Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Qupperneq 9
Landsfundur 1981
Frá landsfundi.
Við skulum hugsa okkureitt andartak,
hvaða afleiðingar það hefur, ef Sjálf-
stæðisflokkurinn klofnar og sjálfstæðis-
menn ganga fram í tveimur fylkingum í
næstu þingkosningum?
Afleiðingin er öllum ljós. Klofningur
Sjálfstæðisflokksins þýðir aukin áhrif
vinstri manna í landinu um langa fram-
tíð. Klofningur Sjálfstæðisflokksins
þýðir, að vinstri menn og sósíalistar
munu í vaxandi mæli móta þróun þjóð-
félags okkar næstu áratugi.
Hvað viljið þið?
Er það þetta, sem við sækjumst eftir,
sjálfstæðismenn? Er það þetta, sem þeir
sækjast eftir, ráðherrar úr rööum sjálf-
stæðismanna og félagar þeirra, að sitja
við borð sósíalista og þiggja mola úr
þeirra hendi?
Ég segi við ykkur, alla sjálfstæðis-
menn, og ég segi við ykkur alveg sérstak-
lega, sem styðjið núverandi ríkisstjórn:
Ég er reiðubúinn til að ganga fram fyrir
skjöldu og ná sáttum og samstöðu sjálf-
stæðismanna. Ég er reiðubúinn til að
leggja mitt af mörkum til þess að við
getum náð samstöðu um málefnasam-
þykktir og stefnumótun. Ég vil vinna að
því að engum dyrum verði lokað með
breytingum á skipulagsreglum Sjálf-
stæðisflokksins - en ég spyr ykkur á móti:
Hvað eruð þið tilbúnir til að gera til þess
að sameina megi alla sjálfstæðismenn á
þessum landsfundi?
Við höfum setið á nokkrum fundum
undanfarnar vikur og rætt málefni
flokksins. A þeim fundum hef ég ekki
heyrt hvert ykkar framlag verður til þess
að sættir takist. En ég vænti þess og ég
skora raunar á ykkur að segja þessum
glæsilega landsfundi hvað þið eruð til-
búnir til að gera til þess að sjálfstæðis-
menn geti sameinast á ný og gengið sam-
hentir til sveitastjórnakosninga í vor -
gengið samhentir til þeirrar baráttu, sem
við eigum fyrir höndum að endurheimta
meirihlutann í Reykjavík og gengið sam-
hentir til baráttunnar í næstu þingkosn-
ingum og sigrað. Við bíðum eftir svari
ykkar hér á þessum landsfundi. Ég tel,
að þeir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins,
sem hingað eru komnir úr öllum byggð-
um landsins, eigi kröfu á að heyra þetta
svar, áður en landsfundi lýkur.
Völd kommúnista
Það er ljóst, að Alþýðubandalagið,