.is, undir Lausar lóðir. Um umsóknir og úthlutun lóðanna gilda reglur um úthlutun byggingarlóða í Skagafirði, sem má nálgast á vef sveitarfélagsins undir Reglur og Samþykktir, Húsnæðis og fasteignamál; https://www.skagafjordur.is/static/files/ Skipulagsmal/2022/reglur-um-uthlutun-loda.pdf. Frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna. Einungis er hægt að sækja um eina parhúsalóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Ef um er að ræða einstaklinga skulu þeir leggja inn sameiginlega umsókn um báðar íbúðir á lóðinni. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð. Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar Sumarið er tíminn. Það er besti tíminn og þó fylgir honum áhætta. Á manna- mótum og tyllidögum að sumri viljum við hafa sól í heiði og logn, svo að fólk njóti sam- funda í blíðviðri. Við messu á Ábæ er gott veður, eða oftast. Þá er það þannig að þótt lagt sé af stað að heiman í rigningu er dalurinn baðaður sól. Veðurspá var heldur óhagstæð vonum fólks þegar leið að messunni í ár og skipti það þó ekki minnstu máli, þar sem um aldarafmæli helgi- dómsins var að ræða. Að þessu sinni rættust vonir okkar um sólskin í dal ekki. En dagurinn varð samt hátíðlegur og gleði öllum þeim, sem lögðu leið sína fram eftir. Þegar talin höfðu verið nöfn viðstaddra í gestabókinni kom nokkuð merkilegt í ljós, og taldi fólk það táknrænt. Á hundrað ára afmælinu áttu hundrað manns AÐSENT | Dalla Þórðardóttir Dagur í Austurdal Afmæli Ábæjarkirkju nöfn sín í gestabók. Við athöfn- ina söng kór Flugumýrarsóknar og Miklabæjarsóknar og organ- isti var Sveinn Árnason. Með- hjálpari var Agnar H. Gunnars- son, en prófastur sr. Dalla Þórðardóttir prédikaði og þjón- aði fyrir altari. Guðjón Samúelsson, arki- tekt og húsameistari ríkisins teiknaði Ábæjarkirkju, en reyndar var teikningu hans ekki fylgt út í æsar. Guðjón ætlaði kirkjunni að sameina steinsteypuna og gamla tímann, eins og fram kemur í bók Péturs Ármannssonar, Guðjón Sam- úelsson, húsameistari, frá árinu 2021: ,,Ábæjarkirkja er einstök í bygg- ingarsögunni, sem tilraun til að útfæra byggingarlag íslenskrar torfkirkju í steinsteypu. Varð- veittir eru tveir uppdrættir af misstórum kirkjum á Ábæ, dagsettir í apríl 1920. Veggir eru í báðum tilvikum úr steinsteypu og torfhleðsla utan á lang- veggjum og torf á þaki. Kirkjan, sem talin er minnsta guðshús landsins úr steinsteypu, var reist eftir minni teikningunni.“ Í lok athafnar var veitt viðtaka tveimur gjöfum; sr. Ólafur Þór Hallgrímsson á Mælifelli, fyrr- um sóknarprestur, gaf kirkj- unni Biblíu og hjónin Kristín Jónsdóttir og Þórarinn Eggerts- son í Hraungerði færðu kirkj- unni Guðbrandsbiblíu. Þá var því fagnað að á fyrra ári var reist um kirkjuna ný girðing, sem einnig er gjöf frá sr. Ólafi og að kirkjuhúsið hefur verið málað, bæði að utan og innan. Jóhann Kristjánsson og Valdimar Lárusson, annar mál- ari og hinn múrari, dvöldu í dalnum bæði í fyrra og nú fyrr í sumar við að að lagfæra steypuskemmdir svo og að mála veggi, sem og bekki, altari og fleira. Er kirkjan nú öll önnur en fyrr og enn frekar augnayndi þeim sem um dalinn fara. Þökk sé þeim, sem hér hafa verið nefnd, sem og þeim öðrum sem leyft hafa kirkjunni að njóta þakklætis síns og bænasvara. Þess er enn ógetið að nú hin síðustu ár hafa hjónin á Hóli í Lýtingsstaðahreppi, Ásgeir Valur Arnljótsson og Valgerður Inga Kjartansdóttir, ásamt sín- um börnum, séð um að slá kirkjugarðinn og umhverfi. Um útsendingar úr kirkju og til þeirra sem úti sitja, sér sem fyrr Hróbjartur Jónasson. Þökk sé þeim. Að messu lokinni tilheyrir að koma heim í Merkigil og þiggja þar messukaffi. Systkin Helga heitins Jónssonar hafa árum saman boðið heim í kaffið og hafa þar farið fremst í flokki Kristín og Þórarinn, sem fyrr voru nefnd. Undanfarin tvö ár hefur ekkert kaffi verið á Merkigili sökum anna þeirra hjóna og samkomutakmarkana. En í ár var drukkið messukaffi á Merkigili. Frændsystkin Helga buðu fram húsið og var allt með fyrri brag. Í messukaffi miðju voru sungnar stökur, en það lét Helgi heitinn einnig oft gera. Borð svignuðu undir kræs- ingum, enda var ekki á öðru von, eins og þau vita sem setið hafa veislur þar sem konur úr Kvenfélagi Lýtingsstaðahrepps sjá um veitingar. Við heimafólkið þekkjum veislukostinn gjörla en margt aðkomið fólk hafði sérstaklega orð á gómsætum kleinum, soðnu brauði með laxi, sem það kvaðst aldrei fá í sínum heima- högum og ekki voru rjóma- pönnukökurnar sístar. Valgerður á Hóli, formaður kvenfélagsins, tók undir eins ljúflega í bón um að félagið tæki að sér undirbúning þessa dags og alla vinnu. Kann ég henni og þeim öllum, sem að komu, innilegar þakkir fyrir. Ábæjarkirkja á sjálfan messudaginn 31. júlí 2022. MYND: KATARÍNA YLVA LEIFSDÓTTIR Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps. Á myndinni eru frá vinstri: Ragnheiður Jónsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Gloria Simone Kucel, Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, Ása Sóley Ásgeirsdóttir, sem heldur á Ragnari Loga Þorsteinssyni, syni Gloriu, Valgerður Inga Kjartansdóttir, Guðbjörg Elsa Helgadóttir og Guðbjörg Valgarðsdóttir. MYND: DALLA ÞÓRÐARDÓTTIR Sameinaður kirkjukór Flugumýrarsóknar og Miklabæjarsóknar. Efri röð: Sindri Rögn- valdsson, Agnar H. Gunnarsson, Hannes Bjarnason, Sveinn Árnason, Kolbrún María Sæmundsdóttir. Í neðri röð: Þórunn Rögnvaldsdóttir, Sigrún Hrönn Þorsteinsdóttir, Charlotte Kvalvik og Eyrún Anna Sigurðardóttir. MYND: KATARÍNA YLVA LEIFSDÓTTIR. 4 31/2022

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.