Harmonikublaðið - 15.12.2019, Síða 6
Skemmtiferð Harmonikufélags
Vestfjarða um Húnaþing vestra
13. - 15. september árið 2019
13. september
Að uppástungu nýkjörins formanns
Harmonikufélags Vestfjarða, Hafsteins
Vilhjálmssonar, var ákveðið að efna til
skemmtiferðar norður í Miðfjörð, gista þar í
tvær nætur á Hótel Laugarbakka og skoða
söguslóðir í nágrenninu. Hafsteinn sá um
undirbúning ferðarinnar, útvegaði rútu af
hæfilegri stærð og ágætan bílstjóra, pólskan
að ætterni, sem bar hið norræna nafn Valdimar.
Brottfarardagur var ákveðinn 13. september.
Harmonikukarlar, Líni, Lóa og Edda ásamt
áhangendum úr Dýrafirði óku á bílum sínum
til Isafjarðar og tóku rútuna þar. Klukkan tíu
voru þeir komnir um borð ásamt öðrum
ferðafélögum og var þá lagt af stað.
Fararstjóri var Hafsteinn formaður og stjórnaði
öllu með lipurð og festu. Stefnan var tekin inn
formanns Harmonikufélags Vestfjarða, en
hann lést 20. apríl sl.
Frá Hólmavík var farið um Þröskulda og
Laxárdal. Stutt stopp var í Búðardal og annað
í Staðarskála í Hrútafirði. Þar kom í rútuna
Engilbert Ingvarsson og voru þá allir mættir
sem skráðir voru í ferðina, 38 manns.
Komið var að Laugarbakka upp úr klukkan
fimm. Þar er rekið myndarlegt hótel. Það
stendur í litlu þorpi á austurbakka Miðfjarðarár
sunnan þjóðvegarins. Hefur það byggst í landi
Reykja og heitt vatn þaðan notað til upphitunar
húsanna. Miðfjarðará er með kunnustu og
fengsælustu laxveiðiám landsins. Hún kemur
upp á afréttarlöndum Miðfirðinga í þremur
kvíslum: Austurá, Núpsá og Vesturá.
Við fengum góðar móttökur á Hótel
Laugarbakka. Fólki var vísað til herbergja þar
sem menn létu líða úr sér ferðaþreytuna og
* w
9Bv- M jjjú ' Li Jm
Djúp með viðkomu í Súðavík. Þar komu um
borð Frosti Gunnarsson og Björg Hansdóttir
og Dýrfirðingarnir Bergur Torfason og Emilía
Sigurðardóttir.
Næst var áð á Hólmavík og þar bættust í
rútuna Þorleifur Ingólfsson og Lára Gísladóttir.
Harmonikufélagið bauð upp á kjötsúpu í
Riishúsi og við það tækifæri bar Messíana
Marsellíusdóttir fram koníak, púrtvín og
rauðan brjóstsykur í minningu og að hætti
eiginmanns síns Asgeirs S. Sigurðssonar, fyrsta
6
snurfusuðu sig síðan fyrir kvöldverðinn. Svo
hittist á að Lóa (Elínbjörg Snorradóttir) kona
Bergsveins Gíslasonar frá Mýrum varð áttræð
einmitt þennan dag 13. september. I tilefni
afmælisins bauð hún samferðafólki sínu upp
á kampavín við upphaf kvöldverðar. Hafsteinn
formaður færði henni veglegan blómvönd frá
Harmonikufélaginu og fylgdi með vísa þessi:
Þú ert ennpá æði spræk
að átta tugum loknum.
Heillaóskir og hundrað „læk “
frá harmonikuflokknum.
Síðan var sunginn afmælissöngurinn, bæði
fýrir Lóu og Emilíu sem varð áttræð 12.
september og hrópað ferfalt húrra. Eftir þetta
neyttu menn veislukvöldverðar. Við lok hans
var borin fram vegleg afmælisterta í boði
hótelsins.
Eftir matinn var skemmtileg sýning á
handunnum myndum er sýndu atriði úr
Grettissögu. Höfundur myndanna og kynnir
var Gudrun Kloes, fædd í Þýskalandi en flutti
til Islands 1982 og hefur lengst af búið í
Húnavatnssýslu. Menn gengu til náða saddir
og glaðir eftir góðan dag. Veður dagsins, skúrir,
sólarglæta á milli.
14. september
Upp úr klukkan átta tóku menn að tínast í
morgunverð. Ekki var gæfulegt út að líta,
hvasst og rigning. Framundan var akstur fyrir
Vatnsnes en sú leið er þjóðkunn fyrir holur
enda gamall malarvegur. Höfðu sumar
konurnar við orð að verða eftir á hótelinu og
spila eða skríða undir sæng frekar en fara út
í þetta veður. En eftir prýðilegan morgunverð
varð þó fólk samstiga með að fara í ferðina.
Allir voru komnir í rútuna klukkan tíu. Þar
var mættur leiðsögumaður dagsins, Karl
Asgeir Sigurgeirsson ættaður frá Bjargi í
Miðfirði. Sópaði það af honum að engum
datt annað í hug en hlýða honum í einu og
öllu. Fyrsti áfangastaðurinn var Hvammstangi,
kauptún við austanverðan Miðfjörð, byggt
úr landi jarðanna Kirkjuhvamms og Syðsta
Hvamms. Stórir hvammar eru fyrir ofan
kauptúnið og er nafn þess dregið af þeim. Það
varð löggiltur verslunarstaðar 1895. Þá var
ekkert íbúðarhús á staðnum, öll byggðin reis
eftir það.
Hvammstangi er aðlaðandi og snyrtilegt þorp.
Ibúar eru milli fimm og sex hundruð og fer
heldur fjölgandi. Margvíslega opinbera
þjónustu og atvinnustarfsemi er þar að finna,
til að mynda skrifstofu sem annast uppgjör
alls fæðingarorlofs á landinu, þar starfa um 15
manns. I prjónastofunni Kidka starfa álílca
margir. Karl Asgeir fór með okkur í
prjónastofuna, verslunarminjasafnið og