Feykir


Feykir - 24.08.2022, Blaðsíða 12

Feykir - 24.08.2022, Blaðsíða 12
Það var líf og fjör á golfvellinum sl. fimmtudag þegar Golfmaraþon barna- og unglingastarfs Golfklúbbs Skagafjarðar fór fram í frábæru veðri. Markmið hópsins var að ná að leika 1000 holur og var stór hluti af þeim krökkum sem hafa verið á æfingum í sumar þátttakendur en einnig máttu foreldrar, ömmur, afar, systkini, frændur, frænkur og auðvitað meðlimir Golfklúbbs Skagafjarðar leggja hönd á plóg og hjálpa krökkunum að ná settu marki. Alls tóku 80 manns þátt og er gaman að segja frá því að yngsti þátttakandinn var ekki nema 6 ára og elsti 72. Sá sem fæstu holurnar fór lék tvær á meðan sá sem fór flestar lék hvorki meira né minna en 66 holur. Þá voru allir sem lögðu inn holur verðlaunaðir með heitri vöfflu með sultu og rjóma og að auki fengu krakkarnir ís. Markmiðið náðist á slaginu 18:00 þegar Tómas Bjarki Guð- mundsson skilaði inn skorkortinu sínu við mikil fagnaðarlæti í skál- anum. Það var því tekið á það ráð að reyna við holumetið sem var sett árið 2018 en það hljóðaði upp Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 31 TBL 24. ágúst 2022 42. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Bláa ullin Fyrir mörgum árum bjó sá maður að Skeggsstöðum í Svartárdal er Þorkell hét. Hann átti konu þá sem Rósa er nefnd. Einu sinni gekk Rósa að fé um vor með vinnumanni þeim er Jónas hét. Fjall er bratt fyrir ofan bæinn, en gil nokkurt gengur ofan eftir því fyrir utan bæinn. Rósa og Jónas gengu upp með gilinu, og er þau voru komin alllangt upp í fjallið sáu þau flekk af blárri ull er auðsjáanlega var breidd til þerris. Jónas vildi þegar taka ullina, en hún vildi það eigi og kvað nógan tíma til að taka hana er þau kæmi aftur; og varð það úr. Settu þau vel á sig hvar ullin var. En þegar þau komu þangað seinna um daginn var ullin horfin með öllu. Sögðu þau þegar frá þessu er þau komu heim og vissu menn fyrir víst að þar var eigi ull þvegin af öðrum bæjum. /PF Þjóðsögur Jóns Árnasonar Álfar Golfklúbbur Skagafjarðar 1604 holur leiknar í golf- maraþoninu á Hlíðarendavelli Séð yfir hluta Hlíðarendavallar á keppnisdaginn. MYND: SIGRÍÐUR SVAVARSDÓTTIR Ýmsir hafa velt fyrir sér hvar mál standa með upp- byggingu á verkstæðisreitnum við Freyjugötu á Sauðárkróki. Til stóð að reisa þar nokkur fjölbýlishús en aðeins eitt er risið og hafa framkvæmdir gengið hægar en ætlað var. Vinna hófst snemma árs 2021 og stefnt var að því að íbúðirnar yrðu tilbúnar að hausti. Framkvæmdaaðilinn, Hrafnshóll, er nú að ljúka við húsið og er stefnt að verklokum um næstu mánaðamót samkvæmt upp- lýsingum Feykis. Framkvæmdaaðili er jafnframt með deiliskipulag svæðisins í vinnslu en það var síðast í umfjöllun hjá skipulagsnefnd sveitarfélagsins 20. júní sl. en er áfram í vinnslu. Að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar, sveitarstjóra Skagafjarðar, þarf deiliskipulagið að klárast svo menn viti hvernig áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu verður nákvæmlega hagað. Íbúðirnar átta í húsinu við Freyjugötu eru hses íbúðir (húsnæðissjálfseignarstofnun) þannig að þær fara allar í útleigu og verða því ekki til sölu. / ÓAB Freyjugötureitur á Sauðárkróki Styttist í að húsið verði tilbúið á 1541 holu. Um kl. 19:30 var ákveðið að stoppa leikana og var þá búið að fara 1604 holur frá kl. 9 um morguninn og því nýtt met slegið sem verður erfitt að toppa þegar næsta maraþon verður haldið, sem er áætlað árið 2024. Að lokum langar Barna og unglingaráði að þakka öllum einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum fyrir þá styrki sem veittir voru. /SG Fyrsta húsið á Freyjugötureitnum verður senn tilbúið. MYND: PF Auglýsing um skipulagsmál - Skagafjörður Tillaga að deiliskipulagi – Varmahlíð: grunn- og leikskóli, sundlaug ásamt íþróttahúsi, íþróttasvæði og menningarhúsið Miðgarður Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á 3. fundi sínum þann 17. ágúst 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir skólasvæði Varmahlíðar og nærumhverfi skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha að stærð og afmarkast til austurs af Birkimel, til suðurs af Reykjarhólsvegi, til vesturs af landnotkunarreitum AF-501 og SL-501 og til norðurs af lóð við Norðurbrún. Markmið skipulagsins er að setja fram heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið og skilmála um uppbyggingu. Helstu viðfangsefni eru meðal annars skilgreining á lóðarmörkum, byggingarreitum, stígakerfi og aðkomu. Skipulagstillagan er auglýst frá 24. ágúst til og með 5. október 2022. Tillagan mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15 og á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is Athugasemdir og ábendingar varðandi skipulagstillöguna skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 5. október 2022. Skipulagsfulltrúi Tómas og Markús. MYNDIR: SYLVÍA DÖGG Nína, Nína og Rannveig með Atla þjálfara.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.