Harmonikublaðið - 15.12.2019, Side 10
ÍV^^: -
*»£ •&?%*£ '*^v .;. Vsi
Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga
haustið 2019
Aðalfundur Harmonikufélags Þingeyinga var
haldinn áBreiðumýri 13. október síðastliðinn
með harmonikuleik, kaffi og kökum. Þá var
kosinn formaður Sigurður Olafsson í stað
Jóns Helga Jóhannssonar. Þar voru og kosnir
stjórnarmenn þau Þórgrímur Björnsson og
Gunnhildur Arnþórsdóttir í stað Þórhildar
Sigurðardóttur og Smára Kárasonar.
Fundarmenn minntust Kjartans Jóhannes-
sonar, hann lést 8. október í haust. Kjartan
var einn afstofnfélögum harmonikufélagsins
og lengi félagi í Strákabandinu.
Arshátíð var svo haldin á Breiðumýri þann
26. október. Var hún fremur fámenn, en
félagar létu fámennið ekki spilla gleðinni.
Veislustjóri var Hólmfríður Bjartmars og flutti
hún annál ársins ásamt Sigríði Ivarsdóttur.
Tryggvi Óskarsson sagði sögur eins og honum
er einum lagið og Þórgrímur Björnsson sá um
leiki. Eftir að gestir höfðu hesthúsað
girnilegum kræsingum frá Kristjáni
Guðmundssyni á Laugum var sungið og
dansað fram eftir nóttu.
Harmonikuleikarar voru Strákabandið og
Hildur Petra. Meðleikarar voru Jónas Pétur
Bjarnason á bassa, Pálmi Björnsson á gítar og
Magnús Kristinsson lék á trommur. Þökkum
við þeim öllum fyrir fjörugt ball.
Þann 23. október varð einn af stofnfélögum
okkar Jón Arni Sigfússon níræður.
Harmonikufélagið óskar honum innilega til
hamingju með afmælið og þakkar honum
mikið og gott starf í félaginu gegn um tíðina.
Fía á Sandi.
Ljósmyndir: Siggi á Sandi
Pálmi, Magnús, Hildur Petra, Fía, Ólína ogjónas Pétur leiddu jjöldasöng á árshátíðinni
■: = • L 1 H;: - j y f
1 r/ ‘ ' Wi|jMap|ir*~~ \ | ; ' 1 ■ i; |
^ ‘ x 1
1 1 w' m \
1 i|j§f IIStP h«B| gf
/ I riTf-i . Wff j!
Hildur Petra ásamt félögum drógu ekki afsér t dansinum
Meðalaldurinn á Strákabandinu UkkaSi verulega með tilkomu Hildar Petru
10
Skoðið timarit.is og flettið harmonikublöðum frá 1986