Harmonikublaðið - 15.12.2019, Side 5
Tíbrá í Salnurn
Jónas Ásgeir Ásgeirsson og Ragnar Jónsson
sellóleikari héldu tónleika í tónleikaröðinni
Tíbrá þriðjudagskvöldið 8. október sl. Báðir
hafa unnið til þess að koma fram með
Sinfóníuhljómsveit Islands, sem ungir
nemendur, en þeir er nánast jafnaldrar, fæddir
1993 og 1994. Eins og áður hafði komið fram
var þetta ekki hinn dæmigerði hljóðfæradúett,
en ungt fólk hefur ætíð haft gaman af að reyna
eitthvað nýtt, ögra hinu hefðbundna oft með
ágætis árangri.
Tónleikarnir hófust á ítalskri svítu eftir Igor
Stravinsky. Svítan er gullfallegt og ljóðrænt
verk þar sem tónlistarmennirnir sýndu allar
sínar bestu hliðar í frábæru samspili. Þeir héldu
áfram í þremur litlum lögum eftir Atla Heimi
Sveinsson, Dalvísu, Heiðlóarvísu og Söknuði.
Mikið af tónlist Atla Heimis hefur fýrir löngu
orðið að hálfgerðri þjóðareign, enda virðast
þau vera samin af þjóðarsál fyrir þjóðarsál.
Áheyrendur kunnu svo sannarlega að meta
það sem boðið var uppá og létu það óspart í
ljósi. Fyrri hluta tónleikanna lauk með
nútímaverkinu Radioflakes. Þar kvað við
annan tón, svona eins og til að leggja áherslu
á að það er fleira er matur en feitt ket. Verkið
er mjög nútímalegt og strembið og eins gott
fyrir flytjendur að hafa hugann við það sem
þeir eru að gera. Það fékk ágætis viðtökur.
Eftir hlé tók við einleikskafli Ragnars þegar
hann lék Sellósvítu í d-moll eftir Johann
Sebastian Bach. Bach hljómaði yndislega í
Salnum hjá Ragnari, sem hefur allt sem þarf
til að verða framúrskarandi og eftirsóttur
sellóleikari. Þá var komið að rússnesku
nútímaverki eftir þá frægu Sofiu Gubaidulinu,
sem er eitt fremsta nútímatónskáld heims. In
croce er gríðarlega flókið og vandmeðfarið
stykki, sem hélt áheyrendum vel við efnið og
flutningurinn fýrsta flokks. Tónleikunum lauk
svo á þremur smálögum úr Jónasarbók Atla
Heimis. Á gömlu leiði 1841, Ég bið að heilsa
og Buxur, vesti, brók og skór. Otrúlega falleg
lög sem náðu vel til áheyrenda.
Þessa tónleika sóttu vel á annað hundrað
manns, sem má alveg sætta sig við. Stærstan
hluta hefur undirritaður aldrei séð á
hefðbundnum harmonikutónleikum. Takk
fýrir mig.
Friðjón Hallgrímsson
Ljósmynd: Asdís Hinriksdóttir
HAGYRÐINGAKVÖLD
ú 3bWjfndl
iárhriP
-.Ajk IÆ . M- ■»>
agyrðingakvöld matur, dansleikur og gisting,
verður á Hótel Smyrlabjörgum
18. apríl 2020
Nánar auglýst síðar
nda Hornafirði
5