Harmonikublaðið - 15.12.2019, Blaðsíða 16
•í»
urSIHU 2019
" w
- Av
* $? „. •
Aðalfundur SIHU var haldinn á Hótel
Valaskjálf á Egilsstöðum, laugardaginn 28.
september sl. Það voru ósviknir fagnaðarfundir
þegar þingfulltrúar tólku að tínast á
þingstaðinn upp úr miðjum föstudeginum og
hugur í mörgum. Það var Harmonikufélag
Héraðsbúa sem skipulagði fundinn og var það
allt þeim til mikils sóma. Boðið var upp á súpu
um kvöldið og síðan hófu menn að stilla
saman strengi. Var kvöldið allt hið notalegasta.
Jón Sigfusson, GuttormurSigjusson ogHreinn Halldórsson,
en Lög eftirpá tvo síðarnefndu voru leikin peim til heiðurs
d laugardagskvöldinu
Næsta morgunn var farið með makana í
óvissuferð, meðan aðalfundarfulltrúar settust
að fundi. Mættir voru fulltrúar frá þrettán af
íjórtán félögum sambandsins. Það var skarð
fyrir skildi að þrír stjórnarmenn, Melkorka,
Sigrún og Pétur forfölluðust á síðustu stundu.
Eftir skýrslu Filippíu formanns og yfirferð um
reikninga sambandsins urðu nokkuð líflegar
umræður um harmonikudaginn og ýmislegt
sem tengdist fjárhagsáætlun sambandsins. Við
stjórnarkjör var upplýst að Melkorka gæfi ekki
kost á sér og var Anna Guðrún Vigfúsdóttir,
fulltrúi Húnvetninga, kjörin gjaldkeri í hennar
stað. Aðrir stjórnarmenn sitja áfram.
Að þessu sinni hafði borist tillaga um
lagabreytingu frá Félagi harmonikuunnenda
í Reykjavík. Var í henni lagt til að
hagnaðarskiptingu eftir landsmót yrði breytt
á þann veg að félagið sem héldi landsmótið
fengi 60 hundraðshluta, en SÍHU 40. Áður
hafði skiptingin verið 60/40 SÍHU í vil. Ekki
urðu miklar umræður um breytinguna.
Stjórnin lýsti sig andvíga breytingunni, en
tjáði sig ekki frekar um málið. Elísabet
formaður FHUR dró fram rök fyrir dllögunni
og fékk stuðning frá Karítas á Isafirði og
Þórólfi í Keflavík, auk þess sem Friðjón lýsti
sig jákvæðan. Var gengið til atkvæða og tillagan
samþykkt með 17 atkvæðum gegn 8, en tvo
þriðju hluta þarf til að breyta Iögum SIHU.
Á aðalfundi í Keflavík 2016 var skiptingunni
breytt úr 70/30 f 60/40 og voru þá margir á
þeirri skoðun að lengra ætti að ganga.
Var nú komið að liðnum önnur mál og kenndi
16
þar ýmissa grasa, enda fundarstjórinn Jónas
Þór ólatur við að hvetja fólk til umræðna. Lauk
fundinum upp úr þrjú. Um kvöldið var gengið
til hátíðarkvöldverðar. Þar buðu Héraðsbúar
upp á skemmtilega tónlistarveislu til heiðurs
þeim Guttormi Sigfússyni og Hreini
Halldórssyni, sem verið hafa máttarstólpar
félagsins á margan hátt í gegn um tíðina. Lék
Hreinn Iítið sýnishorn af sinni tónlist, en
Torvald Gjerde flutti tvö lög eftir Guttorm
Sigfússon. Að öllu þessu loknu var stiginn
dans til klukkan eitt. Kvöldið var allt hið
ánægjulegasta, sem og helgin og allar
mótttökur til fyrirmyndar hjá þeim
Héraðsbúum. Morguninn fór í góðar
ferðaóskir til handa vinum sem nú héldu
heimleiðis þó ekki allir í sömu átt.
Friðjón Hallgrímsson
Ljósmyndir: Sigurður Olafison
Aðalfundarfulltrúar á Egilsstöðum
r
■\
v.
Ritstjórinn á Dalvík sumarið 1998 með harmoniku Jóhanns
Svarfdælings.
J