Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Qupperneq 11

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Qupperneq 11
Stjórnmálayfirlýsing landsfundar 1981 I. Almennt um þjóðmálin Frá því aö Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður fyrir fimmtíu og tveimur árum hefur hann verið merkisberi frelsis og framfara í landinu. Stefna hans er víð- sýn, frjálslynd og þjóðleg umbótastefna á grundvelli athafna- og einstaklings- frelsis með hagsmuni allra stétta og byggðarlaga fyrir augum. Flokkurinn telur það forsendu heilbrigðs samfélags að einstaklingar, félög þeirra og samtök hafi frelsi til athafna og fái að njóta af- raksturs iðju sinnar. Jafnframt leggur hann áherslu á það hlutverk opinberra aðila að sjá um að leikreglur frjálsrar starfsemi séu haldnar og samhjálp tryggð, sem veiti öryggi gegn áföllum. Flokkurinn hefur haft forystu í sókn ís- lendinga til landsréttinda og vill gæta þess öryggis, sem nauðsynlegt er til þess að þjóðin geti lifað í friði og frelsi í landi sínu. Reynslan sýnir að íslendingum hefur vegnað best, framfarir orðiðxirastar og velferð aukist mest, þegar sjónarmið Sjálfstæðisflokksins hafa verið ráðandi. Þegar skoðanir annarra flokka hafa orðið ofan á og höft, skattar og hvers konar opinber afskipti verið aukin, hefur hins vegar skjótt brugðið til stöðnunar í átvinnulífi og dregið úr umbótum. Jafn- framt hefur öryggi landsins verið stefnt í hættu vegna tvíræðrar afstöðu þessara flokka. Alvarleg viðhorf blasa nú við í þjóð- málum hér á landi sem víðast hvar annars staðar. Á undanfömum áratugum hafa oðið stórstígar framfarir og velferð hefur aukist hröðum skrefum. Nú hefur hins vegar dregið úr hagvexti, verðbólga magnast og atvinnuleysi orðið mikið víða um heim. Jafnframt hefur opinber starf- semi stóraukist án þess að árangur hafi skilað sér að sama skapi. Við íslendingar höfum ekki farið var- hluta af þessum breytingum, enda þótt aflaaukning vegna stækkunar fiskveiði- lögsögu og hagstæð markaðsskilyrði hafi orðið okkur til hagsbóta. Það er skylda stjómmálaflokka að skoða stefnu sína í ljósi þessara nýju viðhorfa. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur að undanförnu unnið að þessu. Fyrir tveimur ámm birti flokk- urinn stefnuskrá í efnahagsmálum, Endurreisn í anda frjálshyggju. í framhaldi af henni er nú lögð fram ítarleg stefnuskrá í atvinnumálum auk álits- gerða í öðrum málaflokkum. Sjálfstæðisflokkurinn telur það brýn- asta verkefnið að styrkja og efla atvinnu- líf landsins. Takist þetta ekki, brestur grundvöllur framfara og umbóta og vaxandi straumur fólks mun leita sér lífs- viðurværis í öðmm löndum. Bæta þarf starfsskilyrði atvinnuveg- anna og leysa úr læðingi atorku og fram- tak einstaklinga og félaga þeirra. Fella verður niður hömlur á atvinnurekstri og viðskiptum og leyfa heilbrigðri sam- keppni að njóta sín. Verðlag þarf að vera frjálst og sömuleiðis gjaldeyrisviðskipti. Endurskoða ætti opinber. útgjöld og flytja verkefni frá ríki til sveitarfélaga, fyrirtækja og einstaklinga. Jafnframt verður að draga úr sköttum á einstakl- inga og atvinnurekstur og leggja áherslu á, að allar atvinnugreinar og fyrirtæki sitji við sama borð. Gengisskráning þarf að taka mið af þörfum atvinnuveganna, jafnframt því sem aðhalds er gætt vegna verðlagsáhrifa hennar. Beita ber verð- jöfnunarsjóðum í samræmi við upphaf- legan tilgang þeirra. Kjarasamningar verða að vera á ábyrgð þeirra, sem að þeim standa og stefna að ömggri afkomu launþega jafnt sem atvinnuvega. Sam- ræmdri stefnu verður að fylgja í peninga- og fjármálum. Kjör innlána og útlána þurfa að ákveðast svo að hvatning til spamaðar sé nægjanleg og fjármagn beinist þangað, sem það kemur að best- um notum. Nýta verður vatnsorku og jarðvarma, sem verði gundvöllur öflugs iðnaðar. Ákvarðanir ber að taka sem fyrst um nýjar virkjanir og nýta samvinnu við erlend fyrirtæki eftir því sem hag- kvæmast virðist og markaðsskilyrði gefa vísbendingu um. Aukinn hagvöxtur og framleiðni eru forsendur þess, að íslendingar nái því markmiði að sérhver vinnufær maður hafi starf, er veiti lífvænlega afkomu með hóflegum vinnutíma. Áhersla sé lögð á, að dagvinnutekjur nægi til framfærslu. Stuðlað sé að alhliða þróun atvinnuvega og lífsskilyrða í öllum hémðum landsins. Við sérstaka og tímabundna örðugleika er réttlætanlegt, að opinberir aðilar komi í veg fyrir að fyrirtæki kollvarpist og starfsmenn séu sviptir lífsafkomu. Það er grundvöllur sjálfstæðisstefn- unnar, að stétt starfi með stétt. í atvinnu-

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.