Feykir - 24.08.2022, Qupperneq 9
Þriðjudaginn 16. ágúst
síðastliðinn var haldinn fræðslu-
dagur í Menningarhúsinu
Miðgarði. Fræðsluþjónusta
Skagafjarðar hefur haldið utan
um þennan dag og skipulagt
dagskrá í samstarfi við skólana í
Skagafirði.
Þetta er í ellefta skipti sem
fræðsludagur er haldinn í
Skagafirði en það hefur þurft að
aflýsa fræðsludeginum síðustu
tvö ár vegna heimsfaraldurs.
Feykir spurði Selmu Barða-
dal, fræðslustjóra á fjölskyldu-
sviði Skagafjarðar, út í daginn.
„Markmið dagsins er fyrst
og fremst að tengja saman allt
starfsfólk skólanna í Skagafirði,
deila góðu verklagi og stuðla að
sem bestu lærdómssamfélagi,“
segir Selma. „Við viljum tengja
saman mismunandi skólagerðir
og skólastig og nýta þá fag-
þekking sem við höfum á okkar
svæði sem best.
Á fræðsludegi er saman
komið allt starfsfólk leik-,
grunn- og tónlistarskóla, starfs-
fólk fjölskyldusviðs og Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra.
Á þessum ellefta fræðsludegi
bættist svo starfsfólk Farskól-
ans einnig í hópinn.“ Selma
segir að dagur sem þessi skili
fyrst og fremst aukinni faglegri
samvinnu og samstarfi sem
leiði til aukinnar samheldni
innan skólasamfélagsins á
svæðinu. Selma tekur fram að
það sé afar gleðilegt að geta hist
á ný eftir tveggja ára hlé.
Eitt af umfjöllunarefnum
dagsins voru ný lög um sam-
þættingu þjónustu í þágu barna
sem tóku gildi þann 1. janúar
2022. Meginmarkmið þessara
nýju laga er að búa til umgjörð
Fræðsludagur í Skagafirði
Aukin samheldni innan skólasamfélagsins
þolinmæði hefði einkennt
starfsmannahópinn á þessum
tímum og það hefði verið
ómetanlegt fyrir samfélagið allt
hve vel tókst að halda skólastarfi
gangandi. Hún sagði jafnframt
að niðurstöður rannsókna frá
þessu tímabili sýndu fram á
samhengi á milli félagslegrar
einangrunar vegna covid og
vanlíðunar hjá börnum og
unglingum, sem segir okkur
hvað skólastarfið og þessi
daglega rútína barnanna okkar
og félagslegt samhengi er
mikilvægt. Selma sagðist vera
bjartsýn fyrir komandi skólaár
og sagði mörg spennandi verk-
efni framundan í skólum
Skagafjarðar. / IÖF
Fræðsludagur var vel sóttur.
Skipulagsnefnd Skagafjarðar
Birkimelur, íbúðarhúsalóðir
til úthlutunar
Birkimelur nr. 25, 27 og 32 – einbýlishúsalóðir
Birkimelur nr. 13-15, 17-19 og 21-23 – parhúsalóðir
Birkimelur nr. 34-40 – raðhúsalóð
Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir Birkimel í Varmahlíð með tíu
einbýlishúsalóðum, tveimur raðhúsalóðum og þremur parhúsalóðum.
Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar þær lóðir sem verða
aðgengilegar við 1. áfanga gatnagerðar við Birkimel, einbýlishúsalóðirnar
Birkimel 25, 27 og 32, parhúsalóðirnar Birkimel 13-15, 17-19 og 21-23 og
raðhúsalóðina Birkimel 34-40 í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar,
dags. 4. maí 2022. Sótt er um lóðir á vef Skagafjarðar, www.skagafjordur.is
undir Lausar lóðir. Um umsóknir og úthlutun lóðanna gilda reglur um
úthlutun byggingarlóða í Skagafirði, sem má nálgast á vef sveitarfélagsins,
undir Reglur og samþykktir, Húsnæðis- og fasteignamál: https://www.
skagafjordur.is/static/files/Skipulagsmal/2022/reglur-um-uthlutun-loda.pdf
Þess er ekki að vænta að sveitarstjórn samþykki ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar,
sbr. grein 1.4, fyrr en að fenginni niðurstöðu í ágreiningsmáli um gildi deiliskipulags
svæðisins. Er ágreiningur um það rekinn fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- ogauðlindamála.
Frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna. Einungis er hægt að
sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Ef um er að ræða einstaklinga skulu
þeir leggja inn sameiginlega umsókn um báðar íbúðir á lóðinni. Dregið verður
úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð.
Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar
sem stuðlar að því að börn og
foreldrar, sem á þurfa að halda,
hafi aðgang að samþættri þjón-
ustu við hæfi án hindrana.
Ákvæði laganna miða að því að
formfesta samstarf um veitingu
þjónustu í þágu farsældar barna
og skapa skilyrði til að unnt sé
að bregðast fyrr við tilteknum
aðstæðum eða erfiðleikum í lífi
barns með viðeigandi stuðningi
þegar þurfa þykir.“ Selma sagði
sveitarfélagið standa vel að því
leyti að þjónusta við börn og
fjölskyldur þeirra, það er að
segja fræðsluþjónusta, frístunda-
þjónusta og félagsþjónusta
hefði verið samþætt undir eitt
fjölskyldusvið árið 2012, sem
kæmi sér afar vel nú þegar ný
lög væru að boða slíka sam-
þættingu í þjónustu.
Þegar spurt var um skóla-
starfið undanfarin tvö ár sagði
Selma það hafa gengið vonum
framar í ljósi erfiðra aðstæðna.
Hún hrósaði starfsfólki og
stjórnendum vel fyrir útsjónar-
semi og lausnamiðun á skipu-
lagi skólastarfsins, sem oft gat
verið mjög flókið vegna
takmarkana og sóttvarna.
Selma sagði að jákvæðni og
Bryndís Þráinsdóttir kynnir Farskólann. MYNDIR: IÖF
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Gefur út Ævisögu asks
Ævisaga asks – A journey of a
driftwood (ferðalag rekaviðar)
er nafnið á litabók sem Byggða-
safn Húnvetninga og Stranda-
mann gaf út nú í sumar.
Þar er velt fyrir sér hvaða
sögu gamall askur hefði að segja
ef hann gæti tjáð sig; smíðaður
úr rekaviðardrumbi sem gæti
rakið sögu sína heim til Síberíu
þar sem ferðalag hans hófst. Það
er Gunnar Rögnvaldsson á
Löngumýri sem skrifar texta
bókarinnar en Sigríður Ævars-
dóttir gerði myndirnar sem
prýða hana.
Gunnar og Benjamín Krist-
insson myndskreyttu baksíðu
bókarinnar. Bókin var sett upp
og prentuð hjá Nýprenti á
Sauðárkróki en hana má nálgast
hjá Byggðasafni Húnvetninga
og Strandamanna á Reykjum í
Hrútafirði og einnig hjá
Byggðasafni Skagfirðinga í
Glaumbæ. Bókin er bæði á
íslensku og ensku. Ekki þurfa
allir að nota hana sem litabók,
hún stendur fyrir sínu sem
sögubók líka. Safnaráð og
Sóknaráætlun Norðurlands
vestra styrktu útgáfuna. / ÓAB
31/2022 9